Skólavarðan - 01.09.2002, Síða 17

Skólavarðan - 01.09.2002, Síða 17
hugtakið umhverfisvænn felur í sér, en okkar starf er að gera þetta að eðlilegum og sjálfsögðum þætti í lífinu og kenna þeim að læra að þekkja hugtökin og táknin,“ segir Anna Borg. „Í leikskólanum eru um eitt hundrað börn og starfsfólk er um þrjátíu manns. Þrátt fyrir þennan fjölda hefur sá árangur náðst að aðeins fer ein og hálf tunna af rusli frá leikskólanum á tíu daga fresti sem er frábært! Allt annað er endurnýtt eða far- ið með það í endurvinnslu. Krakkarnir á Norðurbergi eru óþreytandi þegar kemur að umhverfisvernd, þau flokka og skola fernur sem þau skila í grenndargáma og þau fylgjast með hvernig maturinn brotnar hægt og rólega niður og verður að moltu, að jarðvegsbæti fyrir gróðurinn í garðinum. Börnin rækta sitt eigið grænmeti, nýta vel pappír og vinna með hluti úr umhverfinu í listakróknum án þess að ganga á náttúruna. Þau eru meira að segja með fjöru í fóstri og svona mætti lengi telja. „Á hverri deild eru ílát til flokkunar. Þar er Svangi Mangi, fata sem „borðar“ matar- afganga, en hann er á endanum tæmdur í tunnuna fyrir lífrænan úrgang. Önnur fata er fyrir ólífrænan úrgang. Það er svo hlut- verk barnanna að tæma föturnar, þau skiptast á um að vera umsjónarmenn og koma grænmetis- og ávaxtaleifunum eða kjöti og fiski í safnkassana. Þannig eru þau þátttakendur frá upphafi til enda. „Mikið og gott starf hefur verið unnið á Norðurbergi og skólinn hlotið viðurkenn- ingar í umhverfismálum. Þeir sem hafa á- huga á að kynna sér betur starfið sem þarna fer fram er bent á skýrslu um þróunarverk- efni skólans, sem kom út árið 1998, og skýrslu um ferðina til Danmerkur og Sví- þjóðar frá 2000 eða að setja sig í samband við leikskólann Norðurberg, því að hvort sem við erum börn eða fullorðin er upp- lifunin sterkust. Steinunn Þorsteinsdóttir Umhverfismennt í le ikskólum 20 Umhverfismennt í grunnskólum Grænfáninn veittur Fossvogsskóla Grænfáninn er, eins og segir á heimasíðu Landverndar sem veitir fánann, „umhverf- ismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um góða fræðslu og umhverfis- stefnu í skólum. Markmið verkefnisins er að efla vitund nemenda, kennara og ann- arra starfsmanna skólans um umhverfis- mál.“ Á heimasíðunni segir ennfremur að „skólar geta sótt um Grænfánann ef þeir taka þátt í og ljúka verkefni sem miðar að því að efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfis- mál.“ Í vor fengu þrír skólar Grænfánann; Sel- ásskóli í Reykjavík, Fossvogsskóli í Reykja- vík og Andakílsskóli í Borgarfirði. Ljós- myndari Skólavörðunnar heimsótti Foss- vogsskóla og tók myndir á hátíðarsýningu þegar starf nemenda um veturinn var sýnt og kynnt og auðvitað var Grænfáninn dreg- inn að húni. Forsíðu Skólavörðunnar að þessu sinni prýðir mynd af sýningunni, en verkefnisstjóri þemavinnu nemenda var Auður Þórhallsdóttir deildarstjóri við skól- ann. Auður Þórhallsdóttir verkefnisstjóri sýnir vinnu nemenda.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.