Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 30

Skólavarðan - 01.04.2006, Blaðsíða 30
30 SMIÐSHÖGGIÐ SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 6. ÁRG. 2006 var frá samræmdur tími í stundaskrá allra skólanna svo að allir nemendur þeirra ættu kost á að stunda nám í þessum greinum. Þá var tekið upp það nýmæli að nemendur gátu fengið metið sem val þátttöku í íþróttum, félagsstarfi og nám við aðra skóla, s.s. tónlistarskóla, myndlistarskóla og framhaldsskóla, enda væri að baki tilskilinn tímafjöldi og gerð væru skil til grunnskólanna um ástundun og viðunandi árangur. Var þar haft sem viðmið að 50 klst. ástundun a.m.k. lægi að baki til að iðkunin fengist metin sem tveggja vikustunda valgrein. Verkefnið hefur í meginatriðum þótt takast vel og hefur þessu fyrirkomulagi verið haldið áfram. Á síðustu tveimur árum hafa bæst við fjölmargar greinar sem nemendum allra grunnskólanna á Akureyri standa til boða. Einnig má nefna að við sameiningu Akureyrarbæjar og Hríseyjarhrepps bættust nemendur frá Hrísey í hópinn. Á yfirstandandi skólaári eru 17 valgrein- ar kenndar sameiginlega nemendum í 9.- 10. bekk á Akureyri. Kennir þar ýmissa grasa en þær greinar sem um ræðir eru atvinnu- lífskynning, byrjendanámskeið í forritun, danskennsla, djass- og dægurlagasöngur, fjöllist, framtíðarleiðtogar, handboltaskóli KA, heimspeki, knattspyrnuskóli Þórs, kvik- myndagerð og hagnýt miðlun, leiklist, líkamsrækt, nudd, nytjalist, táknmál og útivistarfræði auk valgreinar sem sam- sett er úr ýmsum námskeiðum á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Akureyrar. Meðal þeirra aðila sem koma að kennslu greinanna má nefna Skátafélagið Klakk, Menntasmiðju kvenna, Tónlistarskóla Akureyrar, íþróttafélögin KA og Þór, Leikfélag Akureyrar, Listaskóla Arnars Inga, Stefnu ehf., Átak, líkamsræktarstöð og fleiri aðila innan bæjarfélagsins. Að sjálfsögðu bjóða einstakir skólar að auki upp á sínar eigin valgreinar sem fyrr og hafa í nokkrum tilvikum með sér samstarf um einstakar greinar. Nemendur sem taka þátt í sameiginlegu valgreinunum í vetur eru rúmlega 360. Með þessu móti er hægt að bjóða upp á mun fjölbreyttara val en áður tíðkaðist enda meiri líkur á að nægilegur nemendafjöldi náist í hinar ýmsu greinar þegar nemendur margra skóla eiga kost á að velja þær. Þannig eiga nemendur í 9.-10. bekk á Akureyri nú kost á að velja um allt að 60 valgreinar árlega. Verkefnið er enn í þróun og er nú unnið að undirbúningi fyrir næsta skólaár, mati á þeim greinum sem kenndar eru nú og hugmyndum að nýjum valgreinum. Fyrir liggja skýrslur um verkefnið og má nálgast þær hjá grunnskólum Akureyrar- bæjar. Vinnuhópurinn sem tók til starfa haustið 2002 er enn að störfum. Nafnið breyttist í valgreinanefnd grunnskóla Akureyrar og hefur hún nú fengið starfslýsingu þar sem hlutverk hennar er skilgreint. Í nefndinni nú eru Sigríður Jóhannsdóttir deildarstjóri, Síðuskóla, Halldór Gunnarsson aðstoðarskólastjóri, Glerárskóla, Fjóla Helgadóttir deildar- stjóri, Oddeyrarskóla, Ágúst Jakobsson aðstoðarskólastjóri, Brekkuskóla, Eyrún Skúladóttir, deildarstjóri, Lundarskóla og Vala Stefánsdóttir deildarstjóri, Gilja- skóla. Skóladeild Akureyrar hefur með ýmsum hætti stutt þetta þróunarstarf. Þá kom skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri að mótun verkefnisins eins og áður segir og lagði m.a. tímabundið til starfsmann sem vann með vinnuhópnum. Samstaða skólanna og afar góð samvinna um þróun valgreina hér á Akureyri hefur orðið til þess að skapa hér fjölbreyttara, skemmtilegra og áhugaverðara námsval en áður var. Fyrir hönd valgreinanefndar grunnskólanna á Akureyri, Ágúst Jakobsson og Halldór Gunnarsson Framtíðarleiðtogar, leiðbeinandi Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju Elín Inga Bragadóttir nemandi í 10. bekk Síðuskóla: Þetta er bara alveg ótrúlega skemmtilegt! Við erum mikið í leikjum sem hafa einhverja merkingu og síðan ræðum við um það eftir á. Við erum búin að vera í mikilli sjálfsstyrkingu. Sem dæmi má nefna að við erum búin að læra að taka gagnrýni og viðhorf mín til ýmissa hluta hafa breyst verulega. Síðan fórum við einhvern tímann út og stóðum uppi á skafli og góluðum en það var eitt það erfiðasta fyrir mig. Við höfum einnig verið að kynnast réttindum okkar og þeirra sem búa með okkur á jörðinni og einnig lærum við um menningu annarra þjóða og mikilvægi þess að vera víðsýn og taka tillit til fólks með aðra menningu en við. Núna eru til dæmis þýskir krakkar í heimsókn hjá okkur og eru að kenna okkur ýmislegt sniðugt. Sjálfstraust mitt hefur vaxið gríðarlega í vetur og ég mæli pottþétt með framtíðarleiðtogum fyrir hvern sem er. Stutt greinargerð um reynslu mína af þátttöku í valgreinum við grunnskóla Akureyrar. Í þrjú ár hef ég boðið upp á kennslu í kvikmyndagerð og hagnýtri fjölmiðlun, ég tel að það hafi verið afar skemmtilegt og fróðlegt fyrir langflesta þátttakendur og ekki síst mig sjálfan. Þróunarferlið er líka vel merkjanlegt en glíman er yfirleitt sú að ætla sér ekki um of. Nemendur eru yfirleitt mjög duglegir og frumlegir í hugsun en ég hef haft það að markmiði að beina þeim á önnur svið en þeir eru vanir og hvet til frekara úthalds og þolinmæði við allar útfærslur og tæknilegar forsendur. Í þessa námsgrein sækja fleiri drengir en stelpur. Fyrir ári vildi ég bjóða upp á nýja valgrein sem var fjöllist, en þar er mörgum listgreinum blandað saman, s.s. myndlist, leiklist, ritlist og kvikmyndagerð. Það er hægt að segja að námsgreinin hafi sannað sig í botn því nemendur fóru á kostum og glöddu bæði mig og aðra. Stelpurnar lögðu næstum greinina undir sig og ég get alveg fullyrt að ég var mjög undrandi á því hversu ólíkir hóparnir voru. Takmark mitt er …. Að hver finni sig í viðfangsefninu og alvöru þess. Þá er gaman. ÖRN INGI

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.