Skólavarðan - 01.01.2002, Side 8

Skólavarðan - 01.01.2002, Side 8
Ekki er um fastan útgáfutíma að ræða heldur er efni birt í tímaritinu jafnóðum og það er tilbúið. Þegar er kominn um tugur greina á vefinn, auk annars efnis. Meðal annars má nefna greinina „Aravefur“ eftir Heimi Pálsson, en hún fjallar um Íslend- ingabók Ara fróða. Í raun er rangnefni að tala um „grein“ í þessu tilliti vegna þess að Heimir spinnur heilan vef og nýtir sér kosti Netsins á margan hátt í að koma efni sínu á framfæri, eins og yfirskrift þess - Aravefur - ber með sér. Sannarlega áhugaverð tilraun. Fyrir ofan hverja grein (með fyrrnefndum fyrirvara um hugtakið „grein“) er tengill sem lesendur geta nýtt sér til að koma á framfæri athugasemdum um viðkomandi efni. Stórsnjallt og verður vonandi til þess að skapa umræðu um efni greinanna. Netla er spennandi og metnaðarfullt tímarit, komið á fót af eldheitu og bráðgreindu hugsjónafólki. Væntingar um samstarf margra skólastiga Samstarf Skólavörðunnar og Netlu er í burðarliðnum og verður að lágmarki í því fólgið að Netlufréttir birtast öðru hvoru í Skólavörðunni. Vonir standa til að samstarf náist við aðila á öllum skólastigum sem heyra undir Kennarasambandið um birtingu fræðilegs efnis í blaðinu, t.a.m. útdrætti greina sem kæmu svo í heild á Netinu, ýmist á sérvefjum eða vef Kennarasambandsins. Gaman væri að fá viðbrögð lesenda Skóla- vörðunnar við þessum hugmyndum, en nefna má að hugmyndir um að setja Skóla- vörðuna sem slíka á Netið hafa legið í salti á meðan vinna við nýjan vef Kennarasam- bandsins er í gangi. Hvernig svo sem málin þróast er ljóst að skólamálaumræða á Íslandi hefur eignast nýjan farveg þar sem Netla er. Kíkið á netla.khi.is! Ávarp Ólafs Proppé í tilefni af opnun Netlu: Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Ís- lands hefur nú í tíu ár gefið út tímaritið Uppeldi og menntun. Tilgangurinn með útgáfu þess var að skapa vettvang fræði- legrar og faglegrar umræðu um uppeldis- og menntamál á Íslandi. Það hefur tekist á þessum tíu árum að festa tímaritið í sessi og er hluti þess um fræðilegt efni viður- kenndur af kjaranefnd og matsnefndum íslenskra háskóla sem ritrýndur vettvangur fræðimanna fyrir tímaritsgreinar. Tímarit- ið Uppeldi og menntun, sem kemur út einu sinni á ári, er þó háð ýmsum ann- mörkum sem fyrst og fremst byggjast á út- gáfuforminu, þ.e. hefðbundinni útgáfu prentaðs mál. Nú hefur verið ráðist í það stórvirki að opna viðbótarvettvang fyrir fræðilega og faglega umræðu með útgáfu veftímarits sem hlotið hefur heitið Netla - veftímarit um uppeldi og menntun. Í Netlu munu birtast fræðigreinar, frásagnir af þróunar- starfi, umræðugreinar, hugleiðingar, pistl- ar, viðtöl, ritfregnir og ritdómar um upp- eldis- og menntamál. Hluti Netlu verður helgaður ritrýndum fræðigreinum og verð- ur þess sérstaklega getið þegar ritrýning hefur farið fram. Við útgáfuna verður eftir föngum leitast við að nýta kosti vefsins sem miðils fram yfir hefðbundið prentað mál. Þar geta höfundar til dæmis birt efni með hljóðdæmum, myndskeiðum og krækjum. Þá er gert ráð fyrir að möguleikar vefsins til gagnvirkni verði nýttir, til dæmis með umræðu um afmörkuð efni í tímaritinu. Hópur starfsmanna Kennaraháskóla Ís- lands hefur unnið afar gott verk við undir- búning útgáfunnar. Í ritstjórn Netlu eru: Ingvar Sigurgeirsson prófessor, Sólveig Jakobsdóttir dósent, Torfi Hjartarson lekt- or, Þórunn Blöndal lektor og Þuríður Jó- hannsdóttir verkefnisstjóri. Það var Sólveig Jakobsdóttir sem hóf um- ræðu um útgáfu veftímaritsins og vann hug- myndinni brautargengi innan Kennarahá- skólans. Þess er einnig vert að geta að Torfi Hjartarson hefur hannað útlit Netlu af mik- illi smekkvísi. Þakka ég þeim öllum fyrir hönd Kennaraháskólans fyrir vel unnin störf. Netla er nýr og spennandi vettvangur fyrir alla þá sem hafa áhuga á og vinna við uppeldi, kennslu, umönnun og þjálfun. Vonir okkar standa til þess að Netla efli rannsóknar- og þróunarstarf á umræddum fag- og fræðasviðum og verði starfi í leik- skólum landsins, grunnskólum, framhalds- skólum og háskólum til framdráttar sem og á sviði símenntunar og fullorðinsfræðslu. Net lufrétt i r Þann 9. janúar 2002 hófst útgáfa vefræns tímarits um uppeldis- og menntamál á vef Kennaraháskóla Ís- lands. Slóðin er netla.khi.is en dagur- inn var valinn með hliðsjón af sex- tugsafmæli Ólafs Proppé rektors Kennaraháskólans. Netla - nýtt veftímarit 9

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.