Skólavarðan - 01.05.2003, Page 5

Skólavarðan - 01.05.2003, Page 5
Ges task r i f6 bera ábyrgð á um 10% vinnumarkaðarins á Íslandi. Að vera kosinn í sveitarstjórn hefur í för með sér að viðkomandi einstaklingur hef- ur tekið að sér vinnuveitendahlutverk og í því felst sérstök ábyrgð. Þessu hlutverki má skipta í tvennt: „Annars vegar er um að ræða mótun og ábyrgð á þeirri starfsmannastefnu sem hver sveitarstjórn ákveður að gilda skuli í viðkomandi sveitarfélagi og hins vegar ber hver sveitarstjórn ábyrgð á þeim kjaraþáttum sem starfsmönnum sveitarfélagsins eru boðnir.“ Nýttu ekki að fullu aukafjárveitingu Í fjárhagsáætlun borgarsjóðs fyrir árið 2003 eru áætlaðir rúmlega 9 milljarðar í fræðslumál og af þeim fara um 80% í laun og launa- tengd gjöld en um 20% í annan rekstrarkostnað. Fjárhagsrammi fræðslumála er því sá stærsti á vegum Reykjavíkurborgar og skiptist hann á milli yfirstjórnar, grunnskóla Reykjavíkur, listaskóla og skólahljómsveita, fullorðinsfræðslu og styrkja til fræðslumála. Sér- stakt reiknilíkan er notað til að skipta fjármagninu og er búinn til fjárhagsrammi fyrir hvern skóla. Í reiknilíkaninu er gengið út frá ákveðnum forsendum og taka þær flestar mið af nemendafjölda hvers skóla og stærð skólahúsnæðis. Einnig er tekið mið af aldri og samsetningu kennarahóps hvers skóla. Samkvæmt Stjórnsýsluend- urskoðun Borgarendurskoðunar er reiknilíkanið mun sanngjarnara en það fyrirkomulag sem áður var við úthlutun fjár til skóla. Þar sem hlutfall launa af heildarútgjöldum hjá grunnskólum er um 80% telja skólastjórar sig hafa lítið fjárhagslegt svigrúm. Borgar- endurskoðun bendir þó á að skólarnir hafi tækifæri til að hafa áhrif á tæp 20% af fjárhags- rammanum t.d. með hag- stæðari innkaupum. Þá kemur einnig fram bæði í stjórnsýsluendurskoðun- inni og ársskýrslu Fræðslumiðstöðvar fyrir árið 2001 að skólastjórar nýttu ekki að fullu auka- fjárveitingu vegna kjara- samningsins sem ætluð var til að auka sveigjanleika og greiða fyrir önnur fagleg störf kennara. Þetta kann á einhvern hátt að skýra óánægju kenn- ara, eins og hún birtist í Vinnustaðagreiningunni, með að fá ekki greitt fyrir auka störf ásamt því að skólastjórar hafi ekki notað svo- kallaðan launapott til að umbuna fyrir álag og ábyrgð í starfi eins og til hans var stofnað. Hef ég tvívegis vakið máls á þessu í borgar- stjórn. Að læra með virkri þátttöku Í lok apríl fór ég sem fulltrúi fræðsluráðs í námsferð skólastjóra til Minneapolis. Fyrst sátum við þriggja daga ráðstefnu um „Service learning“ en seinni hluta ferðarinnar nýttum við til skóla- heimsókna. Ráðstefnan var haldin í gríðarlega stórri ráðstefnuhöll og í boði voru fleiri hundruð smærri fyrirlestrar sem við völdum okkur eftir áhugasviði og efni. En hvað er „service learning“? Gerður G. Óskarsdóttir fræðslustjóri hefur kallað það þátttökunám eða þjónustunám sem mér finnst ná því betur. Hugtakið var skil- greint með lagasetningu í fyrsta sinn í „The National and Comm- unity Service Act of 1990“: „Hugtakið „service learning“ er aðferð sem gerir nemendum eða þátttakendum fært að læra með virkri þátttöku í vandlega skipu- lagðri þjónustu sem: • er unnin með þarfir bæjarfélagsins í huga í tengslum við grunnskóla, framhaldsskóla, æðri skólastofnun eða samfélagsþjón- ustu í byggðarlaginu og styrkir borgaralega ábyrgð; • er samfléttuð og eflir námsefni nemenda eða fræðsluþætti byggðarlagsins ásamt þjónustuþáttum sem