Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 5

Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 5
5 GESTASKRIF SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 6. ÁRG. 2006 Ég hef í nokkur ár haft áhuga á foreldra- samstarfi en fyrstu kynni mín af því voru í starfi mínu sem námsráðgjafi í grunnskóla í Reykjavík. Í þessum skóla var öflugt foreldrafélag sem stóð fyrir og tók þátt í ýmsum viðburðum í skólalífinu. Þessar uppákomur sköpuðu skemmtilega menningu innan skólans sem og góðar minningar hjá nemendum, foreldrum og kennurum. Áhugi minn á samstarfi kviknaði þó einkum vegna þess að í starfi mínu sem námsráðgjafi tók ég fljótlega eftir því að þegar upp komu vandamál hjá einstaka nemanda var oftast mun auðveldara að leysa þau ef foreldrarnir voru tilbúnir til samstarfs. Málin voru aftur á móti oft illleysanleg ef foreldrarnir neituðu samstarfi. Er ég eignaðist síðan sjálf barn í grunnskóla var ég svo heppin að í skóla barnsins míns var mjög jákvætt viðhorf til sam- starfs. Varð ég strax vör við þetta í viðmóti kennara og stjórnenda en sem dæmi má nefna að skólastjórinn kallaði eftir aðkomu foreldra að skólastarfinu á öllum foreldrafundum og sagði þá alltaf velkomna í skólann. Af hverju fannst mér ég vera heppin? Jú, það var af því að ég hafði kynnt mér gildi foreldrasamstarfs og komist að því að rannsóknir sýna að samstarf hefur alltaf jákvæð áhrif á skólastarf. Áhrif foreldra- samstarfs eru margvísleg og má þar nefna betri líðan barna í skóla, aukinn áhuga nemenda, betri námsárangur, aukið sjálfs- traust nemenda, betri ástundun, minna brottfall, jákvæðara viðhorf foreldra og nemenda til skólans og aukinn skilning kennara á aðstæðum barnsins.1 Ekki má gleyma að nefna að foreldrasamstarf er samkvæmt rannsóknum öflug forvörn sem skilar sér meðal annars í aukinni virðingu fyrir útivistartíma og minni neyslu vímu- efna.² Ljóst er að börnin okkar eru stóran hluta dagsins innan veggja skólans og læra þar ýmislegt bæði hvað varðar nám, um sig sjálf og mannleg samskipti. Foreldrar bera að sjálfsögðu frumábyrgð á uppeldi barna sinna en í aðalnámskrá gunnskóla segir: „Skólinn aðstoðar for- eldra í uppeldishlutverkinu og býður fram menntunartækifæri. Menntun og velferð nemenda er sameiginlegt verkefni heimila og skóla og samstarfið þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu, gagnkvæmu trausti, samábyrgð og gagnkvæmri upp- lýsingamiðlun.“ Til að börnin verði ekki rugluð í ríminu þurfa heimilin og skólinn að vera samstiga bæði hvað varðar aga og námsaðferðir. Eðli samstarfs ræðst mikið til af því hvaða sýn skólastjórinn hefur á það og hafa rannsóknir staðfest þetta. Skóla- stjórinn er leiðtoginn og hans viðhorf verða ríkjandi í skólanum og móta það hvaða augum kennarar líta á samstarf. Foreldrar hafa sjaldnast frumkvæði að samstarfi. Ábyrgðin á því að viðhalda sam- starfi liggur því hjá skólanum.³ Kennarar leika samt lykilhlutverk varðandi það hve góð samskiptin eru þar sem hið daglega starf hvílir mest á þeirra herðum og án samstarfsvilja þeirra gengur það ekki upp.4 Reynslan sýnir að ef foreldrar skynja að þeir eru velkomnir í skólann og á þá hlustað þá munu þeir taka þátt og leggja sitt af mörkum til að gera góðan skóla betri. Foreldrar geta verið öflugir talsmenn skólans og komið að ýmsum umbótum í skólastarfinu, bæði hvað varðar innri og ytri þætti þess. Þeir skólar sem ekki Eru foreldrar óbeislað afl? Eðli samstarfs ræðst mikið til af því hvaða sýn skólastjórinn hefur á það og hafa rannsóknir staðfest þetta. Skólastjórinn er leiðtoginn og hans viðhorf verða ríkjandi í skólanum og móta það hvaða augum kennarar líta á samstarf. Foreldrar hafa sjaldnast frumkvæði að samstarfi. Elín Thorarensen, M.Ed. nýta sér þetta afl foreldra fara á mis við þennan mikilvæga stuðning sem getur verið lyftistöng fyrir skólastarfið. Hefðin fyrir samstarfi er ekki löng hér á landi miðað við nágrannalönd okkar og samstarfið hér hefur mikið til byggst á upplýsingagjöf og félagslífi í kring- um nemendur sem og fjáröflunum, sem nokkuð hefur samt dregið úr. Spurning er hvernig það samstarf sem hefur verið að þróast síðastliðin 30 ár henti því LJ ó sm yn d f rá h ö fu n d i

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.