Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 26

Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 26
26 SAMKOMULAG UM NETTLU SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 6. ÁRG. 2006 Þann 28. mars sl. var undirritaður sam- starfssamningur Kennarasambands Íslands, Þroskaþjálfafélags Íslands og Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands um útgáfu Netlu, veftímarits um uppeldi og menntun. Rannsóknar- stofnun KHÍ hefur gefið ritið út frá árinu 2002 en Kennarasambandið og Þroskaþjálfafélagið koma héðan í frá að útgáfunni með því að leggja til hvort sinn ritnefndarfulltrúann. Þess er vænst að tenging Netlu við félög þeirra stétta sem hljóta menntun sína í Kennaraháskólanum verði til þess að auka framgang ritsins og efla skólamálaumræðu í samfélaginu í heild. Að sögn Gretars L. Marinóssonar fram- kvæmdastjóra rannsóknarsviðs KHÍ hefur frá upphafi verið lögð áhersla á fjölbreytt og lifandi vefrit með margvíslegum birt- ingarmáta efnis. Gagnvirkni er nú þegar nokkur þar sem lesendur geta brugðist við greinum á aðgengilegan hátt og stefnt er að því að auka hana enn frekar. Ingvar Sigurgeirsson, nýráðinn ritstjóri Netlu, er ánægður með samstarf skólans og stéttarfélaganna um vefritið og segir saminginn munu ýta undir að greinar sem eiga erindi við starfandi kennara og þroskaþjálfa berist þeim í hendur. Hann bendir jafnframt á að þótt þessar stéttir myndi helsta markhóp Netlu þá eigi efni í ritinu líka - og oft ekki síður - erindi við almenning, sveitarstjórnarmenn og aðra sem hafa áhuga á og starfa á vettvangi uppeldis og menntunar. Þá nýtist Netla kennara- og þroskaþjálfanemum mjög vel í námi og verði með tímanum öflugur gagnabanki á sínu sviði. „Við sem söknuð- um Nýrra menntamála erum loks búin að fá rit sem gegnir sama hlutverki,“ segir Ingvar. Þórunn Blöndal lektor við KHÍ er einn ritnefndarmanna. Hún bendir á að einn af meginkostum Netlu sé fólginn í ókeypis aðgangi fyrir alla. „Hver sem er getur sótt og lesið efnið í vefritinu sér að kostnaðarlausu og skiptir þá engu hvar í heiminum hann er staddur,“ segir Þórunn. Annar ritnefndarfulltrúi, Torfi Hjartarson, sem sömuleiðis er lektor við skólann bætir við að meðal efnis í ritinu séu greinar sem innihaldi hljóðdæmi og hreyfimyndir og fylgst sé með nýjungum á sviði vefmiðlunar. Gretar tekur undir með Torfa og bætir því við að hlutverk ritsins NETLUFRÉTTIR af vettvangi Netlu – netla.khi.is Agi og bekkjarstjórnun – hugmyndir tveggja heima takast á nefnist nýleg grein í Netlu sem óhætt er að segja að komi kennurum við. Agamál og þá ekki síst agastjórnunarkerfi eru mjög til umræðu um þessar mundir og í greininni fjallar höfundur, Edda Kjartansdóttir grunnskólakennari, um viðhorf til aga og bekkjarstjórnunar. Niðurstaða höfundar er sú að oft togast á ólík sjónarmið sem tengjast reglufestu módernismans og sveigjanleika póst- módernismans. Annars vegar er kallað eftir samræmdum reglum og hins vegar á að meta hvert tilvik fyrir sig. Afar áríðandi er að kennarar, nemendur og foreldrar axli ábyrgð, vinni með hlið- sjón af samfélagsbreytingum og séu virk í að móta þau samskiptaviðmið sem þeim finnst eðlilegt að ríki í skóla- stofunni. Í niðurlagi greinar sinnar segir Edda meðal annars: „Hugmyndafræði margra kennara á án efa rætur að rekja til hugmynda módernismans og þeir kalla því eftir því að böndum verði komið á síbreytilega veröld. Í heimi sem einkennist af póstmódernískri hugsun er það dæmt til að mistakast. Skólafólk þarf að staldra við og velta fyrir sér hvers vegna og hvernig hægt sé að bregðast við. Ef fólk skilur ekki að heimurinn er að breytast og reynir í sífellu að grípa til aðgerða sem betur áttu við í heimi fortíðar er hætt við að tilfinning fyrir úrræðaleysi verði æ ríkari og árekstrar við nemendur og foreldra sífellt algeng- ari.“ Og síðar: „Einn mikilvægur þáttur í því að styrkja kennarann til áhrifa er að hann fái tækifæri til að setja sér eigin samskiptaviðmið fyrir hvern hóp sem hann kennir. Þetta gerir kennurum kleift að vinna út frá eigin hugmyndum um aga, sem leiðir til þess að þeir verða gerendur en ekki leiksoppar og líta á sig sem fagmenn. Vissulega er líka mikilvægt að kennarar geti borið saman bækur sínar, rætt áherslur og viðmið og þannig mótað hugmyndir sínar með því að ræða þær við samstarfsfólk. Sameiginleg sýn starfsfólks, nemenda og foreldra á að vera leiðarljós skólastarfsins. Kennarar í samvinnu við nemendur og foreldra móta síðan leiðirnar svo að sýnin nái fram að ganga.“ Grein Eddu er spennandi innlegg í umræðu um agamál í skólum. Þar sýnist sitt hverjum og nú er um að gera að bretta upp ermar, munda músina og taka þátt í umræðunni. Kennarasambandið kemur að útgáfu Netlu sé ekki einungis að fræða heldur einnig að móta: „Netla á að vera í fremstu víglínu í umræðu um menntamál og mennta- rannsóknir en sú umræða er í mikilli sókn um þessar mundir.“ Hægt er að skrá sig á póstlista Netlu og fá sendar fréttir með því að smella á hnappinn „Póstlisti“ neðst í vinstra dálki á forsíðu ritsins, netla.khi.is Eiríkur Jónsson, Gretar L. Marinósson og Sigríður Rut Hilmarsdóttir undirrita samkomulagið.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.