Morgunblaðið - 28.09.2015, Page 13
Í Reykjanesbæ og Sandgerðisbæ búa rúmlega 16.500
manns, en samanlögð stærð sveitarfélaganna er um
209 ferkílómetrar. Atvinnuvegir á þessu svæði eru
margs konar, s.s. verslun og þjónusta og er Kefla-
víkurflugvöllur þar mikilvægur þáttur.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2015
Einn fallegasti garður Sand-
gerðis er í eigu Helga Valdi-
marssonar styttugerðarmanns.
Helgi flutti frá Reykjavík árið
2007 til að komast frá áreitinu
og kann vel við sig í bænum. Í
garði Helga eru fjölmargar
styttur og gnæfir sjálfur Ing-
ólfur Arnarson yfir þegar rennt
er að húsinu.
Á milli þess sem Helgi steypir
styttur og vinnur með mörg
tonn í einu er hann einnig með
litlu hlutina á hreinu, eins og
handmáluð glös og kertastjakar
bera vitni um.
„Á veturna er gott að hvíla
sig á styttunum og þá mála ég á
gler og fer í fínlegri hluti. And-
stæðurnar eru miklar og á einni
sýningu minni hitti ég mann
sem neitaði að trúa því að þetta
færi saman; eitthvað svona stórt
eins og styttugerð og lítið og
smátt eins og málun á gler.“
Næsta verkefni Helga er að
gera styttu af hafmeyju og
tveimur börnum til minningar
um börn sem fórust á 19. öld.
„Svo er stefnan að gera dreka í
garðinn minn sem sex til átta
börn geta setið á bakinu á. Það
getur orðið spennandi,“ segir
hann spenntur. benedikt@mbl.is
Helgi Valdimarsson styttugerðarmaður í Sandgerði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lífsmottó „Allt frá öllu og engu, upp í ekki neitt og allt þar á milli.“
Þetta dreymdi listamanninn eina nóttina og skrifaði niður.
Stórar sem smáar
úti um allan garð
Töffari Mikki mús vekur lukku.
ugustu öldina en LED-ljós muni lýsa
upp 21. öldina. Þá sagði nefndin einn-
ig að peran sparaði orku og nýttist í
baráttunni gegn hlýnun jarðar.
Það er einmitt umhverfisvæni og
sparneytni þátturinn sem er Guð-
mundi svo hugleikinn. Hann segir að
það sé lítið mál að spara með LED-
perum. „Nú þarf Ísland að fara að
LED-væða sig þannig að þjóðin geti
orðið samferða öðrum Evrópu-
þjóðum. Helst vildi ég LED-væða
landið strax,“ segir hann og bendir á
að Bandaríkin fóru að LED-væðast
árið 2002 og Evrópuþjóðir fylgdu í
kjölfarið.
Hann segir að Ísland hafi setið á
hakanum. „Þetta ævintýri byrjaði á
fullu í heiminum árið 2002 og ég veit
ekki af hverju við erum ekki þátttak-
endur. Ávinningurinn er svo mikill.
Við vitum núna að það er allt að 92%
sparnaður með LED-væðingu. Ef
götulýsing, skólar, opinberar bygg-
ingar og fleira yrði LED-vætt þá er-
um við að tala um sparnað upp á ansi
margar milljónir og jafnvel milljarða.
Sem dæmi hefur verið reiknað að ef
hvert heimili skiptir út tíu gömlum 60
vatta perum og fer í 5 vatta LED-
perur þá er sparnaðurinn 1,2 millj-
ónir kílóvattstunda,“ segir hann.
Guðmundur segir að þróunin sé
hröð í LED-perum og íþróttasalir,
götur, götumerkingar, bílastæði og
fleira sé nú með LED-ljósum. „LED
er rafbúnaður og það er hægt að setja
hvað sem er inn í peruna. Það er
hægt að setja WIFI-kerfið, mynda-
vélina og brunavarnarkerfið, og
margt af því sem venjulegt heimili
notar er allt í einu komið inn í eina
peru. Þetta hljómar pínu klikkað, en
er engu að síður staðreynd.“
Fljótt að borga sig upp
Hann segir að það sé mikill
sparnaður að skipta og leiti heimili
sér upplýsinga má finna góð kjör.
Guðmundur er ekki aðeins með heim-
ili í viðskiptum heldur einnig mörg
sveitarfélög, hótel, fiskvinnslur,
verslanir og stór og minni fyrirtæki.
