Skólavarðan - 01.08.2005, Page 18
18
SKÓLAHEIMSÓKN
Fjölgreinadeild er nýjung sem Grunn-
skólar Hafnarfjarðar bjóða nemendum í
9. og 10. bekk í grunnskólum bæjarins.
Deildin býður upp á breyttar áherslur í
skólakerfinu á þann hátt að meira er gert
út á verklega þáttinn en í hefðbundnum
skóla. Nemendur vinna ýmis óhefðbundin
verkefni og er fræðunum gjarnan fléttað
inn í þau. Í gamla Lækjarskóla er aðstaða
Námsflokka Hafnarfjarðar notuð eins á
þarf að halda fyrir ýmiss konar verklega
kennslu, s.s. heimilisfræði, smíðar og
myndmennt.
Deildin var sett á laggirnar sl. haust
og er umsjónarmaður hennar Sveinn
Alfreðsson smíða- og sérkennari, en hann
er auk þess ökukennari og hefur lokið
námi í stjórnun. Tveir aðrir kennarar komu
að deildinni í vetur, almennur kennari og
stundakennari í myndmennt.
Þriðja júní sl. var haldin sýning á verkum
hægfara höfðingja í Emblu við Strandgötu
í Hafnarfirði. Þar var mikið um dýrðir og
fjölbreyttir og glæsilegir munir til sýnis.
Skólavarðan leit inn og heilsaði upp á
nemendur og kennara sem voru stoltir og
glaðir yfir afrakstri vetrarins.
Helmingur námsins verklegur
Til að komast inn í fjölgreinadeildina
sækja menn einfaldlega um og nefnd fer
Nýtt námsframboð í Hafnarfirði fyrir hægfara nemendur
yfir umsóknirnar og metur hverjir komast
inn. Tveimur árgöngum var kennt saman í
vetur en næsta skólaár stendur til að fjölga
nemendum og skilja 9. og 10. bekk að og
verður hvor árgangur með sína námskrá.
Verklegi hlutinn er helmingur námsins
eða þrettán tímar á viku. Nemendur læra
ensku, íslensku, stærðfræði og umferðar-
fræði. „Svo eldum við mat saman tvisvar
í viku,“ sagði Sveinn. „Við setjumst niður
og ákveðum hvað á að vera í matinn,
helmingurinn af hópnum fer og kaupir
inn, eldar og kallar svo á hina sem eru í
smíðastofu eða tölvu á meðan.
Ég er góðu sambandi við umsjónar-
kennara í heimaskólum nemenda. Við
höfum samband með tölvupósti. Ég fæ
upplýsingar um það sem er að gerast í
bekknum þeirra, til dæmis bekkjarkvöld
og fleira. Næsta vetur eiga nemendur
fastan tíma hjá námsráðgjafa í sínum skóla
og geta þá spjallað. Við ætlum einnig að
auka tengslin við félagsmiðstöðvarnar.
Við erum stöðugt að endurskoða málin
og reyna að gera betur. Ekki má gleyma
félagsþættinum, en við höfum boðið strák-
unum með í það sem við erum að gera,
eins og til dæmis litbolta (paintball).“
Ökukennaramenntun Sveins hefur
nýst mjög vel í deildinni og er tenging
við aðrar greinar. Í vetur gerðu Sveinn
og nemendur hans rannsókn á götuhorni
einu þar sem þeir töldu hve margir notuðu
ljós, belti og stefnuljós og reiknuðu síðan
út prósentur.
Sveinn hefur fastan tíma í töflu þar sem
umferðarlögin eru kennd og nemendur
gátu í framhaldi af því tekið bóklegt
bílpróf. Að sögn Sveins eru nemendur
á þessum aldri farnir að sýna ökunámi
mikinn áhuga.
Mótorhjólasmíði, hirðing hrossa,
kirkjubakstur og bílamálun
Nemendur fá tækifæri til að vinna með
skólanum og mælist það vel fyrir. Gísli L.
Stefánsson, sextán ára, vann til dæmis við
mótorhjólaviðgerðir og gerði upp mótor-
hjól. Hann fékk í hendur gamalt hjól sem
hann pússaði upp og gerði á því margvís-
legar lagfæringar. „Hugmyndin að þessu
kom upp á mótorhjólaverkstæðinu þar
sem ég vann,“ sagði Gísli. „Hjólið var eigin-
lega ónýtt þegar ég fékk það. Ég þurfti að
skipta um grind og það er eiginlega allt
nýtt í því núna. Ég keypti nýja varahluti
og mixaði sumt.“ Gísli sagði að þetta
þætti sér mun skemmtilegra en að liggja
yfir bókum og hann hefði lært eiginlega
Hægfara höfðingjar
Eitt verkefnið var að mæla Fríkirkjuna í Hafnarfirði hátt og lágt og því næst var
bakað líkan af henni. Í tengslum við þá vinnu lærðu menn um ummál, rúmmál,
flatarmál og hlutföll.
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 5. ÁRG. 2005