Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 29
Þróun valgreina í grunnskólum Akureyrar
29
SMIÐSHÖGGIÐ
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 6. ÁRG. 2006
Vorið 2002 sótti skóladeild Akureyrar
um styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla
í því skyni að þróa sameiginlegt
valgreinatilboð í 9. og 10. bekk grunn-
skólanna til viðbótar þeim valgreinum
sem skólarnir hafa boðið hver hjá sér
um langt árabil.
Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla
er gert ráð fyrir að einstakir skólar
skipuleggi tæplega 30% námstíma
nemenda í 9. og 10. bekk sem valgreinar.
Tilgangurinn með þessu er að laga
námið betur að þörfum einstaklingsins
og gera nemendum kleift að leggja eigin
áherslur í námi miðað við áhugasvið
og framtíðaráform. Á þennan hátt
geta nemendur valið sig frá greinum
eða námssviðum sem ekki höfða til
þeirra eða minni þörf er á miðað við
framtíðaráform. Þetta óbundna frjálsa
val á fyrst og fremst að miðast við:
• Viðfangsefni til undirbúnings fyrir
nám á bóknámsbrautum framhalds-
skóla.
• Viðfangsefni til undirbúnings fyrir
starfsmenntun, list- og tækninám.
• Viðfangsefni sem miða að því að
víkka sjóndeildarhring nemenda og
stuðla að lífsfyllingu þeirra.
Í styrkumsókninni sagði m.a.:
“Megintilgangur verkefnisins Þróun val-
greina í grunnskólum Akureyrar er að
mæta kröfum aðalnámskrár um aukið
val og sveigjanleika í 9. og 10. bekk
Brekkuskóla, Oddeyrarskóla, Glerárskóla,
Lundarskóla, Síðuskóla og Giljaskóla.
Stefnt er að því að skólarnir vinni saman
að því markmiði að skipuleggja aukið
valnám þar sem hagnýta má mismunandi
aðstöðu og bjargir í bæjarfélaginu. Einkum
verði horft til þess hvernig koma megi við
fjölbreyttara vali í verkgreinakennslu og
viðfangsefnum sem komið geta til móts
við dugmikla nemendur og viðfangsefni
fyrir nemendur sem standa höllum fæti
í bóknámi. Hugað verði að því hvort
og hvernig skólar geti samnýtt tæki og
kennara til kennslu valgreina, einkum á
sviði verkgreina, og hvort rétt sé að koma
á verkaskiptingu milli skólanna í framboði
valgreina.
Í þróunarverkefninu verður sérstaklega
litið til þess ákvæðis aðalnámskrár að
skólar rækti tengsl við aðila utan skólans
og vinni með fyrirtækjum og stofnunum
að því sameiginlega verkefni að veita
nemendum haldgóða þekkingu. Athugað
verði í því sambandi hvort ástæða sé til að
leita eftir verknámsaðstöðu í fyrirtækjum
og stofnunum bæjarins, aðstöðu sem ekki
er að finna í skólunum, og hvort starfs-
menn fyrirtækjanna hafi tækifæri til að
miðla af þekkingu sinni til nemenda með
einum eða öðrum hætti.
Auk forms og fyrirkomulags á val-
greinanámi í grunnskólunum verða gerðar
námslýsingar fyrir þær valgreinar sem
ekki hefur þegar verið lýst og hugað að
kennsluaðstöðu og námsefni til kennsl-
unnar.”
Framkvæmd verkefnisins
Stofnaður var átta manna vinnuhópur,
skipaður einum fulltrúa frá hverjum skóla
auk fulltrúa frá skólaskrifstofu Akureyrar
og Skólaþróunarsviði Háskólans á Akur-
eyri sem jafnframt lagði til starfsmann
sem vann með vinnuhópnum.
Vinnuhópurinn tók til starfa í nóvember
2002 og setti þá upp áætlun um vinnuferli
og tímaplan um framvindu verkefnisins.
Ljóst var í upphafi að þróun valgreina
væri langtíma verkefni svo að ákveðið
var að miða vinnuna við tiltekna þætti
til vors 2003 en síðan yrði haldið áfram
frekari þróun verkefnisins á skólaárinu
2003-2004.
Helstu verkefni vinnuhópsins voru:
• Að skoða valgreinatilboð allra grunn-
skólanna á Akureyri og nokkurra
skóla í öðrum sveitarfélögum.
• Að kanna viðhorf nemenda til þeirra
valgreina sem þeir voru skráðir í
skólaárið 2002-2003.
• Að ræða við fulltrúa Menntaskólans
og Verkmenntaskólans á Akureyri
um tengsl skólastiganna og gildi
valgreina í námi nemenda og undir-
búningi þeirra fyrir framhaldsnám.
• Að ræða við stjórnendur allra grunn-
skólanna um hugmyndir að nýjum
valgreinum, fyrirkomulagi varðandi
framkvæmd þeirra og kostnaðarskipt-
ingu milli skólanna, svo að dæmi séu
tekin.
• Að kynna kennurum skólanna verk-
áætlun hópsins og fá hugmyndir
þeirra að nýjum valgreinum.
• Að leita úrskurðar menntamálaráðu-
neytisins um vafaatriði varðandi
framboð valgreina í 9. og 10. bekk.
• Að ræða við fjölmarga aðila og
fyrirtæki á Akureyri um áhugaverð-
ar hugmyndir varðandi framboð
nýrra valgreina, ekki síst í verk- og
listgreinum.
Þróun verkefnisins
Skólaárið 2003-2004 var í fyrsta sinn boðið
upp á valgreinar sem skipulagðar voru
undir stjórn vinnuhópsins í samstarfi við
ýmsa aðila innan og utan grunnskólanna.
Um var að ræða fjórar valgreinar sem
kenndar voru á vegum stofnana og
félagasamtaka utan skólanna, en auk
þess voru kenndar sjö valgreinar innan
einstakra skóla sem voru engu að síður
opnar nemendum allra skólanna. Tekinn
Halldór GunnarssonÁgúst Jakobsson
Lj
ós
m
yn
di
r
fr
á
hö
fu
nd
um
Nemendur í nuddvali