Skólavarðan - 01.09.2002, Side 10
„Sjúkrasjóður Kennarasambands Íslands
er sérstakur, sjálfstæður sjóður og sjóð-
félagar eru þeir sem greitt er fyrir í sjóðinn
af atvinnurekendum,“ segir María Norð-
dahl starfsmaður sjóðsins en ásamt henni
vinnur Ómar Árnarson fyrir sjóðinn.
„Vinnuveitendur hófu greiðslur þann 1.
janúar 2001 og um hálfu ári síðar var sjóð-
urinn orðinn nógu burðugur til að hægt
væri að byrja að veita úr honum.“ Hægt er
að sækja um styrk úr sjúkrasjóði hvenær
sem er. Að sögn Maríu fer afgreiðslutími
umsókna aldrei yfir einn mánuð ef öll gögn
eru í lagi og yfirleitt er greitt út tvisvar til
þrisvar í mánuði.
Fylgir því mikil pappírsvinna að sækja um
úr sjóðnum?
„Nei, þetta er mjög einfalt umsóknar-
ferli. Einungis þarf að fylla umsóknareyðu-
blaðið samviskusamlega út og skila frum-
ritum kvittana og einnig læknisvottorðum
þegar það á við,“ segir María. „Umsóknar-
eyðublöð eru á heimasíðu KÍ, hér á skrif-
stofunni á Laufásvegi 81 og einnig er hægt
að nálgast þau hjá trúnaðarmönnum.“
Vegna hvers er hægt að sækja um greiðslur
úr sjóðnum?
„Sjúkrasjóður styður fyrst og fremst
sjóðfélaga en þó er hægt að sækja um
sjúkradagpeninga vegna veikinda maka og
barna undir átján ára aldri og útfararkostn-
að vegna barna yngri en átján ára. Stjórn
sjóðsins leggur áherslu á að hann sé fjöl-
skylduvænn eins og þessar styrkveitingar
endurspegla,“ segir María. „Fyrir utan
sjúkradagpeninga eru fjórir greiðsluflokkar
sem skilgreina veitingar úr sjóðnum. Þeir
eru meðferðarflokkur, fyrirbyggjandi
flokkur, útfararstyrkur og loks er veittur
styrkur vegna dvalar á Heilsustofnuninni í
Hveragerði.“
Meðferðarflokkur
Geturðu útskýrt nánar hvað felst í flokkun-
um, hverjum fyrir sig?
„Já, áberandi mest er sótt um styrk vegna
einhvers sem fellur undir meðferðarflokk-
inn. Þar er um að ræða til dæmis sjúkra-
þjálfun og sjúkranudd. Til að byrja með
fékk fólk 700 krónur fyrir hvert skipti hjá
sjúkraþjálfara, sjúkranuddara, hnykkjara,
iðjuþjálfa eða talmeinafræðingi, en við höf-
um nú hækkað þessar greiðslur upp í 1000
krónur þar sem það var mat stjórnar að
sjóðurinn þyldi þá hækkun. Langmest er
sótt um styrki vegna sjúkraþjálfunar. Vegna
meðferðar hjá dýrari meðferðaraðilum,
eins og sálfræðingum, hækkuðum við
greiðslur úr 700 krónum upp í 2500 krónur
fyrir hvert skipti. Í meðferðarflokknum eru
styrkt allt að 15 skipti á hverju 12 mánaða
tímabili. Mér heyrist að tími hjá sálfræð-
ingi kosti á bilinu 3500-5500. Það er full
ástæða til að benda fólki á þennan mögu-
leika sem lítt hefur verið nýttur hingað til.“
Hvað með meðferð hjá geðlækni?
„Við veitum ekki til hennar þar sem hún
er nú þegar niðurgreidd af hinu opinbera.“
Fyrirbyggjandi flokkur
„Undir þennan flokk fellur til dæmis
endurgreiðsla vegna krabbameinsskoðunar.
Vonandi munu allar konur sækja um þetta
þegar þær eru boðaðar í skoðun annað
hvert ár en styrkurinn gildir að
sjálfsögðu fyrir allar fyrirbyggj-
andi krabbameinsrannsóknir.
Undir þennan flokk fellur líka
áhættumatsskoðun hjá Hjarta-
vernd en ekki hefur mikið verið
sótt um styrk vegna hennar. Fólk
virðist ekki fara mikið af eigin
hvötum í þessa skoðun, því mið-
ur. Hún kostar 4930 krónur og við greið-
um hana að fullu. Í þessum flokki þarf ekki
að framvísa vottorði með umsókn,“ segir
María.
