Skólavarðan - 01.08.2005, Síða 3
3
FORMANNSPISTILL
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 5. ÁRG. 2005
Símenntun 2005 - 2006
Símenntunarstofnun KHÍ býður sérþekkingu á öllum sviðum uppeldis og mennunar í formi námskeiða, fræðslfunda, vinnustofa, handleiðslu og leshringja.
Jafnréttisfræðsla á unglingastigi - vinnustofa í tengslum við námsefnið Kynlega klippt og skorið
Hamskipti á heimleið, að skilja við vinnuna – námskeið í umsjón Önnu Sigurðardóttur
Upplýsingamiðlun með litum, formum, teikningum og myndum – vinnustofa í umsjón Ásdísar Olsen
Nýjar kenningar og aðferðir er varða uppeldi og menntun - leshringur
Rannsóknir á sviði stærðfræðimenntunar - leshringur í umsjón Jónínu Völu Kristinsdóttur
Sjálfsrækt fyrir uppeldisstéttir - fræðsla og handleiðsla
Tilfinningaleikni fyrir leikskólakennara - hagnýtar aðferðir til að heyra, skilja og virða tilfinningar
Tónlist í skólastofunni – vinnustofa fyrir almenna kennara í umsjón Helgu Rutar Guðmundsdóttur
Áföll í nemendahópnum – fræðslufundur í umsjón Gunnars Finnbogasonar
Framsögn, raddbeiting og munnleg tjáning – vinnustofa
Hamskipti á heimleið, að skilja við vinnuna – námskeið í umsjón Önnu Sigurðardóttur
Leikræn tjáning sem losar um höftin – vinnustofa
Miðlun upplýsinga með litum, formum og myndum – vinnustofa í umsjón Ásdísar Olsen
Námsefnisgerð - vinnustofa í umsjón Ásdísar Olsen
Sjálfsstyrking, sjálfssmat og sjálfsskoðun með aðferðum leiklistar – í umsjón Trausta Ólafssonar
Raddþjálfun og gítarleikur – námskeið í umsjón Sigríðar Pálmadóttur
Tilfinningaleikni fyrir leikskólakennara - aðferðir til að heyra, skilja og virða tilfinningar
Umsjónarkennarinn – námskeið fyrir grunnskólakennara í umsjón Sólveigar Karvelsdóttur
Sjálfsbetrun og starfshæfni
Uppeldis- og menntunarfræði
Að greina mismunandi námsaðferðir (Learning styles) – vinnustofa
Dyslexía með kostum og göllum – námskeið í umsjón Steinunnar Torfadóttur
Einstaklingsmiðað nám og kennsla í blönduðum bekk – námskeið eða handleiðsla
Námsmat – námskeið í umsjón Meyvants Þórólfssonar og Jóhönnu Karlsdóttur
Nýjar kenningar og aðferðir er varða uppeldi og menntun - leshringur
Sjálfsmat – námskeið eða leiðsögn í umsjón Steinunnar Helgu Lárusdóttur
Sjálfsbetrun og starfshæfni
Hjallastefnan – fræðslufundir í umsjón Margrétar Pálu Ólafsdóttur
Leikbrúðan sem námsgagn – vinnustofa í umsjón Jóhönnu Fjólu Einarsdóttur
Leiklist í kennslu gefur marga möguleika – námskeið í umsjón Ásu Helgu Ragnarsdóttur
Myndir, ljóð og tónar – námskeið í umsjón Kristínar Björnsdóttur
Persónubrúður í vinnu með börnum – vinnustofa í umsjón Hönnu Ragnarsdóttur.
Lesið í skóginn og tálgað í tré – námskeið í umsjón Brynjars Ólafssonar
Tónlist í skólastofunni – vinnustofa fyrir almenna kennara í umsjón Helgu Rutar Guðmundsd.
Teymisvinna í fjölfaglegu starfsumhverfi – námskeið í umsjón Jónu G. Ingólfsdóttur
Fjölmenning og margbreytileiki
Fjölmenningarleg kennsla: CLIM aðferðin - námskeið í umsjón Hönnu Ragnarsdóttur
Geðraskanir og þroskaskerðing – námskeið í umsjón Halldórs Kolbeinssonar
Íslenskukennsla fyrir nýbúa – námskeið í umsjón Önnu Soffíu Óskarsdóttur og Sigríðar Ólafsdóttur
Lífsgæði og mál í starfi með fólki með alvarlega fötlun – námskeið í umsjón Önnu Soffíu Óskarsd.
