Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Blaðsíða 34
Tíska Beckham-börnin vilja boltann AFP *Victoria Beckham, sem sýndi sumarlínu tískuhúss síns á tískuvikunni í NewYork fyrr í vikunni, greindi frá því í viðtali við Good Morning America aðhún hefði ekkert á móti því ef eitt af fjórum börnum hennar myndi erfaáhuga móður sinnar á tísku. Eins og kunnugt er er eiginmaður Victoriu fót-boltagoðsögnin David Beckham og segir hún syni þeirra þrjá hafa gríðar-legan áhuga á fótbolta. Í viðtalinu greindi Victoria jafnframt frá því að dóttirhennar, Harper, fjögurra ára, elskaði að setja á sig farða og leika sér með skó móður sinnar en hún segir Harper þó vilja spila fótbolta. „Að heyra hana segja þetta var eins og að fá rýting í hjartað,“ útskýrði tískudrottningin. H vernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Ég hef alltaf klæðst svörtu mjög mikið. Fataskápurinn er að mestu svartur og er ég orðin ansi fær í að stinga hendinni blindandi inn í skáp og finna flíkina mína eftir snertingu. Ég er mjög nýtin og reyni að nota fötin mín sem allra lengst. Ég reyni að fjárfesta sem mest í sterk- um og meiri klassafötum ef ég hef tök á. Ég verð meira og meira vör við þessa gífurlegu blindu neyslu sem gengur á í tískuiðnaðinum og er ávallt að skoða nýjar leiðir til að end- urnýja, endurvinna og endurhanna föt. Áttu þér uppáhaldshönnuð? Ég ber gríðarlega mikla virðingu fyrir íslenskum fatahönn- uðum. Við Sólveig systir vorum svo heppnar að fá að vera meðal bestu hönnuða Íslands árið 2010 við stofnun Kiosk sem varð einmitt 5 ára 5. september síðastliðinn. Ég á nokkra gim- steina eftir Hildi Yeoman, Eygló og Helicopter sem ég nota mikið. Nýja línan hennar Hild- ar, Flóra, lofar mjög góðu. Ef við nefnum erlenda hönnuði þá hef ég alltaf haldið mikið upp á Balenciaga og ég tengdi ávallt vel við dökku hliðina hans Alexanders McQueen heitins. Hvert er þitt uppáhaldstískutrend fyrir veturinn? Risastórir treflar og varalitir fyrir mis- munandi tækifæri! Það er hægt að láta allt líta vel út með flottum varalit. Það er allavega mitt „go-to look“ sama hvað gengur á. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að fata- kaupum? Hugsaðu vel um neyslu þína, ekki kaupa þér óþarfa flíkur. Hugsaðu „quality not quantity“. Vertu meðvituð um hvaðan fötin koma og hvar þau eiga eftir að enda. Og síðast en ekki síst: Klæddu þig eftir veðri! Ekki vera blaut í gegn og skjálfandi á beinunum labbandi niður Laugaveginn, það er bara svo langt frá því að vera smart. Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgihlut myndirðu kaupa? Ég er í þann mund að kveðja fallega leðurjakkann minn sem ég hef nánast klæðst upp á hvern dag síðan 2007. Rennilás- inn hefur ekki virkað síðan 2009, báðar axlirnar eru rifnar, fóðrið nánast tætt í spað og saum- arnir alveg að fara að gefa sig. Það er svona þegar maður tekur ástfóstri við einstakar flíkur, en allt tekur víst enda. Hann hefur þjónað mér vel. Að því sögðu þá hugsa að ég myndi fjárfesta í góðum leðurjakka. Hvað kaupir þú þér alltaf þó að þú eigir nóg af því? Varaliti. En það er nánast eina snyrti- varan sem ég kaupi mér. Ég hef aldrei verið mikill förðunarsérfræðingur, sem dæmi þá tek- ur það mig góðan hálftíma og margar róandi öndunaræfingar að setja á mig eyeliner. Svo að ráðið mitt er svona: Smá kinnalit til að maður líti út fyrir að vera lífs en ekki liðinn (sér- staklega í öllum svörtu fötunum) og varalit (eða litaðan varasalva) til að gefa brosinu „boost“ og draga fram augun. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Ég hef aldrei stillt mig inn á einhvern einn. Ég finn mér aðallega innblástur á street-style- síðum og á Pinterest. Mér finnst yndislegt að sitja í rólegheitum á kvöldin með tebolla og „pinna“ innblástur og draumóra. Hverju myndir þú aldrei klæðast? Útvíðum buxum. Það á bara alls ekki við mig. Áttu þér uppáhaldsflík? Þessa dagana er það trench-kápan mín. Ég fann hana uppi á háa- lofti fyrir 2 árum. Mamma fylltist nostalgíu þegar ég kom með hana niður og sagði mér að hún hefði keypt hana í EVU fyrir fyrstu launin sín þegar hún var 18 ára gömul. Það var mikið lagt á sig fyrir þessa kápu og það er góð tilfinning að gefa þessari fallegu flík annað líf. Hvaðan sækir þú innblástur? Ég fæ að mestu innblástur á götum Reykjavíkur held ég bara. Ég er með heldur mínimalískan stíl; fallegar „silhouettur“, úthugsaðir saumar og lítil smáatriði í flíkum hafa alltaf heillað. Svo er það auðvitað blessað veðrið sem ræður mér nán- ast á hverjum degi. Ég fer út að ganga á morgnana og eftir vinnu með Ninju, hundinn minn, og það er fátt sem ég kann betur að meta en að vera klædd eftir veðri, hvort sem það er sólarsamba eða snjóstormur. ALLT LÍTUR VEL ÚT MEÐ FLOTTUM VARALIT Edda segist vera nýtin og hún reynir að nota fötin sín sem allra lengst og reynir að fjárfesta sem mest í sterkum og meiri klassafötum. Morgunblaðið/Eggert Innblástur frá göt- um Reykjavíkur EDDA GUÐMUNDSDÓTTIR LAUK NÝVERIÐ MASTERSNÁMI Í HÖNN- UN Í GAUTABORG OG STARFAR NÚ HJÁ BORGARBÓKASAFNI/ MENNINGARHÚSUM REYKJAVÍKUR SEM HÖNNUÐUR OG VERK- EFNASTJÓRI EN SAMHLIÐA ÞVÍ VINNUR HÚN AÐ NÝRRI HUGMYND FYRIR FATAHÖNNUÐI SEM HAFA ÁHUGA Á AÐ TAKA ÞÁTT Í VERK- EFNI MEÐ UMHVERFIS- OG VISTVÆNNI KOSTUM. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Edda ætlar að klæð- ast risastórum trefl- um í vetur. Varalitir poppa uppá heildar- útlitið. Gamli ryk- frakkinn er í uppáhaldi. Flora er nýj- asta lína Hildar Yeoman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.