Skólavarðan - 01.01.2002, Blaðsíða 20
Ég er ein.
Ég á engan vin.
Þau hæðast bara að mér
og meiða mig.
Ég finn til í hjartanu
því þeim er alveg sama.
Sama um mig.
Á dögunum kom út hjá Námsgagna-
stofnun bókin Saman í sátt -Leiðir til að
fást við einelti og samskiptavanda í skólum
þar sem er að finna þetta erindi úr ljóði eft-
ir Helgu Kolbeinsdóttur þrettán ára. Bókin
er byggð á efni eftir Norðmennina Erling
Roland og Grete Sörensen Vaaland sem
gefið var út í Noregi árið 1996 af norska
menntamálaráðuneytinu og ætlað að koma
af stað átaki í eineltismálum í landinu.
Hugmyndin var að taka á einelti á breiðum
grundvelli og koma með fyrirbyggjandi að-
gerðir. Ætlunin var að koma upp tengsla-
neti þar sem öflug samvinna og samstarf
ýmissa aðila kæmu til og væru forsenda ár-
angurs.
Hjónin Elín og Guðmundur Ingi voru
stödd í ársleyfi í Noregi þegar bókin kom
út. Þar kynntust þau fólkinu sem stóð að
henni og hrifust af hugmyndafræðinni á
bak við hana. Nú hafa þau þýtt og staðfært
bókina á íslensku. Þau notuðust meðal
annars við íslenska rannsókn sem gerð var
á vegum Rannsóknarstofnunar uppeldis og
menntamála árið 1999 og heitir Umfang
og eðli eineltis í íslenskum grunnskólum.
Niðurstöður úr þeirri könnun sýna að
7,7% nemenda í 5., 7. og 9. bekk hafa verið
lögð í einelti. Þetta getur þýtt að hér á
landi verði rúmlega 3000 grunnskólabörn
fyrir einelti í einhverri mynd og rúmlega
2000 grunnskólabörn leggi önnur börn í
einelti.
Í bókinni er fjallað um einelti og aðferðir
sem hafa reynst vel þegar unnið er gegn því
en Elín leggur mikla á áherslu á að einhver
ein töfralausn sé ekki til í eineltismálum
heldur þurfi víðtækt samstarf að koma til.
Líklegt að veik stjórn og lítil sam-
vinna stuðli að einelti
Sjálf hefur Elín starfað eftir hugmyndum
Norðmanna síðustu fimm ár og telur sig
hafa náð góðum árangri.
„Það er mjög mikilvægt að gott samstarf
ríki innan skólans og fólk sé tilbúið til að
vinna saman að lausn mála. Skýringa á mis-
munandi tíðni eineltis í skólum er, sam-
kvæmt rannsóknum sem vitnað er til í bók-
inni, oft að leita í innra starfi skólans, með-
al annars hvernig tekið er á agavandamál-
um. Þess vegna er mjög auðvelt að draga
þær ályktanir að veik stjórn og lítil sam-
vinna kennara stuðli að fleiri eineltismál-
um. Samvinna og samstillt átak þeirra sem
koma að málefnum barna sem verða fyrir
einelti er grundvallaratriði. Þannig náum
við árangri og það er það sem við leggjum
áherslu á og viljum koma á framfæri með
þessari bók,“ segir Elín og Guðmundur
tekur undir það.
Í bókinni er lögð áhersla á að skóla- og
bekkjarbragur sé góður og þannig sé hægt
að fyrirbyggja einelti. Þau Elín og Guð-
mundur leggja mikla áherslu á að fyrir-
byggjandi starf gegn einelti sé stöðug vinna
en ekki átaksverkefni.
Í aðalnámskrá fyrir grunnskóla kemur
fram að í hverjum skóla eigi að vera til áætl-
un um hvernig tekið sé á eineltismálum. Í
bókinni má finna leiðir til að koma í veg fyr-
ir einelti og þar eru líka leiðbeiningar um
hvernig hægt sé að gera langtímaáætlanir til
að stuðla að góðum anda í skólanum.
Langtímaáætlanir skila bestum ár-
angri
Lausnir í eineltismálum eru í grundvall-
aratriðum þær sömu á öllum skólastigum
segja þau Elín og Guðmundur. Það sem
þau telja að þurfi liggja til grundvallar er að
skólinn viti hvernig á að bregðast við ef
eineltismál koma upp og í bókinni er bent
á nokkrar aðferðir til að taka á eineltismál-
um sem reynst hafa mjög vel. Þar má líka
finna könnun á líðan nemenda í skólum
sem hægt er að leggja fyrir í bekkjardeild-
um. Einnig er þar viðameiri könnun sem
snýr að skólabragnum og hægt er leggja
fyrir tiltekna árganga í skólanum. Tilgang-
ur þessa kannana er tvíþættur, annars vegar
að fá vitneskju um hvernig líðan nemenda
er hverju sinni og hins vegar að fá upplýs-
ingar sem geta hjálpað starfsfólki skólans til
að vinna að góðri líðan nemenda í skólan-
um.
„Ef skóli vill axla ábyrgð og gera skyldu
sína í eineltismálum þarf að útbúa skriflega
áætlun, bæði hvað varðar fyrirbyggjandi
aðgerðir sem og aðgerðir þegar einelti
kemur upp. Sérstök átök og herferðir geta
skilað einhverjum árangri en bestum ár-
angri skila langtímaáætlanir og skipulagt
forvarnarstarf. Ávinningur af slíkri vinnu er
mikill. Eineltisvandamálum fækkar og al-
menn líðan nemenda verður betri með já-
kvæðari hegðun innan skólans,“ segja þau
Elín og Guðmundur.
Það er full ástæða til að óska þeim Elínu
og Guðmundi til hamingju með bókina og
vona að hún eigi eftir að nýtast skólayfir-
völdum í landinu vel til að koma í veg fyrir
að börnum líði eins og lýst er í ljóðinu hér
að ofan.
Námsgögn
Viðtal við Elínu Einarsdóttur náms-
ráðgjafa við Digranesskóla og Guð-
mund Inga Leifsson skólastjóra Dal-
brautarskóla
Saman í sátt
- Leiðir til að fást við einelti og samskiptavanda í skólum
21
Hjónin Elín Einarsdóttir og Guðmundur Ingi Leifsson eru þýðendur bókarinnar Saman í sátt - Leiðir
til að fást við einelti og samskiptavanda í skólum.