Morgunblaðið - 28.09.2015, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2015
REYKJANESBÆR
OG NÁGRENNI
Á FERÐ UM
ÍSLAND
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Í litlu húsi í Reykjanesbæ er bjart yf-
ir. Þar situr Guðmundur R. Lúðvíks-
son, LED-bóndi landsins, en hann
fékk snemma áhuga á LED-ljósum
sem hann spáir að verði næsta bylt-
ing. Sennilega notum við öll LED-
perur með einhverjum hætti í dag,
s.s. í símum, jólaljósaseríum, ljósa-
perum, LED-sjónvörpum og fleiru.
LED-perur hafa þróast mikið á
síðustu árum en Japanarnir Isamu
Akasaki, Hiroshi Amano og Banda-
ríkjamaðurinn Shuji Nakamura hlutu
Nóbelsverðlaunin í fyrra fyrir LED-
ljós. Segir í niðurstöðu Nób-
elsverðlaunanefndarinnar í eðlis-
fræði að glóperan hafi lýst upp tutt-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LED-bóndinn Guðmundur Lúðvíksson á skrifstofunni sinni við Njarðarbraut með kúpul af ljósastaur í fanginu.
LED-byltingin er
bara rétt að byrja
Bjart er yfir Guðmundi R. Lúðvíkssyni hjá Led ljósum
Fyrir og eftir Götur í Los Angeles eru nú orðnar LED-lýstar.
Þegar Morgunblaðið bar að garði í
Sandgerði voru nokkrar konur sam-
ankomnar til að prófa að leira í
gamla Kaupfélagshúsinu. Það var líf
og fjör í húsinu, en verið var að búa
til krukkur. „Það koma margir leynd-
ir hæfileikar fram þegar fólk fer að
prófa,“ segir Erla Sigursveinsdóttir
sem sá um að kenna konunum. Vörur
Erlu fást í Listatorgi í Sandgerði,
beint á móti veitingastaðnum Vit-
anum. „Sumar hafa prófað áður, en
það eru nokkrar nýjar,“ segir hún.
Í Listatorginu er hægt að fá alls
kyns handunnar vörur frá Sandgerði
og bæjunum í kring. „Mest sem við
erum með til sýnis er héðan af
svæðinu. Það fer gott orð af okkur
fyrir vandaðar vörur og hér er vand-
að til verka. Galleríið er bjart og
skemmtilegt og við höfum fengið
mikið hrós frá listafólki sem hefur
sýnt í salnum okkar. Núna síðast var
finnsk listakona að sýna verkin sín
og sú sýning heppnaðist mjög vel,“
segir hún.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Margir leyndir hæfileikar koma
fram þegar fólk fer að prófa
Stærsti nammibar Reykjanesbæjar
er í fjölskyldusjoppunni Ungó. Þegar
Morgunblaðið bar að garði var Val-
geir Magnússon á bak við afgreiðslu-
borðið. Valgeir er einn mesti stuðn-
ingsmaður Arsenal á Íslandi og ekur
um með einkanúmerið Gooner, sem
er gælunafn liðsins.
„Hér er mikið líf oft á föstudögum
og laugardögum þegar verðið á
namminu fer niður,“ segir Valgeir, en
hann rekur sjoppuna ásamt konu
sinni, Þorgerði Sigurbjörnsdóttur, og
börnum þeirra.
Valgeir segir að þrátt fyrir að vinna
og eiga sjoppu sé hann ekki mjög
duglegur að stelast í gotteríið sem
starir á hann alla daga. „Ég var dug-
legri hér áður fyrr. Nú er maður létt-
ur, ljúfur og kátur og þá þýðir ekkert
að stelast – jafnvel þótt það freisti
aðeins.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stærsti nammibarinn er í Ungó
Tíu árum eftir komuna til Íslands
frá Kólumbíu hafa Novelia Cald-
eron og maður hennar, William
Ledesma, opnað kólumbískt kaffi-
hús, sem hafði verið draumur
þeirra lengi.
Novella og William fluttu til Ís-
lands árið 2005 og bjuggu fyrstu
níu árin sín hér á landi í Reykja-
vík. Í fyrra fluttu þau svo í
Reykjanesbæ og eftir að hafa
gengið með drauminn í maganum
í öll þessi ár létu þau hann loks
rætast. Nú vinnur öll fjölskyldan
saman í litla bakaríinu í Hafnar-
götu sem var opnað fyrir rúmum
mánuði.
„Ég hafði lengi hugsað hvernig
ég gæti komið hugmynd minni í
framkvæmd. Tungumálið stoppaði
mig alltaf. En nú eru stelpurnar
mínar altalandi og það hjálpar,“
segir Novelia.
Í bakaríinu er margt að finna
sem Íslendingar þekkja ekki eins
og kólumbískt brauð og snúða,
gloríur og fleira. „Okkur langaði
að hafa líka eitthvað frá Íslandi en
Létu drauminn ræt-
ast í Reykjanesbæ
Kólumbískt kaffihús kitlar bragðlaukana
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dugleg Novelia Calderon, Nerderson Cabrera og Katherine Idarraga fyrir aftan afgreiðsluborðið.