Skólavarðan - 01.01.2002, Page 7

Skólavarðan - 01.01.2002, Page 7
Ýmsir lífeyrissjóðir og fjármálastofnanir ganga út frá því í auglýsingum sínum að vinnuveitendur hafi samið við öll stéttar- félög um viðbótargreiðslur í séreignarsjóði - en svo er alls ekki. Stöðugt fjölgar hins vegar þeim stéttarfélögum sem gera samn- inga við vinnuveitendur um viðbótarfram- lag í séreignarsjóð umfram lögbundið framlag sem er 10% viðbót við það framlag sem launþegi leggur inn (þó að hámarki 0,4% af heildarlaunum hvers einstaklings). Algengt er að stéttarfélög hafi samið um sérstakt viðbótarframlag vinnuveitenda sem nemur allt að 2% af heildarlaunum þeirra starfsmanna sem gert hafa samning um séreignarsparnað. Innan Kennarasambands Íslands hefur verið samið við ríkið um viðbótarframlag vegna félagsmanna sem starfa hjá ríkinu. Einnig hefur verið samið við launanefnd sveitarfélaga um viðbótarframlag vegna þeirra tónlistarskólakennara sem ekki eiga aðild að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins eða lífeyrissjóðum sveitarfélaganna. Launa- nefnd sveitarfélaga hefur hins vegar hafnað því að gera samning um viðbótarframlag við Kennarasambandið vegna félagsmanna sem starfa í grunnskólum og leikskólum og einnig vegna félagsmanna í tónlistarskólum sem eru aðilar að ofangreindum lífeyris- sjóðum. Þessi afstaða launanefndar sveitar- félaga olli vissulega vonbrigðum og með henni skipar hún sér á bekk með fulltrúum þeirra vinnuveitenda sem hvað minnstan skilning sýna á mikilvægi sparnaðar í þjóð- félaginu. Miðað við umræðuna í þjóðfélag- inu um mikilvægi sparnaðar er tímaskekkja að launanefnd sveitarfélaga skuli ekki koma til móts við þá eðlilegu kröfu að allir starfs- menn sveitarfélaga sitji við sama borð og starfsmenn ríkisins hvað þetta varðar. Það hlýtur því að verða ein meginkrafa Kenn- arasambandsins að sveitarfélögin semji við sambandið um að allir félagsmenn þess sem starfa í leik-, grunn- og tónlistarskólum njóti sömu réttinda og aðrir hvað varðar mótframlag vinnuveitenda í séreignarsjóð. Staðan nú er því þessi: Kennarar og stjórnendur í framhaldsskólum hafa samn- ing um mótframlag vinnuveitenda í sér- eignarsjóð. Kennarar og stjórnendur í tón- listarskólum sem ekki eru í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins eða lífeyrissjóðum sveitarfélaganna hafa samning um mót- framlag vinnuveitenda í séreignarsjóð. Kennarar og stjórnendur í leik- og grunn- skólum hafa ekki samning um mótframlag vinnuveitenda umfram hið lögbundna framlag og ekki heldur þeir kennarar og stjórnendur í tónlistarskólum sem eiga að- ild að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins eða lífeyrissjóðum sveitarfélaganna. Undirritaður skorar á kennara og skóla- stjóra að halda þessu máli vakandi í aðdrag- anda sveitarstjórnarkosninga í vor og spyrja frambjóðendur, hver í sínu sveitarfélagi, út í stefnu þeirra í lífeyrismálum ekki síður en öðrum málum. Eiríkur Jónsson, formaður KÍ L ífeyr ismál 8 Á undanförnum árum hefur umræða um svokallaðan séreignarsparnað í lífeyriskerfinu aukist verulega. Sér- eignarsparnaður er vissulega af hinu góða og viðbót við þá samtryggingu sem menn kaupa sér með aðild að hefðbundnum lífeyrissjóði. Rétt er að hafa í huga að réttindi í séreignar- sjóðum ráðast af ávöxtun sjóðanna en eru hvorki lögbundin né samn- ingsbundin. Félag um menntarannsóknir Miðvikudaginn 20. febrúar kl. 16:15 verður haldinn stofnfundur félags um menntarannsóknir, í hátíðarsal Sjómannaskóla Íslands. Styrkjum úthlutað Rannsóknarsjóður Leikskóla Reykjavíkur úthlutaði fjórum styrkjum upp á samtals 1,5 milljónir þann 19. des. sl. Sjá nánar á www.leikskolar.is Einkageirinn dregst saman Í fjölþjóðlegri og yfirgripsmikilli kortlagningu OECD á leikskólastarfi kemur fram að æ víðar er litið á leikskólann sem nauðsynlegt skólastig en ekki einungis tilboð. Samhliða breyttum áherslum minnkar einkageirinn á þessu sviði í mörgum lönd- um og hið opinbera tekur við. Sjá nánar skýrsluna „Starting strong: Early child- hood education and care“. Hana er til dæmis að finna á slóðinni http://www.childcarecanada.org/policy/polstudies/int/OECDstrong.html Hrókering í Noregi Anders Folkestad, varaformaður í nýstofnuðum kennarasam- tökum í Noregi sem urðu til við samruna Norsk lærerlag og Lærerforbundet, hefur tekið að sér formennsku í enn nýrri samtökum, Utdanningsgruppenes Hovedorganisasjon. Það eru heildarsamtök kennara, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og lögreglumanna sem voru formlega stofnuð fyrir síðastliðin áramót. Við starfi Folkestad tók Per Aahlin fyrrver- andi formaður Lærerforbundet. Ný sameiginleg námskrá fyrir alla leikskóla á Akureyri Síðastliðinn föstudag afhentu leikskólastjórar á Akureyri skóladeild Akureyrarbæj- ar nýja skólanámskrá fyrir alla leikskóla bæjarins. Sjá nánar á www.ki.is Góð tónlistartíðindi Laugardagskvöldið 19. janúar sl. var tónlistarhúsið Laugarborg formlega tekið í notkun að viðstöddu miklu fjölmenni. Ráðist var í viðamiklar breytingar á þessu fyrrum félagsheimili Hrafnagilshrepps fyrir um ári í þeim tilgangi að bæta að- stöðu til tónlistarflutnings. Þessum breytingum er nú lokið og mat manna er að tónlistarhúsið sé í hópi þeirra bestu á landinu. Sjá nánar á www.mbl.is, frétt frá 22. janúar. Frétt i r Stofnun UHO - Utdanningsgruppenes Hovedorganisasjon Anders Folkestad er leiðtogi 200.000 manna regnhlífarsamtaka sem mynduð eru af Norsk Syke- pleierforbund, Politiets Fellesforbund og nýju norsku kennarasamtökunum, Utdanningsforbundet. Séreignarsparnaður

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.