Skólavarðan - 01.12.2007, Síða 28
28
NÁMSKEIÐ, MATSLISTI
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 7. ÁRG. 2007
Eldur og ís – Fjölskyldusögur
NÁMSKEIÐ UM LEIKLISTARMEÐFERÐ /
DRAMAÞERAPÍU SEM ENGINN MÁ MISSA AF
Haldið 12. - 13. janúar.
Kennari verður Robert J Landy professor í
Leiklistarmeðferð/Dramaþerapíu við New
York University.
Robert J Landy er stjórnandi námsbrautar
í Dramaþerapíu við New York University
og prófessor í Educational theatre og
applied psychology. Hann er frumkvöðull
á sínu sviði í Bandaríkjunum og heldur
fyrirlestra og námsskeið fyrir fagfólk um
víða veröld. Hann hefur gefi ð út og samið
fjölda bóka, blaðageina og leikrita um
leiklist, leiklistarmeðferð/dramaþerapíu
og skyld efni. Nýjasta bók hans er: „The
couch and the stage: Integrating words
and action in psychotherapy“, gefi n út
siðastliðið haust. Hann hefur yfi r 30 ára
reynslu af leiklistarmeðferð með börnum
og fullorðnum með ólík sálfræðileg,
hugræn, og hegðunarleg vandamál.
Hann hefur einnig unnið í fangelsum og
þróað margvíslega meðferðaráætlun fyrir
fanga.
http://www.institutefordramatherapy.com/
Á námskeiðinu verður unnið að því að
kanna samskipti innan fjölskyldunnar og
hvernig fólk endurspeglar þau og notar í
öðrum samskiptum og samböndum utan
hennar. Með leiklistarmeðferð sem aðferð
verður farið í gegnum ferli þar sem sögur
eru búnar til og leiknar. Hópurinn býr til
myndir og aðstæður af fjölskyldum og
vinnur að því að skilja og endurskoða
samspil fólks innan fjölskyldunnar.
Námskeiðið er ætlað öllum kennurum,
meðferðaraðilum og þroskaþjálfum sem
áhuga hafa á leiklist sem meðferðarformi
eða leið til að örva tjáningu og sjálfsmynd
einstaklingsins.
Námsskeiðið verður haldið í sal Fræðslu-
deildar Þjóðleikhússins í gamla Hæsta-
réttarhúsinu við Lindargötu 3. Byrjar kl 10
báða dagana og endar kl 16.
Námskeiðsgjald er 20.000 kr. fyrir báða
dagana, kr. 12.000 fyrir annan daginn.
Meðlimir í FLÍSS sem hafa borgað
félagsgjald þessa árs fá 2500 kr afslátt ef
þeir taka báða dagana, 1250 ef þeir taka
annan daginn.
Kennarar eru hvattir til að sækja um
styrk úr Vonarsjóði KÍ eða hafa samband
við viðkomandi skólastjóra.
Skráning á námsskeiðið er á netfangið
ogud@btnet.is og vigdis@leikhusid.is
Félag daggæsluráðgjafa
stofnað
Umsjónarmenn daggæslu barna í
heimahúsum hafa nýverið stofnað með
sér félag daggæsluráðgjafa og fulltrúa
skammstafað FDF. Markmið félagsins
er að vera samstarfsvettvangur dag-
gæsluráðgjafa og fulltrúa sem hafa
umsjón með daggæslumálum barna
í sveitarfélagi og fjalla um mál sem
snerta starfssvið málafl okksins. Stjórn
félagsins skipa Hildur Sigurbjörnsdóttir
daggæslufulltrúi Hafnarfi rði, Emilía
Júlíusdóttir daggæslufulltrúi Kópavogi
og Birna Róbertsdóttir daggæslu-
fulltrúi Reykjavík.
Síðastliðna tvo vetur hafa sérkennarar
fjögurra skóla í Húnavatnssýslum
unnið að þróunarverkefninu „Matslisti
Gerd Strand fyrir 7 ára nemendur“
undir stjórn Guðjóns E. Ólafssonar, sér-
kennslufræðings.