„Það skiptir máli að leita sér upplýs-
inga um verð og annað. Götulýsing
kostar mikið fyrir sveitarfélög og það
eru nokkur byrjuð að LED-væða sín-
ar götulýsingar. Má til dæmis nefna
að Akranes, Höfn, Ísafjörður og
Reykjanesbær hafa þegar hafið þetta
ferðalag þar sem sparnaðurinn er lát-
inn fjármagna kostnaðinn. Ávinning-
urinn er verulegur.“
Í skrifstofuhúsinu og heildsöl-
unni Ludviksson ehf. við Njarð-
arbraut 3 er margt að finna, allt frá
minnstu bílaperum og upp í stóra
ljósastaura. Hann er með alla flóruna
af perum – bjartar og skærar.
Skemmtileg bylting
„Þetta er skemmtilegur heimur
og þetta er skemmtileg bylting sem
við erum að stíga inn í. Við sjáum
hreinni lýsingu á götunum, dagsljós í
lýsingu og minnkandi ljósmengun.“
Aðdáendur Formúlu 1 kannast
við brautina í Abu Dhabi, en þar er
keppt að svörtu kvöldlagi en brautin
er lýst með LED-perum. „LED er
gömul uppfinning. Það eru mörg ár
síðan Eurovision tók þessa tækni upp
á sína arma. Á síðustu árum er svo
búið að fullkomna þessa tækni og
byltingin er rétt að byrja,“ segir Guð-
mundur.
Ljósmynd/EDGE Photographics
Ljós í myrkri Formúlu-brautin í Abu Dhabi er LED-lýst.
Þegar Los Angeles-borg ákvað að skipta yfir í LED-
lýsingu í götulýsingu sinni tók verkið þrjú ár. Alls var
skipt um 140 þúsund ljósastaura og hefur rafmagns-
reikningurinn lækkað um 60%, sem sparað hefur skatt-
greiðendum borgarinnar sjö milljónir dollara og minnk-
að kolefnisútblástur um 47 þúsund tonn á hverju ári.
„Það er eins og að taka 10 þúsund bíla af götunum og
það skiptir borg eins og Los Angeles miklu máli,“ sagði
Bill Clinton, þegar skipt var um síðustu peruna í borg-
inni þar vestanhafs árið 2013.
10 þúsund bílar af götunum
BILL CLINTON KOM AÐ LED-VÆÐINGU LOS ANGELES
Bill Clinton
viðskiptavinir okkar vildu það
ekki. Sögðu að hér ættu að vera
kólumbískar vörur, eitthvað með
bragð af okkar menningu, og þá
yrði staðurinn einstakur,“ segir
Katherine Idarraga, dóttir þeirra
Norellu og Williams. Hún segir að
pabbi sinn sé kokkur og hafi áður
rekið lítið fjölskyldufyrirtæki
heima í Kólumbíu.
„Mamma og pabbi voru oft að
hugsa um að opna svona stað.
Pabbi er kokkur en þetta var allt-
af bara hugsun. Svo var skyndi-
lega ákveðið að kýla á þetta.
Við, ég, systir mín Alegandra og
pabbi, erum oftast hér og svo
kemur mamma líka stundum. Í
Kólumbíu vorum við líka með lít-
inn rekstur þar sem fjölskyldan
vann saman. Það er auðvelt og
skemmtilegt að fjölskyldan sé að
vinna saman,“ segir Katherine.
Í hádeginu er boðið upp á rif,
súpu og hamborgara og jafnvel
fisk og franskar.
„Við hlustum á viðskiptavini.
Við viljum þóknast þeim. Snúð-
arnir okkar til dæmis eru hefð-
bundnir kólumbískir snúðar – ekki
með súkkulaði eins og þeir ís-
lensku – en margir sögðu við okk-
ur að þeir yrðu betri með súkku-
laði og þá breyttum við þeim bara.
Við hlustum og viljum bjóða það
sem fólkið vill,“ segir hún.
Og Novelia segir ákaflega gott
að búa í Reykjanesbæ. „Hér er
gott að vera og gott að búa.
Fyrsta vikan var erfið eftir að við
opnuðum því þá komu margir og
smökkuðu en keyptu ekki. En
núna eru íbúar hér komnir upp á
lagið með okkar vörur og það
koma margir að kaupa brauð,
ostabollur eða hvað sem er. Von-
andi mun okkur ganga vel.“
benedikt@mbl.is
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014