Morgunblaðið - 28.09.2015, Page 6

Morgunblaðið - 28.09.2015, Page 6
Í FINNLANDI Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Selt er tvöfalt meira af skyri í Finnlandi en sjálfu upprunalandinu, Íslandi. Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, útnefndi umboðsmenn skyrsins í Finnlandi heims- meistara í skyrsölu á skyrhátíð sem efnt var til í Helsinki um helgina. Hann tók jafnframt fram að Finnar ættu enn langt í land með að ná heimsmetinu í skyrneyslu miðað við höfða- tölu. Þar hefðu Íslendingar vinninginn. Skyr Finland oy og frumkvöðlarnir sem standa að baki því og starfsmenn hafa góða ástæðu til að gleðjast. Þeir halda upp á þau tímamót að fimm ár eru liðin frá því þeir hófu að selja skyr frá Íslandi. Fyrsta árið seldu þeir tæp 150 tonn af skyri og á síðasta ári var salan komin upp í um 3000 tonn. Í ár má búast við að salan verði hátt í 5.500 tonn. Salan í Finnlandi sprengdi strax á öðru ári innflutningskvóta Evrópusambandsins og nú er megnið af því framleitt í Danmörku með aðferðum MS. Ísland í Helsinki Af þessu tilefni efndu þeir til skyrhátíðar- innar í Helsinki. Leigðu litla eyju, Lonna, og gáfu henni nafnið „Ísland“. Út um alla borg- ina voru skilti sem sögðu hvað væri lengi ver- ið að ganga eða sigla til „Íslands“. Þeir buðu blaðamönnum og fleiri gestum í veislu þar sem boðið var upp á íslenskar veitingar að hætti Sigga Hall og skyráhugafólk gat komið til að smakka skyrafurðir og taka þátt í Ís- landshátíð. Íslenskar hljómsveitir og plötu- snúðar skemmtu fólki, meðal annars Retro Stefson, og margir vildu fá að mynda sig með Hafþóri Júlíusi Björnssyni, leikara og krafta- jötni. Eyjan rúmaði fimm hundruð manns í einu og var áætlað að um þúsund manns hefðu komið þangað hvort kvöld. „Við höfum haft þessa hugmynd í þrjú eða fjögur ár en þetta er dýrt og við höfðum ekki efni á að hrinda henni í framkvæmd fyrr en núna,“ segir Mika Leppäjärvi, stofnandi og aðaleigandi Skyr Finnland oy ásamt Miikka Eskola. Þeir félagar eru ánægðir með veisl- una og vissu í gær ekki annað en fólkið væri ánægt. Geta þess að erfitt sé að fá jafnmarga blaðamenn til að sýna sig á viðburði og stoppa þar heilt kvöld. Þeir vonast síðan til að fá umfjöllun í finnskum fjölmiðlum næstu daga. Kynning á landinu Kristín A. Árnadóttir, sendiherra Íslands í Finnlandi, segir að kynning á skyri sé jafn- framt mikil kynning á Íslandi. Finnsku um- boðsmennirnir tengi skyrið við hreysti og heilbrigða lífshætti og geri mikið úr upprun- anum. Í ávarpi Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar forsætisráðherra, sem sýnt var á skjá í veislunni, minnti hann á að Finnar og Íslendingar líktust á ýmsan hátt, töluðu til dæmis tungumál sem enginn annar skildi. Nú hefði skyrið bæst við þessi tengsl. „Ég sá þetta á Facebook,“ segir Heimir Gunnarsson, fimleikaþjálfari í Finnlandi, sem mætti á hátíðina með finnskri konu sinni. „Skyr er orðið ótrúlega vinsælt hér, þeim finnst það betra en jógúrt. Þegar fim- leikaþjálfararnir taka sér hlé draga þeir alltaf upp skyrdósir til að næra sig,“ segir Heimir. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Verðlaunaafhending Eigendur Skyr Finland taka á móti bikar úr hendi Ara Edwald, forstjóra MS. Stofnendurnir, þeir Mika Leppäjärvi og Miikka Eskola, eru lengst til vinstri. Finnar heimsmeistarar í skyrsölu  Umboðsmenn MS í Finnlandi fengu viðurkenningu fyrir einstæðan árangur í sölu á skyri á mikilli skyrhátíð sem þeir efndu til í Helsinki um helgina  Byrjuðu að selja skyr frá Íslandi fyrir 5 árum 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2015 mbl.is/askriftarleikur Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hátt í 200 foreldrar barna sem stunda knattspyrnu í Reykjavík komu saman á fundi í Frostaskjóli í Vesturbæ í gær til þess að ræða um dekkjakurl á knattspyrnuvöllum við fulltrúa borgaryfirvalda. Fram hefur komið að krabbameinsvaldandi efni eru í dekkjakurlinu og eru foreldrar uggandi yfir