Skólavarðan - 01.08.2005, Qupperneq 21
21
Á 50 ára afmæli Félags leikskólakennara
árið 2000 voru tveir félagar gerðir að
heiðursfélögum fyrir áratuga framlag
sitt í þágu barna og leikskólastarfs.
Annar þeirra var merkiskonan Þórunn
Einarsdóttir sem lést þann 13. júlí sl. 85
ára að aldri.
Þórunn útskrifaðist frá Uppeldisskóla Sum-
argjafar 1. júní 1948 og var ein af þeim
níu sem skipuðu fyrsta hópinn sem skólinn
útskrifaði. Hún er því óyggjandi einn af
frumkvöðlum í stétt leikskólakennara. Hún
tók virkan þátt í uppbyggingu leikskóla á
vegum Barnavinafélagsins Sumargjafar
í Reykjavík og starfaði alla sína starfsævi
hjá Sumargjöf og Reykjavíkurborg eftir að
borgin tók við rekstri leikskóla. Þórunn var
lengst af leikskólastjóri, síðast í Hagaborg
í 15 ár. Árið1975 tók hún við og mótaði
nýtt starf umsjónarfóstru, sem nú kallast
leikskólaráðgjafi, og gegndi því þar til hún
lét af starfi 1990 eftir 42 ára samfellt starf,
þá sjötug að aldri.
Þórunn lét félagsmál sig varða. Hún
sat í stjórn Sumargjafar í 22 ár. Þá var
hún formaður Fóstrufélags Íslands, sem
nú er Félag leikskólakennara, frá 1968 til
1972. Auk þess sat hún lengi í stjórn og
varastjórn félagsins ásamt því að gegna
mörgum öðrum trúnaðarstörfum. Hún
bar alla tíð hlýjan hug til Félags leikskóla-
kennara og fylgdist vel með starfi félagsins
og málefnum er varða börn og leikskóla
allt til síðasta dags.
Til minningar um Þórunni hefur Félag
leikskólakennara fært Rannsóknasjóði
leikskóla gjöf. Sjóðurinn er ætlaður til að
styrkja rannsóknir í leikskólastarfi.
Björg Bjarnadóttir
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 5. ÁRG. 2005
Uppeldi og menntun
Út er kominn 14. árgangur
tímaritsins Uppeldi og
menntun. Ritið kemur nú í
fyrsta sinn út í breyttri
mynd og er gefið út af
Rannsóknarstofnun KHÍ í
samvinnu við HA og HÍ.
Nýr ritstjóri tímaritsins er
Jóhanna Einarsdóttir dósent
við KHÍ.
Timaritið hefur að geyma
greinar um fræðilegt efni
sem varðar mennta- og uppeldismál, auk greina
um viðhorf til þróunar háskólastigsins.
Nánari upplýsingar um efni tímaritsins má finna á
heimasíðu KHÍ á slóðinni http://www.khi.is
Ritið er hægt að kaupa í Bóksölu kennaranema,
Kennaraháskólanum í Stakkahlíð
eða panta á Rannsóknarstofnun KHÍ í síma 563
3827.
RANNSÓKNARSTOFNUN
KENNARAHÁSKÓLA ÍSLANDS
Þórunn Einarsdóttir
MMinning um heiðursfélaga FL