Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 14

Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 14
14 BÆKUR SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 6. ÁRG. 2006 Á Bókmenntavefnum bokmenntir.is eru upplýsingar um íslenska samtíma- rithöfunda og verk þeirra sem erfitt er að nálgast annars staðar. Margir höfundanna eru of ungir að árum til að hafa ratað inn í safnrit og aðrar heimildir þar sem fólk leitar helst fanga. Kristín Viðarsdóttir bókmenntafræðingur og ritstjóri vefjarins segir vefinn gagnast fólki allt frá 11-12 ára aldri og hvetur kennara og nemendur til að nýta sér hann til upplýsingaöflunar. Bókmenntavefurinn á rætur að rekja til samstarfsverkefnis bókasafna í sjö evrópskum borgum árið 2000. Eftir að verkefninu lauk ákvað Borgarbókasafnið að halda uppbyggingu síns hluta vefjarins áfram Síðan hefur hann vaxið jafnt og þétt og nú er svo komið að vefurinn geymir æviágrip, ritaskrá, upplýsingar um verðlaun og viðurkenningar, textabrot, greinar og viðtöl um og eftir fleiri en hundrað samtímahöfunda. Þar er að finna leikskáld, ljóðskáld og skáldsagnahöfunda, jafnt þá sem sérhæfa sig í að skrifa fyrir börn eða fullorðna sem hina er skrifa fyrir alla aldurshópa. Miðað er við að höfundar sem teknir eru á vefinn hafi gefið út ekki færri en þrjú skáldverk og það nýjasta á síðustu fimm árum þegar upplýsingar um þá eru settar inn. Yfirlitsgreinar um verk höfunda eru að mestu keypt frá bókmenntafræðingum utan bókasafnsins. „Ég held að Bókmenntavefurinn sé nú þegar talsvert notaður af kennurum,“ segir Kristín Viðarsdóttir ritstjóri, „en eflaust eru líka margir sem vita ekki af honum. Þarna er sérstaklega gott að finna upplýsingar um unga höfunda sem erfitt er að finna annars staðar og svo má benda á að á vefnum er líka birtur fjöldi umsagna um bækur. Mest fyrir jólin vegna þess að þá eru flestar bækur gefnar út en líka reglulega yfir árið. Pistlar eftir höfunda sjálfa eru skemmtilegt krydd á vefnum og auk þess erum við svo með fréttasíðu um útgáfumál og tenglasíðu með íslenskum forlögum.“ Um þessar mundir er Kristín að hrinda nýju efni úr vör en það eru umsagnir almennra lesenda um bækur sem þeir hafa lesið og vilja segja frá. „Með þessari nýjung fjölgar bókaumsögnum mikið á vefnum,“ segir Kristín. „Auk þessa hefur fólk líka tækifæri til að segja sína skoðun á öllum bókverkum sem eru birt undir „Ritaskrá“ hvers og eins höfundar. Ef smellt er á bók birtast upplýsingar um hana og tengillinn „Þitt álit“ á þeirri síðu gefur notanda færi á að skrifa hvað honum fannst um bókina og senda inn á vefinn. Starf Kristínar felur í sér mikinn lestur en hún kvartar ekki undan vinnuálagi enda mikill bókaormur. „Ég er hrifin af mörgum íslenskum höfundum,“ segir Kristín, „þeirra á meðal Steinunni Sigurðardóttur, Guðbergi Bergssyni og Gyrði Elíassyni svo einungis fáir séu nefndir.“ Hún hefur ekki þungar áhyggjur af íslenskunni en fagnar þó allri umræðu um málið. „Þetta er mjög þörf umræða og vissulega finnst mér réttmætar áhyggjur fólks af áhrifum enskunnar. Sérstaklega finnst mér umræðan um stöðu þýðinga mikilvæg. Hins vegar sýnist mér margir krakkar vera ágætlega skrifandi. Raunar skrifa þeir mun meira en við gerðum á þeirra aldri. Þeir tala heldur ekki endilega sms- eða msn-ísku. Börn og unglingar gera fullan greinarmun á málfarinu þar og talmáli,“ segir Kristín. keg Fróðleiksnáma fyrir kennara og nemendur Lausar stöður. Lausar eru við skólann stöður grunnskólakennara (almennra kennara, sérgreinakennara og sérkennara) á öllum stigum grunnskólans skólaárið 2006 – 2007. Allar upplýsingar gefa Arnar Einarsson, skólastjóri í símum 468 1164, 468 1465 og 868 8289, og Siggeir Stefánsson, formaður skólamálaráðs í símum 894 2608 og 468 1404. Skólastjóri.   Grunnskólinn á Þórshöfn. simar: 4681164, 4681454 Lausar stöður. Lausar eru við skólann stöður grunnskólakennara (almennra kennara, sérgreinakennara og sérkennara) á öllum stigum grunnskólans skólaárið 2006 – 2007. Allar upplýsingar gefa Arnar Einarsson, skólastjóri í símum 468 1164, 468 1465 og 868 8289, og Siggeir Stefánsson, formaður skólamálaráðs í símum 894 2608 og 468 1404. Skólastjóri.   Grunnskólinn á Þórshöfn. simar: 4681164, 4681454 Kennarahjón vantar íbúð Er einhver að fara í leyfi og þarf að leigja íbúðina sína? Dóttir mín, Erla Ingvarsdóttir erla@magelbyskole.dk, er að flytja heim með fjölskyldu sinni; eiginmanni og tveimur sonum. Þau eru bæði kennarar og vantar íbúð á Reykjavíkursvæðinu. Nánari upplýsingar hjá Borghildi Jósúadóttur, Akranesi. borghil@akranes.com – GSM 894-3036 Bókmenntavefurinn Lj ós m yn di r fr á Bo rg ar bó ka sa fn in u

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.