notkun þess en kurlið er notað á um 80% íslenskra fótbolta- valla. Unnið er að þingsályktunartil- lögu um að tekið verði á málinu á landsvísu. Eitthvað verði gert fljótt Freyr Hermannsson, foreldri barns í KR og einn skipuleggjenda fundarins, sagði eftir fundinn í gær að málin hefðu verið rædd af yfirveg- un en þó hefði augljóslega mátt heyra á viðstöddum foreldrum að þeim væri annt um málið. „Foreldrar eru mjög áfram um það að eitthvað verði gert. Eitt foreldri nefndi að Reykjavík væri ekki með áætlun til þess að taka á vandanum sem stendur og það er í raun okkar krafa að eitthvað sé gert fljótt í málunum,“ sagði Freyr. Hann sagði að á fundinum hefði komið fram að lagning nýs undirlags á vellina kostaði 40-60 milljónir og að sumir þeirra væru komnir á tíma hvað við- hald varðar. „Við viljum að þetta sé gert núna,“ sagði Freyr. Engar sönnur um skaðsemi Heiða Björg Hilmisdóttir, borgar- fulltrúi Samfylkingarinnar og for- maður Heilbrigðisnefndar Reykja- víkur, sagði að fundurinn gæfi tilefni til þess að setjast niður og gefa for- eldrum skýr svör um það hvenær skipt yrði um undirlag á völlunum. Hún sagði að ekki hefði verið sett dekkjakurl á velli sem lagðir hefðu verið eftir 2010. Því væri um fimm velli að ræða í Reykjavík. „Það er ekki búið að færa sönnur á að efni í kurlinu séu skaðleg og þ.a.l. var ekki farið í að skipta öllu út tafarlaust. Engu síður var ákveðið að láta börn- in njóta vafans og að notast ekki við dekkjakurlið eftir þann tíma,“ sagði Heiða. Spurð hvort tækifæri væru til þess að setja nýja velli á fjárhags- áætlun næsta árs, svaraði hún að allt væri hægt í þeim efnum en huga þyrfti að forgangsröðun. Alþingi feli ráðherra málið Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, var á fundin- um. Hann vinnur nú að þingsálykt- unartillögu um dekkjakurlið. „Hún snýr að því að Alþingi feli umhverf- isráðherra að taka málið upp og vinna það áfram þannig að Umhverf- isstofnun geri tilmæli eða reglur um notkun á dekkjakurli á gervigrasvöll- um, þannig að þær uppfylli ýtrustu umhverfis- og heilbrigðiskröfur,“ sagði Willum. Dekkjakurli verði skipt út tafarlaust  Foreldrar barna sem stunda knattspyrnu funduðu um dekkja- kurl  Börnin njóti vafans  Þingsályktunartillaga í bígerð Morgunblaðið/Golli Fundur Fulltrúar borgarinnar ræddu við foreldra barna í knattspyrnu um dekkjakurl á gervigrasvöllum. Nýr skeiðvöllur var vígður á Hólum í Hjaltadal um helgina að loknum rétt- arstörfum í Laufskálarétt. Reið skag- firski knapinn Magnús B. Magnússon fyrstu hringina á vellinum undir dynjandi lófataki áhorfenda sem sátu í brekkunum í hundraðatali. Landsmót hestamanna verður haldið á Hólum næsta sumar og segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Landsmótsins, að völl- urinn muni koma að góðum notum þegar þar að kemur. „Framkvæmdirnar hafa staðið yfir í sumar, sérstaklega núna í ágúst og september. Núna síðustu vikur höf- um við keppst við að þökuleggja þannig að það er allt orðið fagur- grænt og fallegt. Ekki hefur skemmt fyrir hvað haustið hefur verið gott hérna fyrir norðan,“ segir Áskell Heiðar. Á næsta ári verða fimmtíu ár liðin síðan Landsmót hestamanna var síð- ast haldið á Hólum í Hjaltadal. Þykir aðstandendum mótsins viðeigandi að fagna því með öðru móti á þessum sögufræga stað. Á Hólum er æðsta menntastofnun íslenska hestsins í heiminum og segir Áskell Heiðar að Landsmót muni efla skólann veru- lega. Uppbyggingin muni nýtast hon- um um ókomna tíð. „Rætur hrossaræktar liggja marg- ar til Skagafjarðar og þangað er hægt að rekja flest hross á landinu. Margir af öflugustu ræktendum og knöpum íslenska hestsins um allan heim hafa gengið hér í skóla. Okkur finnst því svolítið eins og Landsmótið sé að koma heim.“ sh@mbl.is Skeiðvöllur vígður fyrir Landsmót  Síðast haldið á Hólum fyrir hálfri öld Morgunblaðið/BJB Á fleygiferð Hundruð manna fylgd- ust með vígslunni á laugardag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.