Margbreytileiki í skólastarfi – fræðslufundir eða vinnustofa
Trúarbrögð og siðfræði– námskeið í umsjón Hönnu Ragnarsdóttur
Að ná tökum á tilverunni – vinnustofa í umsjón Erlu Kristjánsdóttur og Aldísar Yngvadóttur
Að vaxa úr grasi – vinnustofa í umsjón Erlu Kristjánsdóttur og Aldísar Yngvadóttur
Fjölmiðlar og skólastarf – námskeið í umsjón Stefáns Jökulssonar
Heimspekileg samræða á unglingastigi – námskeið í umsjón Sigurðar Björnssonar
Jafnréttisfræðsla á unglingastigi - vinnustofa í tengslum við námsefnið Kynlega klippt og skorið
Lífsleikni sem liður í öllu skólastarfi – vinnustofa
Tilfinningaleikni – námskeið í umsjón Valgerðar Ólafsdóttur
Lífsleikni
Evrópska tungumálamappan (ETM) – námskeið í umsjón Auðar Torfadóttur og Hafdísar Ingvars.
Málþjálfun fyrir enskukennara – námskeið
Notkun upplýsingatækni í tungumálakennslu – námskeið
Erlend tungumál
Gerbakstur – námskeið í umsjón Stefaníu Valdísar Stefánsdóttur
Gómsætir aðventu- og jólaréttir – námskeið í umsjón Stefaníu Valdísar Stefánsdóttur
Nýi heilsupýramídinn – námskeið.
Heimilisfræði
Lestur og lesskilningur – námskeið í umsjón Guðmundar B. Kristmundssonar
Lifandi frásagnir – vinnustofa í umsjón Baldurs Hafstað
H.C. Andersen og ævintýrin hans – námskeið í umsjón Kristjáns Jóhanns Jónssonar
Orðhlutaleið í stafsetningarkennslu – námskeið í umsjón Baldurs Sigurðssonar
Vísnagerð og bragfræði – vinnustofa í umsjón Ragnars Inga Aðalsteinssonar
Gítarkennsla fyrir byrjendur - námskeið í umsjón Hannesar Guðrúnarsonar
Hljóðkerfisvitund hjá börnum (Hljóm-2) – í umsjón Ingibjargar Símonard. og Jóhönnu Einars.
Myndaskoðun með börnum – námskeið í umsjón Svölu Jónsdóttur
Silfursmíði i grunnskóla – námskeið í umsjón Gísla Þorsteinssonar
Tónlist og hreyfing – vinnustofa fyrir tónmenntakennara
Þæfing úr íslenskri ull – námskeið í umsjón Hallfríðarr Tryggvadóttur
Bylgjur, ljós og hljóð – námskeið í umsjón Hauks Arasonar
Nemendamiðuð náttúrufræðikennsla – námskeið í umsjón Hafþórs Guðjónssonar
Vindorka og endurnýtanleg orka – námskeið í umsjón Sørens Cruysbaggers og Eriks Jørgensens
Íslandssagan skoðuð útfrá unglingamenningu hvers tíma (Í fullorðinna tölu) – vinnustofa.
Kennslufræði samfélagsgreina – vinnustofa eða námskeið.
Konur og stjórnun menntastofnana – vinnustofa.
Lýðræðislegir stjórnunarhættir í skólastarfi – í umsjón Steinunnar Helgu Lárusdóttur og Kristínar Karlsdóttur
Einingakubbar og stærðfræði í leikskólastarfi – námskeið í umsjón Jónínu Völu Kristinsdóttur
Efnisþættir í stærðfræði – námskeið í umsjón Meyvants Þórólfssonar
Leshringur um rannsóknir á sviði stærðfræðimenntunar – námskeið í umsjón Jónínu Völu Kristinsdóttur
Námsmat í stærðfræði – námskeið í umsjón Jónínu Völu Kristinsdóttur
Stærðfræðikennsla á unglingastigi – námskeið í umsjón Guðbjargar Pálsdóttur og Guðnýjar Gunnarsdóttur
Gerð kennsluvefs - námskeið í umsjón Kristínar Helgu Guðmundsdóttur
Publisher (umbrotsforrit) í skólastarfi - námskeið í umsjón Kristínar Helgu Guðmundsdóttur
Tölvunámskeið fyrir leikskólakennara - námskeið í umsjón Kristínar Helgu Guðmundsdóttur og Önnu Hreinsd.
