Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Side 17
20.9. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
svo mikið að gera,“ segir Telma
en leggur nú áherslu á að ná sjö
tíma svefni.
Sár sem ekki greru
Í febrúar kom bakslagið. „Allt er
þegar þrennt er, ætli þetta sé þá
ekki síðasti sjúkdómurinn,“ segir
Telma og glottir út í annað. Hún
fékk sár á ökklann sem greri
ekki. „Ég fékk rauða spjaldið
beint í andlitið og andlegt sjokk í
leiðinni. Sárið byrjaði sem lítil
bóla og ég hélt að þetta væri
skordýrabit en svo opnaðist það
og stækkaði og dreifði sér.
Eftir sýklameðferð, stera-
meðferð og nokkrar lækn-
isheimsóknir kom í ljós að þetta
var ólæknandi sárasjúkdómur. Ég
mátti ekki fara í sund á meðan
þetta var opið og sýkt sár. Lækn-
irinn tilkynnti mér að það gæti
tekið 4-12 mánuði fyrir þessi sár
að gróa, kannski greru þau aldrei.
Það kom auðvitað upp í huga
minn að þetta væru þá endalokin í
þríþraut. Við tóku erfiðustu æfing-
arnar á árinu, æfingar í að halda
andlegri heilsu, missa mig ekki í
neikvæðni, vera lifandi og gera vel
það sem ég gat gert og með bros
á vör, en ég trúi því að brosið
hafi lækningarmátt. Þremur mán-
uðum seinna, eða í maí, keppti ég
svo í fyrstu þríþrautarkeppni sum-
arsins en mesti undirbúningurinn
var að finna leið til að loka sár-
unum með umbúðum og stera-
kremi. Ég var þarna að taka smá
áhættu en mér fannst hún þess
virði,“ segir Telma en var svo
heppin að í lok júní fékk lækn-
irinn hennar leyfi fyrir nýju lyfi
sem nefnist Remicade. Sárin lok-
uðust fljótt og Telma endurheimti
heilsuna en hún fer á 8 vikna
fresti upp á spítala til að fá lyfið í
æð. „Mér líður eins og ég sé að
endurfæðast,“ segir hún alsæl.
Sjúkdómarnir kannski
kveikjan
Telma segir að það að greinast
með þessa sjúkdóma sé ákveðið
verkefni og hún láti þá ekki
stoppa sig, heldur leyfi hún þeim
að lifa með sér í sátt. „Veikindin
voru kannski kveikjan að því að
ég byrjaði að æfa Þríþraut. Mig
vantaði ró, hugarró,“ segir hún og
blaðamaður verður eitt stórt
spurningarmerki og finnst það að
æfa fyrir járnmann ekki beint
tengjast kyrrð og ró. „Það eru
æfingarnar í kringum þetta, þú
ert að synda í vatninu með þínum
hugsunum, hjóla um nátturuna og
hlaupa,“ segir hún brosandi og út-
skýrir að það er ekkert áreiti á
meðan, bara fegurð og súrefni
beint í æð.
Járnmaðurinn er 4. október í
Calella í Barcelona og því stuttur
tími til stefnu en það eru 25
manns sem fara héðan. „Þetta er
örugglega heimsmet miðað við
höfðatölu,“ segir Telma en þær
eru aðeins þrjár konurnar í þess-
um hópi. Hópurinn fer utan viku
fyrr til að venjast loftslaginu.
„Það verða smá viðbrigði að
keppa í hitanum. Maður er nú
vanur roki og rigningu og alls
konar aðstæðum. Ég hef verið við
það að bugast, ég viðurkenni það
alveg. Kannski búin að hjóla í tvo
tíma frá heimilinu í sól og blíðu
og svo skellur á rok, rigning eða
jafnvel snjókoma og þá á eftir að
hjóla heim en þetta herðir mann
um leið,“ segir hún ákveðin.
Hefur aldrei hlaupið heilt
maraþon
Telma hefur keppt þrisvar í hálf-
um járnmanni og líkaði það mjög
vel. Hún segist alveg treysta sér í
heilan járnmann en kvíðir þó
hlaupinu. „Það verður erfiðast. Ég
hef bara einu sinni hlaupið meira
en hálft maraþon. Það var núna í
Reykjavíkurmaraþoni. Þá hljóp ég
hálft maraþon í keppninni og
hljóp svo heim, þannig að ég náði
35 kílómetrum,“ segir hún og
svarar þegar spurt hvernig henni
hafi liðið eftir það: „Síðustu fimm
kílómetrarnir voru mjög erfiðir.
