Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 3
3
FORMANNSPISTILL
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 6. ÁRG. 2006
Senn líður að sveitarstjórnarkosningum. Þann 27. maí
2006 verður gengið til kosninga um land allt. Eitt af stóru
kosningamálunum ættu að vera skólamál. Margir kennarar
söknuðu þess í verkfallinu haustið 2004 að fá ekki skýr svör frá
sveitarstjórnarmönnum um hver væri stefna þeirra í málefnum
grunnskólans. Á næstu vikum gefast tækifæri til að krefja
sveitarstjórnarmenn svara um hver séu áhersluatriði þeirra
varðandi málefni grunnskólans. Sveitarstjórnarmenn fóru
oft undan í flæmingi í kringum gerð síðasta kjarasamnings
þegar ræði átti við þá um kjaramál grunnskólakennara. Þá
skýldu þeir sér gjarnan á bak við það að umboð þeirra lægi
hjá Launanefnd sveitarfélaganna og því „gætu þeir ekki haft
skoðun á málinu“. Nú þýðir ekkert að bera fyrir sig umboð
launanefndar þegar spurt er um viðhorf sveitarstjórnarmanna
til kjaramála kennara. Umboð þeirra liggur hjá kjósendum,
þar á meðal kennara.
Við kennarar verðum að tryggja að skólamálin, þar með talin
kjaramál okkar, verði eitt af kosningamálum komandi vors.
Við verðum að krefja frambjóðendur svara: Hver er stefna
þín í málefnum grunnskólans ágæti sveitastjórnarmaður? Er
grunnskólinn eitt af forgangsverkefnum í þínu sveitarfélagi?
Þekkir þú hvernig vinnutími kennara er samansettur? Mikið
er talað um skóla án aðgreiningar, veist þú hvað felst í því
hugtaki?
Ágætu kennarar. Verum virk í umræðunni sem í hönd fer.
Gerum skólamál að kosningamáli.
Ólafur Loftsson
Hvað ætlar þú að kjósa?
Ólafur Loftsson
LJ
ó
sm
yn
d
f
rá
h
ö
fu
n
d
i