Vefsíðugerð í FrontPage - námskeið í umsjón Kristínar Helgu Guðmundsdóttur
Tölvu- og upplýsingatækni
Stærðfræði
Stjórnun
Samfélagsgreinar
Náttúruvísindi
List- og verkgreinar
Tölum saman – námskeið um samskipti í kennslustofunni í umsjón Þórunnar Blöndal
Hljóðkerfisvitund hjá börnum (Hljóm-2) – í umsjón Ingibjargar Símonardóttur og Jóhönnu Einarsdóttur
Íslenska og bókmenntir
Íslenska lifandi mál – námskeið í umsjón Þórunnar Blöndal
simennt.khi.is
Allar nánari upplýsingar eru vef Símenntunarstofnunar KHÍ
Hafið samband við Símenntunarstofnun KHÍ
og fáið námskeið sérsniðin að ykkar þörfum
Símenntunarstofnun Kennaraháskóla Íslands
simennt@khi.is Bolhollt 6 105 Reykjavík
Matreiðsla án sykurs og hveitis (niður með kolvetnin) – námskeið
Nýtt og spennandi
563 3980 Ásdís Jónsdóttir fulltrúi – asdis@khi.is
563 4884 Ásdís Olsen verkefnastjóri – ao@khi.is
563 3861 Sólrún Björg Kristinsdóttir forstöðumaður - solrunb@khi.is
Menntamálaráðherra tilkynnti í lok maí sl. þá ákvörðun sína
að fresta gildistöku nýrrar þriggja ára aðalnámskrár fyrir
framhaldsskólann um eitt ár, til ársins 2009. Nemendur sem hæfu
nám í framhaldsskólum haustið 2009 hefðu þá að baki þriggja
ára nám í grunnskóla, samkvæmt breyttri námskrá fyrir það
skólastig, í stað tveggja eins og upphaflega hafði verið gert ráð
fyrir. Framkvæmdaáætlunin um styttingu grunnskólans héldist
hins vegar óbreytt og hæfist haustið 2006. Jafnframt gæfist
lengri tími til að endurmennta grunnskólakennara, en byrjað yrði
á því verkefni nú í haust, til að ljúka endurskoðun á námskrám
skólastiganna og til að vinna nýtt námsefni.
Kennarasambandið hefur markað sér ítarlega stefnu um
styttingu námstímans, 3. þing þess og aðalfundir einstakra
aðildarfélaga sendu frá sér skýrar ályktanir um málið. Lagt er fast
að ráðherra að leggja til hliðar þá skerðingu á námi sem fólgin
er í styttingu námstímans og taka þess í stað upp samstarf við
kennarasamtökin um að bæta inntak og gæði menntunar á öllum
skólastigum, efla sveigjanleika í námi og jafnrétti til náms.
Vaxandi þungi hefur færst í opinbera umræðu um styttinguna
og varnaðarorðum til ráðherra fjölgar. Aðferðirnar við að
stytta námstímann gangi einkanlega út frá þörfum dugmikilla
nemenda en ekki þeirra sem standa ver að vígi. Brottfallið í
framhaldsskólum muni ekki minnka heldur aukast. Núverandi
námsskipan geri nemendum kleift að hraða námi sínu. Dýrmætur
sveigjanleiki og valfrelsi í námi glatist. Nemendur muni ekki verða
betur búnir undir áframhaldandi nám. Bent er á nauðsyn þess að
finna leiðir til að draga úr óhóflegri vinnu margra nemenda með
námi. Spurt er hvernig starfsnáminu muni reiða af. Gagnrýnd
er ofuráherslan á tímarammann í stað þess að skoða inntak og
gæði menntunarinnar. Skilaboð nemenda til ráðherra eru skýr:
Við viljum þetta ekki.
Í umræðu um styttingu námstímans hefur margsinnis
verið bent á mikilvægi þess að efla greinabundna menntun
grunnskólakennara. Upplýsingar frá menntamálaráðuneyti um
menntun þeirra sem kenndu stærðfræði í 8. – 10. bekk grunnskóla
skólaárið 2003 - 2004 sýna að tæp 50% þeirra voru aðeins með
almennt kennarapróf en enga sérhæfingu í stærðfræði.
Ráðuneytið hefur skipulagt 15 eininga viðbótarnám í
stærðfræði fyrir þá kennara sem kenna þá grein í 8. – 10. bekk
grunnskólans í samvinnu við Kennaraháskóla Íslands. Námið
er einkum ætlað þeim sem hafa almennt kennarapróf. Í júní
sl. höfðu rúmlega 50 umsóknir borist um þetta viðbótarnám.
Greinabundin endurmenntun upp á 15 einingar hrekkur skammt.
Þar þarf miklu meira að koma til. Hyggst ráðherra beita sér fyrir
því? Hyggst ráðherra skapa starfandi kennurum viðunandi skilyrði
til að stunda þetta viðbótarnám, s.s. með því að veita þeim afslátt
af kennsluskyldu á meðan á því stendur?
Kennsla samkvæmt nýrri aðalnámskrá fyrir grunnskólann á að
hefjast eftir eitt ár. Á þeim skamma tíma sem er til stefnu þarf
að semja og gefa út nýtt námsefni. Ætlar ráðherra að beita sér
fyrir þeim fjárframlögum til námsefnisgerðar sem þar verða að
koma til?
Kennarasambandið ákvað að draga fulltrúa sína út úr öllu
samstarfi við ráðuneytið um miðjan júní sl. á meðan ráðherra
daufheyrðist við öllum tilmælum um að ná fundum með henni. Í
kjölfarið lýsti ráðherra yfir vilja sínum til þess að bæta samskiptin
við kennarasamtökin. Nú stendur upp á ráðherra að sýna viljann
í verki.
Aðalheiður Steingrímdsdóttir
Fyrir hvaða nemendur, ráðherra?
Aðalheiður Steingrímdsdóttir