Skólavarðan - 01.08.2005, Qupperneq 24
24
Sjálandsskóli og samkomulagið
Í Sjálandsskóla verður fjölbreytt kennsla
við hæfi allra nemenda. Einstaklingsmiðuð
kennsla og fjölbreytt samstarf nemenda
eru höfð að leiðarljósi. Kennsla í Sjálands-
skóla er samstarfsverkefni þeirra kennara
sem þar starfa.
Markmið samkomulags Sjálandsskóla
og Garðabæjar var að tryggja vinnuum-
hverfi þar sem grunnskólakennarar vinna
saman að undirbúningi, framkvæmd og
mati á skólastarfi:
• Kennarar séu virkir og ábyrgir þátt-
takendur í stefnumörkun og mótun skóla-
starfs.
• Kennarar beri ábyrgð á framkvæmd
þeirrar skólastefnu sem þeir vinna sam-
kvæmt sem og daglegu skólastarfi.
• Kennarar geti gengið að því sem vísu
að eiga rúmt samráð við samstarfsmenn
sína á hverjum vinnudegi og líti á skólann
sem sinn vinnustað.
Samkomulagið felur m.a. í sér að dag-
legur vinnutími kennara er sambærilegur
við það sem gildir hjá öðrum háskóla-
menntuðum starfsmönnum sveitarfélaga,
þ.e. á bilinu frá kl. 8:00 til 17:00, og innan
þeirra tímamarka er öll vinnuskylda
kennara, samtals 1800 klukkustundir á
ári. Vinnutímaskilgreining samkvæmt
talningu kennslustunda, frímínútnagæslu
o.fl. er felld niður. Skipulags- og símennt-
unardagar eru fimm á skólaárinu og
átján í júní og ágúst. Þessir dagar eru auk
símenntunar nýttir til skipulagningar, þró-
unar og uppgjörs skólastarfs. Ekki er gert
ráð fyrir deildarstjórn í Sjálandsskóla og
því bera kennarar skólans jafna ábyrgð á
skólastarfinu. Mánaðarlaun allra kennara
eru miðuð við launaflokk 241, 4. þrep.
Framhaldsnám er metið til hækkunar á
launum.
Farsæl skólaþróun og sveigjanleiki
Líkur á kulnun í starfi aukast ef starfs-
menn upplifa einsemd í starfi og að þeir
sitji uppi einir með vandamál sín. Til þess
að tryggja farsæla þróun í skólastarfi þarf
starfshópurinn að taka virkan þátt í þró-
unarstarfinu. Því skiptir máli að kennarar
hafi næg tækifæri til samstarfs og sam-
ráðs og lykilatriði í því sambandi eru tími
og aðgengi.
Á flestum vinnustöðum felst sveigjan-
legur vinnutími í því að starfsmenn ráða
hvenær þeir hefja störf á tímabilinu frá kl.
8-9 og ljúka störfum frá kl. 16-17. Svipaða
skilgreiningu má vel útfæra samkvæmt sam-
komulaginu. Ef kennarar vinna stærstan
hluta vinnutímans á vinnustaðnum er það
á margan hátt vinnuvernd. Þegar kennari
tekur stóran hluta af vinnu sinni heim
og blandar henni saman við heimilisstörf
og tómstundir þá er erfitt að skilgreina
hvenær vinnu lýkur. Einnig er hæpið að
tala um yfirvinnu þegar verkefni eru flutt
af dagvinnu á vinnustað yfir á heimili utan
dagvinnumarka. Þannig getur frelsið orðið
að fangelsi.
Ein rökin fyrir einsetningu grunnskólans
Sjálandsskóli og Garðabær gerðu samkomulag í
febrúar samkvæmt bókun 5 í nýgerðum kjarasamn-
ingi KÍ og LN. Þessu samkomulagi hefur FG hafnað
en samningsaðilar hafa lagt áherslu á að halda
samræðum áfram.
Eru allir kennarar eins?
Helgi Grímsson
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 5. ÁRG. 2005