Skólavarðan - 01.05.2003, Blaðsíða 25

Skólavarðan - 01.05.2003, Blaðsíða 25
Samhliða námstefnunni verð- ur haldið mót 300 norrænna tónlistar- og listaskólanema á aldrinum 12-18 ára. Auk þess að vinna að tónsköpun undir handleiðslu leiðbeinenda frá Guildhall School of Music and Drama, mun hluti þessara ung- menna koma fram á tónleikum á námstefnunni. Mótið er skipulagt af Samtökum tónlistarskólastjóra í samvinnu við Íslandsdeild NMPU. Gert er ráð fyrir að á annað hundrað þátttakendur muni sækja námstefnuna, enda er boðið upp á framúrskarandi inn- lenda og erlenda fyrirlesara og leiðbein- endur. Kennarar eru hvattir til að taka þátt í námstefnunni, það er ekki á hverjum degi sem svona gott tækifæri býðst til að fræðast um margt það sem er efst á baugi í tónlist- arkennslu og til samræðna og samvinnu við erlenda og innlenda starfsfélaga. Þátttökugjald er 26.000 kr. og tilkynn- ingareyðublað og allar nánari upplýsingar er að finna á www.nmpu.org. Upplýsinga- blað um námstefnuna hefur jafnframt verið sent félögum í FT og TKÍ. Námskeið fyrir stjórnendur barnakóra Einn markverðasti liður námstefnunnar er sérstakt námskeið fyrir stjórnendur bar- nakóra.Leiðbeinendur eru danski kórstjór- inn og tónskáldið John Høybye og Kari Ala-Pöllänen, stjórnandi hins heimsþekkta Tapiola-kórs í Finnlandi. Vonandi verður þetta framtak verði til að auka veg nor- rænnar barnakóratónlistar hér á landi - en það á hún svo sannarlega skilið. John Høybye mun kynna verk sín og landa sinna og nýtur þar aðstoðar Gradale- kórs Langholtskirkju og Jón Stefánssonar. Kari Ala-Pöllänen kynnir brot af því besta sem norræn tónskáld hafa samið fyrir barnakóra og mun hann vinna með yngri deild Skólakórs Kársness. Fjölbreytt dagskrá Fyrirlestrar um eftirtalin efni eru á dag- skrá kl. 8:30-9:30 á fimmtudag, föstudag og laugardag: 1. Robert Faulkner: Tónlistarmenntun og félagsleg tengsl: Týndi hlekkurinn. 2. Ole Kristian Hansen: Heili og tónlist - hvernig má notfæra sér niðurstöður nútíma rannsókna á heilastarfseminni í tónlistar- flutningi og tónlistarkennslu. 3. Sigurður Rúnar Jónsson: Fyrri menn er fræðin kunnu, eitt og annað smálegt um íslensku þjóðlögin. Í kynninga- og vinnuhópahluta nám- stefnunnar er gert ráð fyrir u.þ.b. 25 dag- skrárliðum, ávallt þrjú eða fjögur atriði samhliða. Víða er leitað fanga og er efninu ætlað að höfða til ólíkra hópa, þannig að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal annarra umfjöllunarefna á nám- stefnunni eru: • Olli Vartiainen: Gildi hljómsveitarleiks sem hluta af heildstæðu tónlistarnámi. • Eva Georgii-Hemming og Mats Runberg: Hafa rannsóknir hagnýtt gildi? Tvær rannsóknir á tónlistarkennslu í sænskum skólum kynntar. • Robert Faulkner: Skapandi samfélag. • Ingrid Oberborbeck og Bodil Ørum: Tónlistaruppeldi ungra barna og hinn skapandi kennari. • Kjell Skyllstad: Fjölbreytileiki tónlistar- innar - fjölmenningarlegar aðferðir við tónlistarkennslu barna. • Elfa Lilja Gísladóttir og Kristín Vals- dóttir: Hvernig getum við skapað tónlist með líkamanum? • Elías Davíðsson og Karen Valeur með þátttöku danskra og íslenskra nemenda: Ferskir hljómar fyrir strengi (og önnur hljóðfæri). • Elsebeth Kirk: Hvaða þættir hafa áhrif á tónlistarnám? Hverjir læra tónlist og hvers vegna? • Kirsten Fredens: Efling tónlistarnáms, m.a. með tilliti til fjölgreindarkenningar Howard Gardner. • Pelle Gustafson og Pellepops: Tónlistar- hópurinn „Pellepops“. Pellepops er hópur ungmenna sem spilar m.a. þjóðlagatónlist á strengjahljóðfæri. • Astrid Marie Nøkleby: Ný kennsluaðferð fyrir unga básúnunemendur. • Christian Bennedsen: Samspil nemenda - skref í þróun píanókennslu. • Liisa Räsänen og börn frá Cygnaeus skólanum: Tónlistarbekkur í finnskum grunnskóla. Daglegir tónleikar eru á dagskrá nám- stefnunnar, bæði að loknu hádegishléi og eftir kvöldmat. Þar munu börn og ungling- ar frá öllum aðildarlöndum NMPU gleðja okkur með söng, dansi og hljóðfæraleik. Þá er „Nordisk sang“ fastur liður á dagskránni þar sem við munum m.a. æfa saman ný norræn kórlög sem samin verða sérstaklega í tilefni 50 ára afmælis NMPU. Lokatón- leikar verða haldnir í Vetrargarðinum í Smáralind og m.a. mun þar verða frumflutt tónverk eftir þátttakendur á norræna tón- listar- og listaskólamótinu. Námstefna 28 Næsta námstefna NMPU verður hald- in í Tónlistarhúsi Kópavogs dagana 25.-29. júní 2003 og er yfirskrift hennar „Tónlistin í samfélaginu“. Námstefnan er ætluð tónlistarkennurum á öllum skólastigum og gefst þátttakendum kostur á að velja á milli ólíkra við- fangsefna og hlýða á fjölbreytta tón- leika meðan á námstefnunni stendur. Tónlistin í samfélaginu - NMPU námstefna í Kópavogi í júní Hálfrar aldar afmæli NMPU er 50 ára á þessu ári og verður haldið upp á afmælið í tengslum við námstefnuna í sumar. Mikilvægasta verkefni samtakanna NMPU er að örva norrænt samstarf á sviði tónlistaruppeld- is, m.a. með því að gangast fyrir norræn- um námstefnum annað hvert ár. Félag tónlistarskólakennara og Tónmenntar- kennarafélag Íslands mynda saman Íslandsdeild NMPU.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.