Vöðvarnir og þolið í góðu lagi en
hásinin, ökklinn, nárinn og mjaðm-
irnar öskruðu á hjálp,“ segir hún
og hlær. „Í heilum járnmanni er
endað á hlaupinu eftir að hafa
hjóla 180 km, það er ekki auðvelt
að stökkva af hjólinu og hlaupa af
stað svo þetta verður TÖFF,“ seg-
ir hún og blaðamaður samsinnir
því og dæsir.
Sigurvíma þegar
komið er í mark
„Ég er oft spurð að því hvað fái
mig eiginlega til að gera þetta,“
segir Telma. „Er þetta ekki of
erfitt? Ertu ekki of veik? Fer ekki
allur þinn tími í æfingar? Auðvitað
er þetta jafn erfitt og ég vil hafa
þetta, ég stjórna tímanum sjálf
sem ég eyði í æfingar. Mitt val er
að æfa, aðrir velja 4-8 tíma
djamm um helgar og sumir liggja
yfir sjónvarpinu. Við erum aldrei
of veik til að gera það sem við
þráum. Það koma dagar þar sem
ég kemst ekki fram úr rúminu og
það koma vikur þar sem ég get
ekkert æft. Þannig er nú bara líf-
ið hvort sem ég æfi þríþraut eða
ekki. Það kemur upp í huga mér í
hverri keppni hvað lífið sé dásam-
legt, hvað ég megi vera stolt og
þakklát að hafa heilsu til að æfa
og hvað það sé gaman að tilheyra
einhverju og stunda þá íþrótt sem
mér finnst skemmtileg. Það situr
líka lítill svartur púki á öxlinni
minni og hvíslar í eyrað mitt þeg-
ar ég er orðin þreytt í keppni,
segir mér að hætta, ég sé þreytt,
þetta sé of mikið, ég þurfi ekki að
klára. En það er alltaf eitthvað
sem fær mig til að klára. Það er
þessi tilfinning þegar ég kem í
mark. Þessi sigurvíma. Mér finnst
gott að finna sigur fyrir sjálfa
mig,“ segir hún.
Morgunblaðið/Ásdís
* Það situr líka lítill svartur púki áöxlinni minni og hvíslar í eyraðmitt þegar ég er orðin þreytt í keppni,
segir mér að hætta, ég sé þreytt, þetta
sé of mikið, ég þurfi ekki að klára. En
það er alltaf eitthvað sem fær mig til að
klára. Það er þessi tilfinning þegar ég
kem í mark. Þessi sigurvíma.
Í íþróttakeppni er nauðsynlegt að vera undirbúinn andlega jafnt sem
líkamlega. Forðastu að ofhugsa um líkamsformið í vikunni fyrir
keppni. Segðu við sjálfan þig að líkaminn sé vel þjálfuð vél og muni
standa sig. Láttu ekki aðra trufla þig, einblíndu á þig í keppninni.
Að temja hugann fyrir keppni„Ef þú hefur ekki sjálfstraust
finnurðu alltaf leið til að vinna
ekki.“
Carl Lewis
YogaMoves eru opnir jóga-, dans-
og hugleiðslutímar með skífuþeyti
á Dansverkstæðinu Skúlagötu 30 á
fimmtudagskvöldum.
YogaMoves er nýstárleg aðferð
við að blanda saman jóga, dansi og
hugleiðslu með kraftmiklum stöð-
um og dansbrjálæði í bland. Skífu-
þeytir er á staðnum í hverjum tíma
en hugmyndin er að tónlistin hjálpi
til við að búa til flæðandi hreyfingar
og losa um hömlur.
Í fyrstu er tónlistin seiðandi og
afslappandi en þegar líður á tímann
hækkar í tónlistinni og bassinn
verður meira áberandi. Mælst er til
þess að þátttakendur, sem geta
verið á öllum aldri, sleppi tökunum,
noti jógahreyfingar til að finna
tengsl við líkamann og gleymi sér í
dansinum. Að lokum er boðið upp
á hugleiðslu og slökun.
Tíminn hefst kl. 20 en húsið er
opnað kl. 19.30 og mælst er til þess
að fólk mæti snemma. Dansinn
dunar í um tvær klukkustundir.
Stakur tími kostar 2.000 krónur en
fjögurra skipta kort kostar 6.000
krónur.
YogaMoves á Dansverkstæðinu er
fyrir alla sem vilja losa um hömlur.
Jóga og dans á
fimmtudögum
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
TIMEOUT
- FÁGUĐ HÖNNUN OG ÞÆGINDI SAMEINUĐ Í E INUM STÓL -
STÓLL + SKEMILL
kr. 374.900