Aðrir flokkar
„Sjúkradagpeningar eru hugsaðir fyrir
sjóðfélaga sem hafa þegar fullnýtt veikinda-
rétt sinn og eru komnir út af launaskrá,
einnig til að brúa bil fram að lífeyris- eða
örorkugreiðslum ef fólk er komið í þá
stöðu að geta ekki snúið til starfa að nýju.
Veittar eru 120 þúsund krónur á mánuði í
allt að 270 daga. Þá eru sjúkradagpeningar
veittir í allt að 120 daga vegna alvarlegra
veikinda barna eða maka. Þessi réttur hefur
tvisvar verið nýttur. Sem betur fer hefur
enginn sótt um útfararstyrk vegna barns en
nokkrir sjóðfélagar hafa látist og þá eru
greiddar 200 þúsund krónur til lögerfingja.
Einnig geta lögerfingjar fyrrverandi sjóð-
félaga sótt um útfararstyrk séu ekki liðin
meira en tvö ár frá því hann hætti störfum
og þá eru veittar 100 þúsund krónur.
Loks er það Heilsustofnunin í Hvera-
gerði. Sjóðurinn styrkir félaga með 1000
krónum á dag í allt að 20 daga, en heildar-
kostnaður við dvöl er á bilinu 2200 til rúm-
lega 3000 á dag ef ég man rétt.“
Á áttunda hundrað umsókna
Umsóknir um styrk úr sjúkrasjóði eru
orðnar rúmlega 730 talsins til þessa dags,
að hluta til sækir sami einstaklingur um
oftar en einu sinni. „Við höfum ekki synjað
mörgum,“ segir María, „enda sækir fólk al-
mennt ekki um nema hafa kynnt sér regl-
urnar áður. En í upphafi þurftum við að
synja nokkuð mörgum sem sóttu um aftur í
tímann. Því miður höfum við einnig þurft
að synja styrkumsóknum vegna lyfjakaupa
og ferðakostnaðar.
Auðvitað er vilji til að styrkja sem allra
mest en það er ekki góð fjármálastjórn að
standa frammi fyrir sjóðþurrð. Einhver
varasjóður verður ávallt að vera fyrir hendi,
til dæmis vegna hamfara eða farsótta. Í út-
hlutunarreglum er að finna ákvæði um að
unnt sé að bregðast við slíku.
Hlutverk stjórnar er að verða við óskum
félagsmanna eins og kostur er og gæta fjár-
muna sjóðsins og ávaxta með sem bestum
hætti. Það er alltaf spurning hvernig best sé
að þróa svona sjóði en grunnleiðirnar eru
tvær; að styrkja sem flesta í sem flestu eða
færri og þá meira. Við höfum valið fyrri
leiðina. Best er að geta afgreitt allt sem
reglurnar rúma. Í upphafi var reiknað út
hverju sjóðurinn gæti staðið undir en núna
virðist okkur að hann þoli meira en fyrstu
Sjúkras jóður KÍ
12
Hinn nýi sjúkrasjóður Kennarasam-
bands Íslands, sem byrjað var að
veita úr í sumarlok á síðastliðnu ári,
er nú þegar farinn að standa sam-
bærilegum sjóðum á sporði. Metnað-
ur sjóðsstjórnar er mikill og reglur
sjóðsins eru endurskoðaðar tvisvar á
ári með tilliti til fenginnar reynslu,
enda sjóðurinn ungur og í mótun.
Strax orðinn öflugur
„Hlutverk stjórnar er að verða
við óskum félagsmanna eins
og kostur er og gæta fjármuna
sjóðsins og ávaxta með sem
bestum hætti. Það er alltaf
spurning hvernig best sé að
þróa svona sjóði en grunn-
leiðirnar eru tvær; að styrkja
sem flesta í sem flestu eða
færri og þá meira. Við höfum
valið fyrri leiðina.“
Stjórn sjúkrasjóðs:
Svava Pétursdóttir, Heiðarskóla
Heiða Björk Rúnarsdóttir, Kópasteini
Ingvar Ingvarsson, Brekkubæjarskóla
Kristín Stefánsdóttir, Tónlistarskóla Kópavogs
Sigrún Toby Herman, Menntaskólanum í Reykjavík