Skólavarðan - 01.08.2005, Page 29
29
FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR
Úthlutun úr
Rannsóknarsjóði leikskóla
Úthlutað hefur verið úr Rannsóknarsjóði leikskóla fyrir árið
2005 og hafa eftirtaldir aðilar og verkefni hlotið styrk úr
sjóðnum:
Bryndís Garðarsdóttir, Hrönn Pálmadóttir og Kristín Karlsdóttir
Verkefnið: Orðræða um uppeldi og menntun í leikskóla í
íslenskum fjölmiðlum.
Elfa Lilja Gísladóttir
Verkefnið: Hring eftir hring, undirbúningur og vinna við
gerð námsefnis í tónlist og hreyfingu fyrir leikskóla. Þetta er
meistaraverkefni umsækjanda.
Heiðrún Sverrisdóttir og Sigurlaug Einarsdóttir
Verkefnið: Erum við of fá – erum við of mörg? Rannsókn á
áhrifum hópastærðar á gæði leikskólastarfs.
Rannsóknarsjóður leikskóla var stofnaður af Félagi leikskólakennara
til minningar um Selmu Dóru Þorsteinsdóttur fyrrum formann
félagsins. Hann er fjármagnaður með eftirfarandi hætti: Ávöxtun
stofnfjár, ágóða af fyrirlestrum sem styrkþegar halda fyrir
leikskólakennara, fjárframlögum Félags leikskólakennara, gjöfum
sem sjóðnum berast við hátíðleg tækifæri, t.d. á útskriftarafmælum,
og síðast en ekki síst með ágóða af minningarkortum sjóðsins sem
afgreidd eru á skrifstofu KÍ.
Stjórn sjóðsins skipa: Jónína Konráðsdóttir leikskólastjóri,
formaður, Guðrún Alda Harðardóttir lektor og Þórdís Þórðardóttir
lektor.
Nýútskrifaðir leikskóla-
kennarar boðnir velkomnir
Félag leikskólakennara efndi til hófs 13. maí sl. á Akureyri og í
Reykjavík til að bjóða nýja leikskólakennara velkomna í hópinn.
Þetta er í annað skiptið sem félagið býður nýliða velkomna
með þessum hætti. Á Akureyri tók formaður svæðadeildar FL
á Norðurlandi eystra, Björg Sigurvinsdóttir, á móti hópnum í
Rauðakrosshúsinu ásamt Snjólaugu Brjánsdóttur úr stjórn FL. Í
Reykjavík var hópnum boðið til móttöku í Kennarahúsinu og þáði
léttar veitingar. Björg Bjarnadóttir formaður FL ávarpaði hópinn.
Báðar móttökurnar voru vel sóttar og mæltust vel fyrir.
Þröstur Brynjarsson
Íslensk kennsluforrit
þýdd og gefin til
kennslu, m.a. í
Afríkulöndum
Sérkennsluverkefni á vegum UNESCO sem nefnist Ný tækifæri
fyrir börn og ungmenni með sérþarfir fær á næstunni til
notkunar fimmtán kennsluforrit frá Námsgagnastofnun sem
þróuð hafa verið fyrir íslenska nemendur til að stuðla að
einstaklingsmiðaðri kennslu. Höfundar, hönnuðir og aðrir
þeir sem unnið hafa að gerð forritanna hafa samþykkt að
fella niður greiðslur sem þeir eiga rétt á. Forritin verða þýdd
á nokkur tungumál, s.s. arabísku, ensku, frönsku og swahili, í
samstarfi Námsgagnastofnunar og UNESCO. Tveir starfsmenn
UNESCO dveljast á Íslandi í tíu daga í maí til að fylgjast með
verkefninu og aðstoða við þýðingar.
Tölvum hefur fjölgað í skólum í Afríku og ýmsum arabískumælandi
löndum á síðustu árum fyrir tilstuðlan ýmissa átaksverkefna, en
tölvurnar hafa ekki nýst sem skyldi í kennslu þar sem skólarnir
hafa ekki ráð á að kaupa kennsluforrit.
UNESCO verkefnið miðar að því að auka aðgengi að
kennsluforritum. Kennsluforritin fimmtán frá Námsgagnastofnun
verða þýdd á fyrrgreind tungumál og sett á geisladisk ásamt
kennsluleiðbeiningum og verður þeim dreift ókeypis til skóla frá
janúar 2006. Stefnt er að því að kynna geisladiskinn á alþjóðlegum
leiðtogafundi sem haldinn verður í Túnis í nóvember nk.
Á vefsíðu menntamálaráðuneytisins segir að það fagni þessu
framlagi Námsgagnastofnunar til þróunarsamvinnu og að
vonandi verði framhald á samstarfi Námsgagnastofnunar og
UNESCO á sviði kennslumála. Þetta verkefni er sprottið upp úr
áralöngu samstarfi Norðurlandanna á sviði kennsluforrita. Þess
má geta að Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur sent tölvur
m.a. til Kenýa.
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 5. ÁRG. 2005
Félag leikskólakennara bauð í vor nýútskrifuðum
leikskólakennurum til hófs í Kennarahúsinu við Laufásveg.
Ljósmynd Skólavarðan
Uppeldi
og menntun
Út er komið fyrsta hefti fjórtánda árgangs tímaritsins Uppeldi og
menntun. Þar með hefst nýr kafli í sögu ritsins en það er nú í
fyrsta sinn gefið út af Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands
í samvinnu við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands.
Útlit ritsins hefur verið endurhannað, stefnt er að því að það
komi út tvisvar á ári og haustheftið verði að jafnaði helgað
ákveðnu málefni. Næsta tölublað verður helgað málefnum
grunnskólans.
Í ritinu eru rannsóknargreinar á sviði menntunar en einnig
er stefnt að því að tímaritið verði vettvangur umræðu og
skoðanaskipta um álitaefni er varða starfshætti og stefnumótun
fyrir mennta- og uppeldisstofnanir.
Jóhanna Einarsdóttir, dósent í menntunarfræði við KHÍ, er
ritstjóri. Með henni í ritstjórn eru Börkur Hansen, prófessor í
stjórnsýslufræðum við KHÍ, Guðrún Geirsdóttir, lektor í uppeldis-
og menntunarfræði við HÍ, og Trausti Þorsteinsson, forstöðumaður
skólaþróunarsviðs HA.