Skólavarðan - 01.03.2009, Síða 21

Skólavarðan - 01.03.2009, Síða 21
21 Kristin Wallis er grunnskólakennari og býr í Englandi. Hún er þýðandi Numicon námsefnisins og hefur haldið námskeið um kerfið bæði hérlendis og erlendis. Við fengum Kristinu til að segja frá Numicon, en þess má geta að þegar efnið var stuttlega kynnt í Skólavörðunni fyrir þremur árum sýndu kennarar áhuga á að fá frekari kynningu. Numicon stærðfræðinámsefni og námsgögn (oft kallað Numicon kubbar) hefur náð hylli á Íslandi og víða um heim, þökk sé þaulhugsaðri heildarmynd höfunda. Kerfið byggist á hugmyndum Montessori, Stern og Cuisenaire og er samið af enskum skóla- mönnum. Rannsóknir á Numicon voru gerðar á árunum 1996-1998 og var efnið sett í framleiðslu í kjölfar þeirra enda kom í ljós að það ýtir undir að nemendur upp- götvi töfraveröld stærðfræðinnar. Numicon námsefnið er samið fyrir börn á aldrinum þriggja til tíu ára en í haust bætist við nýtt efni fyrir eldri börn. Efnið hentar einnig vel fyrir börn og unglinga sem ekki hafa náð tökum á stærðfræði og fullorðna með lesblindu eða reikniblindu. Almenna bekkjarnámsefnið skiptist í Grunnsett, Skólasett 1, Skólasett 2. Á hverju verkefnaspjaldi í ölllum settum eru markmið, hugtakalisti, skýr fyrirmæli og hugmyndir sem tengjast verkefninu. Grunn- settið hentar vel í leikskólum og á yngsta stigi í grunnskólum ef það hefur ekki verið lagt inn í leikskóla. Skólasett 1 tekur við af grunnsettinu og hentar yngri nemendum grunnskóla. Meðal efnis er innlögn á jafnt og merkinu, áframhaldandi uppbygging á samlagningu og frádrætti, mynsturvinna og sætisgildi. Verkefnum er skipt í þrjá flokka, tölur og talnakerfið, mynsturvinnu og reikniaðgerðir. Út í gegn er lögð áhersla á að nota eitt það mikilvægasta gagn sem við komumst í kynni við um ævina, talnalínuna. Skólasett 2 er eins uppbyggt, meðal efnis er margföldun, deiling, einföld brot, nám- undun, algebra ofl. Í haust er að vænta útgáfu á Skólasetti 3. Verkefni eru unnin í réttri röð og ekki er byrjað á næsta verkefni nema það fyrra sé leyst. Handbók fylgir verkefnamöppunni og þar er fjallað um hugmyndir að baki Numicon, meðal annars sk. hugtaksímynd (concept image) þar sem upplýsingum sem viðkoma reynsluheimi nemandans er safnað saman. Skráningarblöð fylgja hverju verkefni og skráningarferlið hjálpar kennaranum að fylgjast grannt með stöðu mála. Leiðarvísir sem hjálpar við að finna stöðu barnsins er bæklingur sem kemur með hverju skólasetti. Það er sagt til um á hvaða verkefni viðkomandi nemandi þarf að byrja og er það gagnlegt fyrir þá sem eru að nota Numicon í fyrsta skipti, eru með nýjan bekk, í nýjum skóla eða vilja finna út stöðu nýnemenda. Efni til ljósritunar fylgir hverju setti. Loks eru það námsgögnin: Form, kubbar, plötur, spil, talnalínur o.fl. Þau eru notuð samhliða innlögn á verkefnum á öllum stigum. Þau styrkja sjónræna þáttinn sem er svo mikilvægur og allir fá tækifæri til að leysa verkefnin á hraða sem hentar þeim. Þannig er byggður upp grunnur fyrir áframhaldandi stærðfræðinám og skilning. Með notkun námsgagnanna læra börnin til dæmis að sjá hvern tölustaf sem heild. Þau átta sig á að tölustafir eru ekki handahófskennd tákn heldur mynda þeir skipulagt kerfi. Stærðfærðin er full af mynstri og því er æskilegt að nemendur verði meðvitaðir um mynsturveröld hennar sem allra fyrst. Annað námsefni og námsgögn Closing the Gap eða „Brúum bilið“ kom út í fyrra og er samið fyrir nemendur á öllum aldri sem þurfa að fara enn hægar og þéttar í að byggja upp grunnskilning sinn á stærð-fræði. Markmiðið er að nemendur öðlist jákvæðara viðhorf til stærðfræði og byggi upp sterkan grunn fyrir komandi nám. Lítil skref eru tekin við innlögn og hún er í alla staði fjölskynja (áþreifing, eftirtekt, tal, hlustun). „Brúum bilið“ notast við sömu námsgögn og uppbyggingu á möppu og hin skólasettin. Grá form og hvítir og svartir kubbar: Formin og kubbarnir eru litrík. Hins vegar geta ekki allir unnið með alla liti (t.d. einhverfir). Numicon býður því einnig upp SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009 Sýnir skýr mörk milli stærða á tölum með notkun forma. Bilið brúað milli leikskóla og grunnskóla Numicon námsefni og námsgögn Bæði form og talnastangir efla kunáttu barna.Vog og form henta vel við algebruvinnu. Formin og viðeigandi talnalína hjálpa til við að skilja námundun betur ©Numicon Ltd ©Numicon Ltd ©Numicon Ltd ©Numicon Ltd STæRÐFRæÐI • STæRÐFRæÐI • STæRÐFRæÐI • STæRÐFRæÐI • STæRÐFRæÐI • STæRÐFRæÐI • STæRÐFRæÐI

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.