Skólavarðan - 01.08.2006, Blaðsíða 20

Skólavarðan - 01.08.2006, Blaðsíða 20
20 FORVARNIR Klámvæðingin sem heltekið hefur hinn vestræna heim undanfarin ár, þar á meðal íslensku þjóðina, er áhyggju-efni. Þessi ósómi hefur fengið að flæða nánast óhindrað yfir unga jafnt sem aldna. Aukin fíkniefnaneysla er líka stórkostlegt vandamál með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Aukin fræðsla og forvarnir á þessu sviði eru því mjög mikilvægt verkefni bæði fyrir foreldra og skóla. Kynlífsfræðsla fyrir unglinga þarf að vera á réttum forsendum. Gera þarf unglingum grein fyrir því að kynlífi fylgir gífurleg ábyrgð m.t.t. sálarheillar viðkomandi, ótímabærra þungana og kynsjúkdóma. Það er sorgleg staðreynd að unglingar á Íslandi byrja fyrr að lifa kynlífi en hjá nágrannaþjóðum okkar, meðalaldurinn er um 15,4 ár (samkvæmt rannsókn dr. Sóleyjar Bender). Unglingaþunganir eru algengari hér og um helmingur þeirra endar í fóstureyðingu. Kynsjúkdómar eru óhjákvæmileg afleiðing óábyrgs kynlífs. Skaðinn fyrir einstaklinginn getur verið gífurlegur þar sem afleiðingar eru í sumum tilfellum ófrjósemi. Barn eða unglingur sem horfir á kynferðislegt efni eða tekur þátt í kyn- ferðislegum athöfnum án þess að hafa til þess þroska bíður skaða á sálu sinni. Ótímabært kynlíf unglings veldur skaða á sjálfsvirðingu hans. Þegar sjálfsvirðing einstaklings er orðin sködduð opnast gjarnan leið fyrir sjálfseyðileggjandi hegðun. Til að deyfa þann sársauka sem skapast er hætta á að viðkomandi leiti óæskilegra leiða til þess, m.a. í áfengi og vímuefni. Þegar þarna er komið sögu er unglingurinn stundum farinn að vanrækja nám sitt. Hér má oft sjá greinilegt samhengi. Ljóst er af framansögðu að ótímabært kynlíf getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Með markvissri fræðslu má spara beinharða peninga í heilbrigðiskerfinu, svo að ekki sé minnst á þá mannlegu þjáningu sem mætti koma í veg fyrir, s.s. sálræna kvilla, kynsjúkdóma og ótímabærar þunganir sem sumar hverjar enda í fóstureyðingu. Foreldri frá föstudegi til mánudags Síðastliðinn vetur kom í heimsókn í skóla barnanna minna, Heiðarskóla í Reykjanesbæ, aðili frá ÓB ráðgjöf til að kynna og leggja fyrir nemendur verkefnið „Hugsað um barn“. Sonur minn tók þátt í því en tilgangur þess er að fyrirbyggja ótímabært kynlíf unglinga og fræða þá um skaðsemi áfengis og annarra vímuefna. Í upphafi verkefnisins „Hugsað um barn“ eru foreldrar boðaðir á fund og fá þar upplýsingar um tilhögun þess. Skólahjúkrunarfræðingar geta nýtt sér verkefnið og fjallað um ýmis málefni sem varða kynlíf og barneignir í tvær kennslustundir eða meira. Verkefnið gengur þannig fyrir sig að nemendur fá heim með sér svokallað raunveruleikabarn. „Barnið“ er dúkka sem er sambærileg ungbarni hvað varðar stærð, þyngd og höfuðhreyfingar. Dúkkunni er stjórnað af tölvuforriti sem fylgist með hversu vel er hugsað um hana. Það er gert á þann hátt að áður en nemandinn fer heim með dúkkuna fær hann armband sem fest er á handlegg hans á meðan á umönnunartímanum stendur. Ekki er hægt að færa armbandið á milli einstaklinga. Þegar nemandinn sinnir „barninu“ er armbandinu beint að skynjara á baki dúkkunnar, með því les forritið að þörfum hennar hafi verið sinnt og skráir það í minni. Nemendur hafa dúkkuna heima yfir eina helgi og er hún „sett í gang“ um kvöldmatarleytið á föstudegi. Hverri dúkku fylgja nauðsyn- legir fylgihlutir, svo sem bleyjur og peli. „Barnið“ fer að gráta á öllum tímum sólarhrings, það þarf að skipta á því, gefa því pela og láta það ropa. Sé það ekki gert orgar það ótæpilega. Það grætur líka ef haldið er óvarlega á því en hjalar og sýnir þannig að því líði vel þegar búið er að sinna þörfum þess. Þegar umönnunartímanum er lokið er „börnunum“ skilað í skólann á mánudagsmorgni. Þá er prentuð út skýrsla um umönnun hvers barns fyrir sig og kemur þar fram hversu vel því hefur verið sinnt. Er þetta fyrsta verkefnið hér á landi sem veitir unglingum tækifæri til að læra um forvarnir í gegnum upplifun. „Hugsað um barn“ hefur verið prófað í Noregi og er árangur þar mjög góður. Árið 2000 var verkefnið sett í gang við SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 6. ÁRG. 2006 HUGSAÐ UM BARN Víðtækt forvarnarverkefni María Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur segir frá forvarnarverkefninu „Hugsað um barn“ en sonur hennar var einn þátttakenda þegar verkefnið var lagt fyrir í Heiðarskóla í Reykjanesbæ. Verkefnið var kynnt í Skólavörðunni í grein Guðlaugar Guðmundsdóttur haustið 2004, hér er því fylgt eftir og foreldri segir sína skoðun. Lj ó sm yn d ir f rá a ð st an d en d u m v er ke fn is in s

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.