Skólavarðan - 01.01.2002, Síða 3

Skólavarðan - 01.01.2002, Síða 3
4 Leiðar i Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is Ritstjórn: Anna Björg Sveinsdóttir, Ásmundur Örnólfsson, Auður Árný Stefánsdóttir, Eiríkur Jónsson, Helgi E. Helgason, Kristín Elfa Guðnadóttir, Kristín Stefánsdóttir, Magnús Ingvason, Sigurrós Erlingsdóttir. Hönnun: Penta ehf. Ljósmyndun: Jón Svavarsson Teikningar: Ingi Auglýsingar: Öflun ehf. / Kristín Snæfells / kristinsn@islandia.is / sími: 533 4470 Prentun: Prentsmiðjan Grafík ehf. Forsíðumyndin sýnir Akureyrarkirkju. Jón Svavarsson tók myndina. Norður...og niður? Umræðan um flutning Rásar 2 til Akureyrar - eða ekki - sýnir í hnotskurn breikkandi gjá, gjána milli íbúa höfuðborgarsvæðisins og annarra landsmanna. Sem Mosfellingur yppi ég gjarnan öxl- um í þessari umræðu, finnst þægilegt að vísa til hálfgildings sveitadurgsins í mér þegar hitnar í kolunum og standa syngjandi sæl og glöð með annan fótinn í Reykjavík og hinn utan borgarmarkanna. En í alvöru talað kennarar góðir, þetta eru mál sem við þurfum að ræða og megum ekki klæða í bannbúning. Megum ekki verða kjaft- stopp af því að við viljum svo gjarnan vera vinir og ekki rífast...en verðum bara svo reið þegar þetta mál ber á góma. En um hvað snýst málið? Af hverju erum við örg? Reykvíkingar eru argir af því að þeim finnst daðrið við dreif- býlinga ganga út í öfgar. Þeir eru argir yfir að vera ásakaðir um yfirgang. Oft stendur þeim þó á sama og aðhyllast nokkurs kon- ar darvínskt - eða dýrabæjarsvínskt - lögmál og hugsa sem svo: náttúran sér um sína, sem útleggst í þessu tilfelli: dreifbýlingar verða hvort eð er útdauðir eftir áratug. Aðrir landsmenn eru ekki bara argir, þeir eru stórreiðir. Þeir eru að berjast fyrir tilvist sinni og þeir eru líka með kennd hins minnimáttar sem er eðlilegt því að enginn má við margnum. Báðir aðilar hafa þó eitt og annað skynsamlegt fram að færa þótt erfitt sé að nema það fyrir öldugangi. Reykvíkingar benda á að vol og víl og misvitur byggðapólitík hafi skaðað dreifbýlið - nokkuð til í því. Ekki-Reykvíkingar (hugsið ykkur að vera stimpl- aður fyrir eitthvað sem maður er ekki) benda á ýmsa kosti þess fyrir alla sem byggja þetta land að halda úti byggð á víð og dreif, en margir þessara kosta eru lítt áþreifanlegir. Kjarni þeirra felst kannski í hugtökum á borð við „flóra“, „fjölbreytni“, „menning“. Oft er vænlegt til árangurs að nota tískuorð þannig að best er að skeyta inn í einu slíku: „fjölmenning“. Fjölmenning er fleira en Víetnamar í Reykjavík. Fjölmenning er líka Norðfirð- ingar á Íslandi. Leiðum hugann að því. Og þá komum við að kjarna þessara skrifa: Þjóðinni er svo mikill akkur í því að hafa byggðalög sem flest og víðast á Íslandi að við ættum öll að leggja í púkk og finna leiðir til að fólk vilji búa í þessum byggðum. Við þurfum að finna byggðastefnunni nýjan farveg. Og þarna skipta kennarar sköp- um. Ég held stundum að þeir geri sér ekki grein fyrir því hvað þeir hafa gífurleg áhrif á framvindu samfélagsins. En trúið mér, þau eru gífurleg. Sonur minn sagði um daginn þegar við kom- um að skólanum hans: Hugsa sér mamma, að þetta fyrirbæri - og hann bandaði hendinni vinsamlega í átt að skólanum sínum - er lífið. Það er svo margt að breytast og það breytist svo hratt að kannski þurfum við að fara í okkar eigin edduklæði til að átta okkur á því. Og hver eru þau? Lopapeysa í stað flíspeysu, útvarp með í bakpokann í stað playstation og taka svo strætó út á Granda í stað þess að fara á bílnum. Gamaldags? Kannski, en siðmenntaðri þjóðir en við hafa áttað sig fyrir löngu á gildi þess að halda tengslum við fortíðina til að geta fótað sig í nútíðinni. Og gildi fjölmenningar í víðu - og dreifðu - samhengi. Kristín Elfa Guðnadóttir Efni Greinar Við leggjum mikla áherslu á að finna mannauðinn í hverjum einstaklingi 6 segir Gerður Pétursdóttir leikskólastjóri í Hjallatúni í Reykjanes- bæ. Séreignarsparnaður 8 Eiríkur Jónsson formaður KÍ skrifar um lífeyrismál. Um samband skólastærðar og velferðar nemenda 10 Fámennir skólar tryggja velferð barna að mörgu leyti betur en stórir, að því er nðiurstöður bandarískra kannana benda til. Ragnar S. Ragnarsson atferlissálfræðingur skrifar. Of fáir í hópi þeirra bestu 12 Niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar eru um margt forvitnilegar. Helgi E. Helgason ræðir við Júlíus K. Björnsson forstöðumann Námsgagnastofnunar. Ljósmæður námsdraumanna 16 Viðtal við Hauk Ágústsson og Aðalheiði Steingrímsdóttur um fjarkennslu í VMA, sem er í fararbroddi á þessu sviði hérlendis og þótt víðar væri leitað. Tölvumiðstöð fatlaðra 20 berst við fjárskort en heldur engu að síður úti mikilli starfsemi. Maðurinn að baki músík punktur is 22 Viðtal við Jón Hrólf Sigurjónsson um heimasíðuna sem er engri lík og fleira sem hann föndrar við í starfi og frístundum. Minjasafn leikskóla 28 Barnavinafélagið Sumargjöf, Félag leikskólakennara, Leikskólar Reykjavíkur og Árbæjarsafn undirbúa stofnun Minjasafns leik- skóla. Fastir liðir Formannspistill 3 Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar. Gestaskrif 5 Elísabet Berta Bjarnadóttir hellir upp á í þetta skipti. Fréttir og smáefni 8, 9, 11, 19, 20, 27, 28 Hrókering í Noregi (8), Netla - nýtt veftímarit (9), Leikrit á dönsku og íslensku, Samráðsnefnd um leikskóla, UT 2002 (11), Félag um menntarannsóknir (19), Handbók fyrir umsjónarkennara í framhaldsskólum (20), Símenntunarstofnun stendur ekki fyrir einstökum námskeiðum, Námsgögn fyrir fólk sem ræður ekki við flókna stærðfræði (27) og margt fleira. Skóladagar 9 Myndasaga Skólavörðunnar. Kjaramál 24, 25, 26, 27 Samstarfsnefndir um framkvæmd kjarasamninga í framhalds- skólum, símenntunaráætlanir í leikskólum, dæmi um röðun stjórnenda í tónlistarskólum, vinnuramminn - grein 2.1.3 í grunnskólum. Einnig skrifar nýkjörinn formaður SÍ pistil til félagsmanna sinna í tilefni liðins árs. Smáauglýsingar og tilkynningar 29 Smiðshöggið 30 Er rúm fyrir öll börn í metnaðarfullum skóla? Kristín Björk Jó- hannsdóttir þroskaþjálfi og kennari í Sandvíkurskóla á Selfossi skrifar. Annað Kveðja til Hrólfs Kjartanssonar og Sigurjóns Péturssonar 18

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.