Höfundur matslistans, Gerd Strand, er
norskur sérkennslufræðingur sem starfar
sem forstöðumaður rannsóknar- og
þjónustumiðstöðvar á landsvísu í Noregi
fyrir börn með ADHD og skyldar raskanir.
Listinn var upphafl ega þýddur og stað-
færður með leyfi höfundar af Guðjóni E.
Ólafssyni, sérkennslufræðingi og Kristínu
Björk Gunnarsdóttur, sérkennara.
Útgáfan sem hér er kynnt er endur-
bætt og aðlöguð sjö ára nemendum í
grunnskóla. Kennarar sem unnu verk-
efnið eru Gréta Björnsdóttir, Guðbjörg
Inga Guðmundsdóttir, Helga Ólína Ara-
dóttir, Sigríður B. Aadnegard og
umsjónarmaður er Guðjón E. Ólafsson,
sérkennslufræðingur.
Markmiðið með gerð listans er að færa
kennurum sjö ára barna í hendur tæki sem
þeir geta notað til að fá skýrari mynd af
helstu færni- og getuþáttum sem hafa
áhrif á gengi nemenda í skóla. Matslistinn
auðveldar ákvarðanir um kennslu og nám
og veitir foreldrum, kennurum og öðrum
sérfræðingum mikilvægar upplýsingar.
Matslistann má nota sem almenna skimun
en einnig til að meta þörf á nákvæmari
greiningu barna sem sýna frávik. Hann er
huglægt mat þess er greinir. Eitt og sér
gefur mat þetta ekki tilefni til endanlegs
úrskurðar um frávik en getur gefi ð mikil-
vægar vísbendingar.
Sú tilgáta var höfð að leiðarljósi að
því meira sem unnið er af greiningum,
mati, skimunum og áætlunum af starfs-
fólki í skólunum þeim mun líklegra er
að starfsemin verði í samræmi við getu,
eðli og þarfi r hvers og eins nemanda.
Tilgangurinn er því að stuðla að enn
markvissari og faglegri vinnubrögðum í
grunnskólunum.
Leitað hefur verið til fjölmargra sér-
fræðinga til að gera listann eins áreiðan-
legan og unnt er. Endanleg útgáfa hans
hefur verið prófuð á fjölda nemenda í
ýmsum skólum, bæði á börnum með og
án raskana. Niðurstöðurnar sýna ágæta
fylgni við aðrar viðurkenndar greiningar
og virðist því listinn vera áreiðanlegur og
gefa réttar vísbendingar.
Matið byggir á níu
spurningafl okkum sem eru:
• málþroski
• eftirtekt/einbeiting
• fl jótfærni/hvatvísi
• virkni
• samskipti
• fín/grófhreyfi ngar
• sértækir erfi ðleikar
• tilfi nningar og líðan
• almennur skilningur og þekking
Í hverjum fl okki er fjöldi ítarlegra og
nákvæmra spurninga sem tengjast þeim
erfi ðleikum sem verið er að skoða hverju
sinni. Niðurstöður fl okanna eru færðar á
línurit. Af línuritinu fær kennarinn heildar-
mynd af stöðu nemandans sem nýtist
honum við áframhaldandi skipulagningu
á námi og kennslu. Notkun listans verður
einungis heimil þeim er sótt hafa námskeið
um notkun hans. Áætlað er að matslistinn
verði tilbúinn til notkunar fyrir kennara á
skólaárinu 2007/2008.
Verkefni þetta hefur verið styrkt af
Verkefna- og námstyrkjasjóði FG og SÍ og
af Þróunarsjóði grunnskóla.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón E.
Ólafsson, Fræðsluskrifstofu A- Hún.
Netfang: gol@mi.is
Vinnusmiðja FLÍSS – Félags um leiklist í skólastarfi
og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins kynnir
Matslisti Gerd Strand fyrir 7 ára nemendur - Nýtt tæki til að styrkja skólastarf