Skólavarðan - 01.08.2005, Side 4
Leikskólakennarar eru
nútímaleg stétt sem þróar sig í starfi 8
Viðtal við Björgu Bjarnadóttur formann Félags leikskólakennara.
Björg segir frá baráttumálum leikskólakennara og lýsir framtíðarsýn þeirra.
Framkvæmd nýs kjarasamnings fyrir framhaldsskólann 12
Stjórn Félags framhaldsskólakennara sendir pistil frá sér um framkvæmd hins
nýgerða kjarasamnings félagsins og launanefndar ríkisins.
Athyglisbrestur með eða án
ofvirkni meðal framhaldsskólanema 14
Sigrún Harðardóttir kennari, náms- og starfsráðgjafi og félagsráðgjafi MSW
við Menntaskólann á Egilsstöðum segir frá tilraunaverkefni sem fólst í því að
veita nemendum með ADHD sérstakan stuðning.
Uppi á Svalbarða 16
Björg Bjarnadóttir og Eiríkur Jónsson segja frá vorfundi stjórnar Norrænu
kennarasamtakanna sem haldinn var á Svalbarða en þar er skólinn mið-
punktur samfélagsins.
Hægfara höfðingjar 18
Fjölgreinadeild er nýjung sem Grunnskólar Hafnarfjarðar bjóða nemendum í
9. og 10. bekk. Umsjónarmaður hennar Sveinn Alfreðsson smíða- og sérken-
nari var tekinn tali.
Umdeild fortíð - kennarar kalla eftir jafnvægi 20
Margrét Gestsdóttir, sögukennari Fjölbrautaskólanum við Ármúla, segir frá
EUROCLIO, Evrópusamtökum sögukennara en eitt af markmiðum þeirra er
að leitast við nota aðferðir í kennslu sem örva gagnrýna skoðun á umdeildri
fortíð.
Eru allir kennarar eins? 24
Helgi Grímsson, skólastjóri Sjálandsskóla í Garðabæ, skrifar um samkmulag
sem Sjálandsskóli og Garðabær gerðu í febrúar samkvæmt bókun 5 í
nýgerðum kjarasamningi KÍ og LN.
Verslunarfagnám tekið upp í Verzlunarskóla Íslands 26
Hildur Friðriksdóttir er verkefnastjóri nýs verslunarfagnáms í VÍ. Hún segir
m.a. að þar með hafi upphafleg markmið skólans verið endurvakin. En haldið
er upp á aldarafmæli VÍ um þessar mundir.
Formannspistill 3
Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, ritar.
Gestaskrif 5
Svanhildur Óskarsdóttir, fræðimaður á Stofnun Árna Magnússonar og
stjórnarmaður í Röddum - samtaka um vandaðan upplestur og framsögn,
skrifar um Stóru upplestrarkeppnina og fleira sem lýtur að því að yfirvinna
sviðsskrekk.
Smiðshöggið 30
Ólafur Arngrímsson skólastjóri Stórutjarnaskóla skrifar um sérstöðu lítilla
samfélaga og þær leiðir sem Samtök fámennra skóla hafa farið til að leysa
vandmál sem þau glíma við.
Að auki
Fréttir af mönnum og málefnum sem varða kennara á öllum skólastigum.
Forsíðan
Forsíðumyndina tók Kristín Bogadóttir af Björgu Bjarnadóttur
formanni Félags leikskólakennara.
Útgáfustefna
Norrænu kennarafélögin gefa öll út fjölbreytt efni í þágu félags-
manna sinna. Í vor komu nokkrir starfsmenn upplýsingasviða nor-
rænna kennarafélaga saman til fundar og miðluðu hugmyndum
sínum og reynslu af útgáfumálum. Öll kennarasamböndin gefa
út metnaðarfull blöð eða tímarit, meira að segja þau fámenn-
ustu eins og það grænlenska. Öll félögin halda úti heimasíðum
og ýmislegt annað efni er gefið út til að fræða kennara um rétt-
indi sín og skyldur. Hér má nefna hluti með merki félaganna,
upplýsingabæklinga og til eru dæmi um auglýsingaherferðir til
að vekja athygli á mikilvægi kennarastarfsins.
Útgáfusviðin eru fjárfrek og var samdóma álit fundarmanna
að það væri óhjákvæmilegt. Útgefið efni, hvort sem það er heima-
síða, blað eða bæklingur, er mikilvægt tæki til að hafa áhrif. En
hvers konar áhrif er mikilvægast að hafa og á hvern skal hafa
áhrif? Útgáfa má aldrei vera stefnulaus og handahófskennd. Því
er mikilvægt að móta stefnu um hvert skuli vera markmiðið með
því sem gefið er út og hvaða áhrifum eigi að ná með útgáfunni.
Dönsku og sænsku félögin ganga út frá fyrirfram ákveðinni
útgáfustefnu og allt sem þau gefa út er hugsað innan ramma
hennar.
Kynni mín af kennurum á öllum skólastigum þetta ár sem
ég hef ritstýrt Skólavörðunni hafa verið sérlega ánægjuleg. Ég
hef komist að því að í öllum aðildarfélögum KÍ er metnaðarfullt
fagfólk sem ber hag nemenda sinna heilshugar fyrir brjósti. Það
er ötult við að kynna sér nýjungar og fara ótroðnar slóðir. Fjöl-
miðlar á Íslandi hafa því miður ekki mikinn áhuga á skólamálum.
Þess vegna er Skólavarðan og allt annað sem Kennarasambandið
gefur út vopn til að styrkja félagsmenn inn á við og út á við.
Í Skólavörðunni núna er fróðlegt viðtal við Björgu Bjarna-
dóttur formann Félags leikskólakennara. Hún segir m.a. að eitt
brýnasta verkefni KÍ sé að byggja upp sterka sjálfsmynd kennara.
Ég er henni sammála og tel að útgáfustefna KÍ gæti haft það að
leiðarljósi.
Megi komandi skólaár verða öllum kennurum og nemendum
uppbyggilegt og gott. Með kærri þökk fyrir samstarfið.
Guðlaug Guðmundsdóttir
4
LEIÐARIEFNISYFIRLIT
FASTIR LIÐIR
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 5. ÁRG. 2005
GREINAR
Ritstjóri: Guðlaug Guðmundsdóttir gudlaug@ki.is
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is
Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir sigridur@ki.is / sími 595 1115
Hönnun: Zetor ehf.
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Svansprent
Skólavarðan, s. 595 1118 (Guðlaug) og 595 1119 (Helgi).
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík