Skólavarðan - 01.01.2002, Blaðsíða 22
af þessu tagi eru merkilegir fyrir það að á
þeim eru sérfræðingar á ýmsum sviðum og
þangað er hægt að senda afmarkaðar
spurningar. Margir eru á þessum listum
bara til að hlera og fylgjast með, vita um
hvað umræðan snýst, en eru ekki virkir
þátttakendur.“
Vefur í verkfalli
Einnig eru á síðunni nokkrir áhugaverðir
sérvefir, eins og Art 2000 sem var gerður
fyrir raf- og tölvutónlistarhátíð sem var
haldin í október árið 2000. Þarna er líka
vefur sem Jón Hrólfur og Bjarki Svein-
björnsson halda úti um íslenska tónlistar-
sögu á 20. öld með sérstaka áherslu á raf-
og tölvutónlist. Í samstarfi við Bjarka er
Jón Hrólfur líka með vefinn Ísmús sem er
nýjasta afkvæmi þeirra félaga. Á honum er
ætlunin að vista gömul tónlistarhandrit
sem geymd eru á Landsbókasafni.
„Það er fáranlegt hve íslenskri tónlistar-
sögu eru gerð lítil skil í menntakerfinu og
krakkar þekkja meira til Mozarts en ís-
lenskra tónskálda,“ segir Jón Hrólfur.
Á tímum þegar tæknin breytist á hverj-
um degi og hraðinn er alltaf að aukast á að
vera enn auðveldara að nálgast menningar-
arfinn á netinu. Jón Hrólfur heldur líka úti
annarri síðu sem einnig tengist tónlist en
það er vefur Félags tónlistarskóla-
kennara.
„Það kemur nú bara til af því að ég
er svona tölvudellukall og var þess
vegna beðinn um að sjá um hann,“
segir Jón Hrólfur.
Vefur tónlistarkennara er hefðbund-
inn og af því tagi að þar geta félags-
menn nálgast upplýsingar um eitt og
annað, svo sem lög félagsins, skoðað
reglur um starfsmenntunarsjóði og
fengið aðrar upplýsingar sem þeir
þurfa á að halda. Í nýloknu verkfalli
tónlistarkennara sannaði vefurinn gildi
sitt og var óspart notaður. Þar gátu
kennarar nálgast upplýsingar um leið
og þær komu og öflug skoðanaskipti
fóru fram.
„Vefurinn skipti miklu máli í verk-
fallinu og í raun má segja að hann hafi
breyst í mikilvægt tæki, allt í einu gátu
allir nálgast allar upplýsingar um leið
og þær bárust,“ segir Jón Hrólfur.
Völundarskjöl á vefnum
Jóni Hrólfi finnst mjög mikilvægt að
auka hlut tölva í kennslu í tónlistarskólum
landsins en telur þá í raun ekkert sérstak-
lega illa setta hvað viðkemur tölvuaðstöðu,
þær séu bara ekki notaðar í kennslu heldur
fyrst og fremst sem skrifstofuáhöld.
„Þegar frá líður munu bæði einstakling-
ar, félög og stofnanir, sem tengjast tónlist, í
vaxandi mæli setja upp völundarskjöl sem
innihalda kynningar eða hvað eina annað
sem viðkomandi kann að þykja áhugavert
að koma á framfæri. Tilgangurinn með
musik.is er að miðla þessum upplýsingum
áfram,“ segir Jón Hrólfur.
Jón Hrólfur er með mörg járn í eldinum
sem mörg hver liggja í netheimum, hann
og Bjarki hafa stofnað félagið Músík og
saga ehf. þar sem Ísmús og musik.is koma
við sögu.
Steinunn Þorsteinsdóttir
Viðta l
23
Áhugasamir: Farið inn
á síðuna www.musik.is
og skoðið það sem þar
fer fram. Ef þið hafið
upplýsingar um síður og
efni sem ætti heima þar
þá setjið ykkur í sam-
band við Jón Hrólf á
netinu á slóðinni
musik.is.
„Tölvunotkun í tónlistarkennslu á Íslan-
di er lítil sem engin,“ segir Jón Hrólfur.