Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 4

Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 4
Efling umferðarfræðslu í grunnskólum 8 Sigurður Helgason verkefnastjóri Umferðarstofu segir frá samningi við Grundaskóla um að vera móðurskóli í umferðarfræðslu. Öflug liðsheild – samstiga til framtíðar 10 Málþing skólamálanefndar Félags leikskólakennara var fjölsótt og innihaldsríkt. Meðal fyrirlesara voru Björg Bjarnadóttir og Elna Katrín Jónsdóttir og hér gefur að líta hluta úr erindum þeirra. Bókmenntavefurinn 14 Á Bókmenntavefnum bokmenntir.is eru upplýsingar um íslenska samtímarithöfunda og verk þeirra sem erfitt er að nálgast annars staðar. Með háskólapróf í rokkútsetningum 16 Pétur Hafþór Jónsson er alltaf jafnferskur þrátt fyrir áratuga reynslu sem tónmenntakennari. Eftir að hann og krakkarnir tróðu síðast upp við gífurlegar undirtektir ákváðu þau að skella sér í keilu. Pétri fylgir engin lognmolla og hann lætur sér annt um nemendur sína, hvert og eitt þeirra. Ekki fyrir fáa útvalda 18 Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir lektor í tónmennt stýrir náminu á tónmenntakjörsviði í Kennaraháskóla Íslands. Námið hefur breyst mikið undanfarin ár og nemendum fjölgað. Skólaíþróttir í uppsveiflu 20 Andri Stefánsson sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ er jafnframt starfsmaður Skólaíþróttanefndar. Nefndin hefur það hlutverk meðal annarra að efla þátttöku barna í íþróttum í tengslum við skólakerfið. Vinir Zippý í grunnskóla á Íslandi 22 Guðrún Guðmundsdóttir verkefnisstjóri Geðræktar skrifar um nýtt alþjóðlegt forvarnaverkefni á sviði geðheilsu sex og sjö ára barna. KÍ kemur að útgáfu Netlu 26 Nýverið undirritaði KÍ samkomulag við Þroskaþjálfafélag Íslands og Rannsóknastofnun Kennaraháskóla Íslands um útgáfu Netlu, veftímarits um uppeldi og menntun. Formannspistill 3 Ólafur Loftsson formaður Félags grunnskólakennara hvetur alla kennara til að krefja sveitarstjórnarmenn svara í undanfara komandi kosninga og láta svörin ráða því hvert atkvæðið ratar. Gestaskrif 5 „Eru foreldrar óbeislað afl?“ spyr Elín Thorarensen í grein sinni. Hefð fyrir samstarfi foreldra og skóla er ekki löng hérlendis og betur má ef duga skal. Skóladagar 6 Smiðshöggið 29 Þróunarverkefni í tengslum við valgreinar í 9. og 10. bekkjum grunnskóla Akureyrar hefur vakið eftirtekt og gengur vonum framar. Fjölbreytni ræður ríkjum og nemendur eru ánægðir. Ágúst Jakobsson og Halldór Gunnarsson skrifa. Að auki... fréttir af orlofsmálum, styrkveitingum, kjaramálum, norrænum námskeiðum, ársfundum og fleiru að ógleymdum leiðara. Ef allir skólar væru leikskólar „Börn tjá sig leikrænt og elska það. En þegar þau ná vissum aldri segjum við: „Hættu að leika þér. Lífið er alvara.“ Þegar þetta er sagt við fólk jafngildir það geldingu. Að leika er eitt kraftmesta tungumál sem við eigum til. Að leika sér er að nota hluta af raunveruleikanum til þess að skapa og æfa umbreytingu. Þú leikur, skapar og æfir þig í að verða sterkari svo að þú getir farið út og breytt heiminum. En þeir segja við þig: „Hættu. Þú mátt ekki leika þér lengur.“ Augusto Boal, 1995. Fljótandi skil skólastiga. Rúllustigamenntun er hugtakið sem ég nota með sjálfri mér í þessu samhengi. Eins og allir vita eru til rúllustigar sem fara upp og aðrir sem fara niður. Mér finnst skemmtilegra að fara niður. Þar er grunnurinn, jörðin, ræturnar. Þar er spurning allra spurninga: Hver er ég og hver ert þú og hvað erum við saman? Þar er leikskólinn. Að mínu viti ættu allir skólar að vera leikskólar. „Hvað eiga fjöldamorðingjar, misnotuð börn, útbrunnir starfs- menn, þunglyndar mæður, dýr í búi og krónískt kvíðnir nemend- ur sameiginlegt?“ spyrja aðstandendur Stofnunar leiksins (Insti- tute for Play, www.insititueforplay.com). Og svarið er: „Þau leika sér sjaldan eða aldrei.“ Ofstýring er hætta sem steðjar að skólum á öllum skólastigum og hún er í takt við aðrar breytingar í samfélaginu. Viljum við fórna leiknum og leikgleðinni? Skóli á að vera fullur af gleði, ekki bara sjálfrar hennar vegna heldur líka vegna þess að hún færir fólk saman og án hennar verður ekkert nám. „Þínir tignu töfrar tengja, tískan meðan sundur slær,“ segir í Óðinum til gleðinnar. Ef við gleymum þessu ekki þá verður leikur að læra. Og sá leikur verður okkur kær. Kristín Elfa Guðnadóttir 4 LEIÐARIEFNISYFIRLIT FASTIR LIÐIR SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 6. ÁRG. 2006 Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir sigridur@ki.is / sími 595 1115 Hönnun: Zetor ehf. Ljósmyndir: Jón Svavarsson, nema annars sé getið Forsíðumynd: Börn frá leikskólunum Mýri og Sæborg skapa töfraheim ljóss og skugga á Vetrarhátíð Reykjavíkur í febrúar sl. Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959 Prentun: Svansprent Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi). Laufásvegi 81, 101 Reykjavík Kristín Elfa Guðnadóttir

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.