nemendur taka þátt í og gefur þá nemendum skipulagða möguleika til að meta verkefnið. (Section 101 (23))“ (ath lausl. þýtt). Áhrif þjónustunáms sem byggir á námskrá (aðalnámskrá/skóla- námskrá) eru sögð mun meiri en t.d. vettvangsnám þar sem nem- endur fara út í samfélagið og vinna einhverja þjónustu án tengsla við námsmarkmið eða eru að vinna sjálfboðastörf sem ekki tengjast námsmarkmiðum. Við fengum reyndar kynningu á velheppnuðu þjónustunámi sem virtist fara fram algjörlega utan skólans. Til þess að þjónustunám gangi vel upp og skili þeim árangri sem vænst er þarf að huga vel að skipulagi, undirbúningi og framkvæmd. Þá er einnig mikilvægt að íhugun eða speglun sé stöðugur þáttur í nám- inu, að nemendur kynni fyrir öðrum það efni sem þeir hafa verið að fást við og að nemendur eigi þess kost að fá viðurkenningu fyrir vinnu sína. Reyndar voru skiptar skoðanir um það síðasttalda. Þótti nóg um frjálsræðið Þegar við ræddum málin í lok ráðstefnunnar fundum við þó nokkur dæmi um þjónustunám í reykvískum skólum. Það verður gaman að fylgjast með því hvernig skólastjórunum tekst að fá kennarana til að flétta þjónustunám inn í námsgreinarnar. Við heimsóttum þrjá skóla, hvern öðrum ólíkari. Tveir hinna fyrri byggja starfið á „project“ námi eða „nemendastýrðri vinnu“. Mér þótti eiginlega nóg um frjálsræði nemenda í þeim fyrri enda svo nýbyrjuð að kenna aftur að ég er sjálfsagt ennþá kennari af „gamla skólanum“. Nemendur mega velja nánast hvaða verkefni sem er en þurfa að tengja það öllum náms- greinum og sannfæra síðan þrjá fullorðna um mikilvægi þess. Við töluðum við stúlku sem valdi ítölsku en þar sem enginn kennaranna talaði ítölsku varð að leita utan skólans og svo heppilega vildi til að von var á konu til bæjarins sem dvalið hafði í Ítalíu og gat því tekið að sér að segja stúlkunni til! Skólinn var auk þess heldur illa búinn, a.m.k. á íslenskan mælikvarða, með gömlum ósamstæðum húsgögnum. En krakkarnir virtust ánægðir. ( Heimasíða skólans: www.mncs.k12. mn.us) Ég velti því fyrir mér þegar ég lít yfir nemendahópinn minn, gæti þess að allir fylgist með og fer sameiginlega yfir verkefnin, hvort ég sé á réttri leið? Aðalnámskráin kveður á um sterkari ein- staklinga, lífsleikni, sjálfstæða nemendur, jafnrétti til náms, ólíkar námsleiðir, sveigjanlegt skólakerfi og fjölbreyttar kennsluaðferðir. Samræmdum lokaprófum hefur verið fjölgað úr fjórum í sex og eru valfrjáls sem mun án efa draga stórlega úr stýringu þeirra á skóla- starfið. Markmiðið er að gera nemendur ábyrgari á eigin námi. Lífið er ferðalag og reynslan er til þess að læra af. Pistillinn minn fjallaði annars vegar um starf borgarfulltrúans og hins vegar þjón- ustunám sem ég tel að fari afskaplega vel saman. Markmiðið með þjónustunáminu eins og lífsleikninni er að gera nemendur að góð- um borgurum og mér finnst það markmið hæfa borgarfulltrúanum ágætlega, þar sem hann á að sinna borgurunum fyrst og fremst. Guðrún Ebba Ólafsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og kennari. Til þess að þjónustunám gangi vel upp og skili þeim ár- angri sem vænst er þarf að huga vel að skipulagi, und- irbúningi og framkvæmd. Þá er einnig mikilvægt að íhugun eða speglun sé stöðugur þáttur í náminu, að nemendur kynni fyrir öðrum það efni sem þeir hafa ver- ið að fást við og að nemendur eigi þess kost að fá við- urkenningu fyrir vinnu sína.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.