Skólavarðan - 01.05.2003, Blaðsíða 18
Félagsmenn geta nú bókað orlofshúsnæði
og greitt á netinu. Þetta á þó ekki við um
orlofshús sem var úthlutað í sumar.
Hægt er að borga og bóka eina til þrjár
nætur í tilteknum húsum sem hafa fengið
nafnið FLAKKARINN. Þessi tilraun er
gerð í sumar til að kanna hvort breyta eigi
ríkjandi kerfi, sem felst í að leigja allt hús-
næði í sumarúthlutun í vikuleigu.
Verði þetta fyrirkomulag vinsælt þá verða
fleiri FLAKKARA-hús í boði sumarið 2004.
Á nýja vefnum er hægt að sjá hvaða hús-
næði orlofssjóðs er laust. Vefurinn uppfærist
við hverja nýja bókun, þannig að hann sýnir
alltaf nýjustu upplýsingar um stöðuna.
Hægt verður að bóka og greiða fyrir or-
lofshúsnæðið allt að fjóra mánuði fram í tím-
ann. Það húsnæði sem ekki gekk út við út-
hlutun hefur verið sett inn á netið og þetta
verður gert áfram með það húsnæði sem ekki
verður endurúthlutað. Alltaf bætast einhver
ný hús við í maí og júní. Einnig geta komið
góð ferðatilboð eins og t.d. frá Sumarferðir.is
Félagar eru því hvattir til að fylgjast vel
með á netinu.
Þurfi félagsmaður að hætta við að leigja
og skila aftur orlofshúsnæði sér skrifstofa
Orlofssjóðs um endurgreiðslu leiguverðsins.
Ef húsnæði er skilað gilda þær reglur að
greitt er að fullu til baka þar til tveim vikum
fyrir upphafsdag leigu. Eftir það eru endur-
greidd 75% af leiguverðinu.
Við lok sumarleigu, um mánaðamótin
ágúst/september, verður allt húsnæði orlofs-
sjóðs til leigu á nýja orlofsvefnum. Það er
því mikilvægt fyrir þá sem ætla að fá hús-
næði í haust að bóka sig tímanlega áður en
allt fyllist.
Eins og áður gildir punktaeign við leigu
um jól, páska og í sumarúthlutun. Á öðrum
tímum gildir reglan „sá sem fyrstur bókar og
borgar“.
Við í stjórn Orlofssjóðs ásamt starfs-
mönnum sjóðsins vonum að félagsmenn taki
þessari nýjung vel og nýti sér Veraldarvefinn
til að sjá hvað er í boði í orlofsmálum og
„bóka og borga“ orlofshúsnæði.
Nýtt hús í Kjarnaskógi
Miðvikudaginn fyrir páska fékk Orlofs-
sjóður afhent fjórða húsið í Kjarnaskógi við
Akureyri. Húsið er rúmir 70fm með stórri
verönd og heitum potti. Frágangur við
smíði hússins er mjög góður en húsið er
smíðað á Lambeyri í Skagafirði og er bygg-
ingameistarinn Friðrik Rúnar Friðriksson. Í
húsinu eru tvö herbergi með hjónarúmi og
herbergi með koju. Að auki er koja í öðru
hjónaherberginu. Í húsinu er því svefnpláss
fyrir átta manns. Ný útfærsla er á eldhúsinn-
réttingu. Hún er stærri en í hinum húsunum
og með meira borðplássi. Uppþvottavél er í
húsinu.
Kjarnaskógur er orðinn vinsælasti staður-
inn í sumarúthlutun. Nú bárust 1363 um-
sóknir. Þrjú hundruð og einn umsækjandi,
eða 22.1% umsækjenda, sóttu um Kjarna-
skóg í 1. sæti. Árið 2002 voru það 8% um-
sækjenda. Því hefur framkvæmdastjórn or-
lofssjóðs tryggt sjóðnum tvær lóðir til við-
bótar á svæðinu.
Ekki verður byggt á þeim lóðum á allra
næstu árum, nema til komi hækkun orlofs-
gjalds frá atvinnurekendum og tekjur sjóðs-
ins aukist.
Orlofsmál
Þann 1. maí síðastliðinn var brotið blað
í þjónustu stéttarfélaga við félagsmenn
sína með því að Orlofssjóður Kennara-
sambandsins opnaði nýja bókunar- og
greiðslusíðu þar sem boðið er upp á að
bóka og greiða á netinu. Veffang síð-
unnar er: https://secure.ki.is/orlofsvefur/
Nýjung í orlofsmálum
19