Skólavarðan - 01.04.2006, Page 21

Skólavarðan - 01.04.2006, Page 21
21 SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 6. ÁRG. 2006 annað þess háttar. Einnig með því að taka hægt og rólega við tveimur stórum verkefnum sem voru áður á herðum menntamálaráðuneytisins, en þau eru Norræna skólahlaupið og Norrænar skólaíþróttabúðir sem eru árvissir við- burðir. Loks er hlutverk nefndarinnar að koma að nýjum verkefnum í samvinnu við fjölmarga aðila og jafnframt vinna með öðrum, svo sem félagsmiðstöðvum og íþróttafélögum, að verkefnum sem þegar eru farin í gang. „Gott dæmi um nýafstaðið verkefni af þessum toga,“ segir Andri, „er Skólahreysti 2006 sem haldin var á höfuðborgarsvæðinu í marsmánuði og gekk framar öllum von- um. Við erum með öflugt samstarf við hin Norðurlöndin og þaðan fáum við upplýsingar og hugmyndir jafnt og þétt. Í Noregi er til að mynda hvatt til hálftíma hreyfingar í skólum á dag, ekki bara hjá nemendum heldur taka starfsmenn þátt og halda utan um hreyfistundirnar. Sumir skólar hafa lengt þetta upp í klukku- stund. Það er mikil vakning í sambandi við hin og þessi heilsutengd verkefni í Noregi og líka til dæmis í Danmörku. Þar hafa bæði ráðuneyti og íþróttasamtök leitað til danska skólaíþróttasambandsins um að setja ýmis verkefni í gang. Markmiðið er að virkja sem flesta nemendur í hreyfingu. Nokkrir aðilar í samfélaginu, stofnanir, félagasamtök og aðrir, vinna ötullega á þessu sviði og það er vel. Við finnum fyrir miklum vilja hjá sveitarstjórnendum og áhuga á þessum málaflokki en það skipt- ir líka miklu máli að skólastjórnendur hvetji sína íþróttakennara og aðra Tenglar: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands www.isisport.is Danska skólaíþróttasambandið www.skoleidraet.dk Sænska skólaíþróttasambandið www.skolidrott.se Landslaget Fysisk Fostring, Norge www.lff.no Alþjóða skólaíþróttasamtökin www.isfsports.org kennara og geri þeim kleift að sinna verkefnum af þessum toga. Huga þarf að vægi íþróttakennslu í skólakerfinu en það hefur líklega aldrei verið brýnna að auka hreyfingu í daglegu lífi ungs fólks. Á Norðurlöndum hefur verið rætt um að margt sem ætli mætti að hvetti til hreyfingar gerir það ekki í raun, svo sem ýmis leiktæki á skólalóðum og leikvöllum sem fá krakkana til að sitja frekar en hreyfa sig. Nægir þar að benda á vegasöltin og rólurnar.“ Að sögn Andra hefur hin unga Skólaíþróttanefnd enn sem komið að mestu beitt sér innan grunnskólastigs- ins en ætlunin er að sinna líka öðrum skólastigum. Í nefndinni situr fólk með fjölþætta reynslu víða að úr skóla- og íþróttakerfinu. „Skólaíþróttanefnd er samsett af fólki sem þekkir til ýmist starfsemi skóla eða íþróttafélaga, flestir þekkja hvort tveggja,“ segir Andri. „Þetta er mjög frjótt samstarf og tryggir líka að við fáum raunhæfar upplýsingar hvert frá öðru um hvað gengur og hvað ekki.“ Hægt er að fá meiri upplýsingar um starfsemi Skólaíþróttanefndar hjá Andra Stefánssyni, andri@isisport.is keg SKÓLAÍÞRÓTTANEFND

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.