Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Blaðsíða 31
20.9. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31 Um næstu helgi, laugardaginn 26. september, mun Borgarbókasafnið í Spönginni standa fyrir bingói fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Þátttaka er ókeypis og vinn- ingar veglegir. Bingóið stendur frá kl. 14-16. Fjölskyldubingó*Öll börn eru listamenn. Vandamálið erhvernig skal varðveita listamanninn íþeim þegar þau eldast. Pablo Picasso Fjölskyldumeðlimir eru: Erla Tryggvadóttir, viðskiptastjóri á Brandenburg auglýsingastofu, Finnur Sigurðsson, vörustjóri hjá Lýsi, og Tryggvi Hrafn Finnsson, eins árs. Svo eru það stjúpsynirnir tveir – Kári Freyr Finnsson, 10 ára snillingur, og Kristinn Finnsson, 17 ára menntskæl- ingur. Skemmtilegast að gera saman utandyra? Okkur finnst skemmtilegast að fara saman í göngu- túra og njóta þess að vera saman utandyra. Róló kem- ur sterkur inn um þessar mundir, sérstaklega hjá yngsta fjölskyldumeðliminum. Bestu stundirnar heimavið? Okkur finnst dásamlegt að kúra öll saman í einni hrúgu í sófanum, með poppskál og góða barnamynd. Yfirleitt sofna ég nú samt, en það er nú önnur saga. Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Okkur finnst gaman að elda góðan mat – en sá mat- ur sem er í uppáhaldi hjá okkur er heitt slátur. Það slær í gegn hjá öllum, nema kannski unglingn- um. Annars borðum við mikinn fisk á heimilinu og okkur finnst nauðsynlegt að fá okkur fisk tvisvar til þrisvar í viku. Tónlistin sem allir fíla? Huggulegustu morgn- arnir einkennast af ný- bökuðu brauði, ný- uppáhelltu kaffi og djassi. Við eigum dásamlegar stundir um helgar og þá verður djassinn alltaf fyrir valinu. Gömlu brýnin Ella Fitzgerald, Miles Davis, Duke Ellington, Billie Holiday og Louis Armstrong meðal annarra fara alltaf á fóninn. Svo eru barnalögin farin að hljóma á heimilinu og koma sterk inn. Lykillinn að góðri kvöldstund? Að húsmóðirin, bóndinn og krakkakrúttin séu öll saman. Borða góðan mat. Hlæja og spjalla yfir kvöldmatnum. Eiga góðar og eftirminnilegar stundir. Hlátrasköll og hamingja eru lykillinn að góðri kvöld- stund. EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR Kaffi, nýbakað og djass um helgar Ævintýraland Kringlunni hefur í mörg ár boðið upp á barnaafmæl- ishald, ætlað börnum frá 3-9 ára. Miðað er við tveggja klukkustunda veislu og að fjöldinn sé á bilinu 8-24 börn. Afmælisgestir leika sér í Ævintýralandi en hafa líka aðgang að sér afmælisherbergi þar sem foreldrar geta annaðhvort komið með eigin veitingar eða pantað þær frá nokkrum veitingastöðum á Stjörnutorgi í gegnum Ævintýraland. Verð án veitinga er 1.000 krónur fyrir hvert barn og svo fer það eftir gerð veitinga hvað þær kosta sem er frá 300 upp í 685 krónur séu þær pantaðar. Ævintýraland fyrir yngri kynslóðina Afmæli ökuþóra Árbæjarsafn býður afmælishópum upp á að halda barnaveislu í leik- fangasýningu safnsins. Innifalið er aðgangur að sýningunni og leiksvæðinu í tvær klukkustundir og kostar það 1.800 krónur á barnið þar sem gert er ráð fyrir að hópurinn sé að lágmarki tólf manns og að hámarki tuttugu. Hægt er að kaupa veitingar hjá safninu, á borð við pönnukökur, skonsur, heitt kakó og skúffuköku. Sögulegt afmæli Nokkur bíóhús í bænum bjóða upp á að halda afmæli í bíóinu. Verð er afar breytilegt eftir því hvort myndir eru bannaðar og hvaða veitingar er boðið upp á. Sam- bíóin, Bíó Paradís og Smárabíó bjóða upp á ákveðna afmælispakka sem má kynna sér á heimasíðum bíóhúsanna. Bíóafmæli Hægt er að halda barnaafmæli á tveimur skautasvellum í höfuð- borginni, annars vegar í Skauta- höll Reykjavíkur í Laugardal og hins vegar í Egilshöll. Í Egilshöll er boðið upp á pakka með tveimur pítsu- sneiðum, drykk og aðgangi að skautasvellinu á 1.500 krónur á mann með skautum. Án skauta er verðið 1.250 krónur. Í Skautahöll Reykjavíkur kost- ar pakki með tveimur pítsasneiðum, drykk og aðgangi að skautasvellinu 1.650 krónur með skautum eða 1.450 krónur án skauta. Vilji fólk sjá um veitingarnar sjálft er verðið 1.000 krónur á gest. Barnaafmælið á skautum Go-kart-brautin í Garðabæ býður afmælisbörnum upp á að halda veisluna á staðnum en fólk þarf þó að koma með veitingar með sér eða panta. Að- staða er til að snæða þar og rúmar hún allt að 40 manns. Svokallað afmæl- istilboð hljóðar upp á tvær níu mínútna ökuferðir á mann og kostar 4.500 á hvern afmælisgest. Veitingaaðstaðan er staðsett þannig, bak við gler, að hægt er að skipta hópnum upp og leyfa öðrum helmingnum að snæða meðan hinn keyrir. Afmælispakkinn er ætlaður börnum á aldrinum 10-16 ára. Mundu eftir súpukortinu FR Í súp a d ag sin s Súpukort Austurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi • Suðurveri Sími 533 3000 bakarameistarinn.is Velkomininn í hlýjuna í súpu dagsins Hægt að fá súpu í brauðkollu eða í skál. Súpu dagsins sérðu á Facebook síðunni okkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.