Skólavarðan - 01.05.2003, Side 12

Skólavarðan - 01.05.2003, Side 12
fyrir að eitthvað slæmt gerist,“ sagði Ólaf- ur. „Þetta er eins konar forvarnarstarf og þetta er í okkar valdi.“ Tilgangur? Fjármögnun? Boðið var upp á fyrirspurnir og umræður í lok fundarins og margir tóku til máls. Ragnar Sigurðsson sagði reynsluna af sam- ræmdum prófum í grunnskólum mjög mis- jafna. Þegar prófin voru tekin upp þar voru grunnskólar að skila mjög misjöfnu starfi enda skólastjórar valdir eftir flokksskírtein- um á þeim tíma. Hann sagði hins vegar enga þörf á slíkum prófum í framhaldsskól- um því enginn væri að skila lélegu starfi af því að samkeppnin um nemendur væri svo mikil. Sigurborg Matthíasdóttir sagði ljóst að í þessu máli væru margar hugverur og mis- munandi afstaða eftir félagslegu hlutverki! Hún velti upp fjármögnun prófanna og sagði reiknilíkanið ekki gera ráð fyrir út- gjöldum skóla vegna þeirra. „Af hverju eru matsnefnd menntamálaráðuneytisins og Námsmatsstofnun ekki úti í skólunum að skoða prófin sem kennarar eru að búa til þar?“ spurði Sigurborg. „Af hverju þarf að blanda mörg þúsund framhaldsskólanem- endum í málið?!“ Jón Hannesson benti á að hægt væri að meta skólana á allt annan hátt, til dæmis eins og Sigurborg stakk upp á eða með því að draga út skóla og fög, meta til dæmis íslensku í MR o.s.frv. Vigfús Geirdal varpaði þeirri spurningu til Harðar hvort við hefðum efni á þessu og hvað samræmd próf kostuðu. „Samræmd próf og sjálfstæð hugsun, eru þetta ef til vill „a contradiction in terms?“ spurði Vigfús. „Er þetta efst á forgangslista? Er ekki brott- fall nemenda stærra mál? Tekur samræmt stúdentspróf á því? Hvaða kannanir hafa verið gerða á grunnskólastigi? Þegar sam- ræmd próf voru tekin upp í grunnskólum átti að útrýma samkeppnishugsun lands- prófsins en raunin varð önnur, samkeppnin varð miklu meiri! Grunnspurningin er: Hvað sem okkur kann að finnast, er þetta þá það mikilvægasta fyrir framhaldsskólann?“ Ragnheiður Bóasdóttir spurði Hörð hvort framhaldsnám til stúdentsprófs af starfsnámsbrautum væri til umræðu í ráðu- neytinu og hvort einhverra breytinga væri að vænta þar. Aðalheiður Steingrímsdóttir sagðist telja mikilvægast að framkvæmd prófanna yrði fagleg. Hún sagði að prófin ættu að hefjast í maíbyrjun og skólaútskriftir væru í maí- lok, fyrst einkunnir ættu að fara á stúdents- prófskírteinin myndu þá prófin fara að stýra lengd skólaársins? G. Pálmi Magnússon bar þá tilgátu undir Hörð um aðdraganda ákvörðunarinnar um samræmd stúdentspróf að í áratugi hefðu farið fram vísindalegar athuganir og í kjöl- far þeirra hefðu ráðuneytismenn dregið þá ályktun að þetta væri það besta sem þeir gætu gert (!) Júlíus Björnsson tók til máls og sagði meðal annars að ekkert lægi fyrir um kostnað prófanna, en þrír til fjórir starfs- menn yrðu ráðnir til að sinna þeim hjá Námsmatsstofnun. Hann sagði 24 daga vera ætlaða til yfirferðar þeirra og það væri bundið í reglugerð. „Þetta er naumur tími,“ sagði Júlíus og viðurkenndi að þetta þyrfti að skoða nánar. Hörður Lárusson minnti á að það væri ekki ákvörðun ráðuneytismanna að halda þessi próf heldur átján manna nefndar frá 1994 og svo pólitísk ákvörðun viðkomandi ráðherra. Starfsfólk hefði ekki verið spurt.Varðandi fyrirspurn Ragnheiðar sagði hann að ekki hefði verið rætt um breytingar á viðbótarnámi til stúdentsprófs af starfs- brautum. Hann sagðist ekki vita hvað sam- ræmt próf kostaði. Jón Hannesson skaut inn þeim upplýsingum að sex próf í IB-námi kosta 80 þús. kr. pr. nemanda. Knútur nefndi að árið 2007 myndi hefj- ast undirbúningur fyrir þriggja ára fram- haldsskólanám og hvatti kennara sem vildu afla sér fræðslu um það að kíkja á heima- síðu menntamálaráðuneytisins á aðvent- unni það ár! Elna Katrín sleit fundi og beindi þeirri áskorun til menntamálaráðuneytis og Námsmatsstofnunar að hafa gott samráð við kennara og Kennarasamband Íslands. Hún bað framkvæmdaaðila að skoða vel hvaða markmið aðalnámskrár væru próftæk og hvatti kennara til að vera virkir í um- ræðunni. Kristín Elfa Guðnadóttir Samræmd próf - tilgangur þeirra Umræða um samræmd próf fór skyndilega hátt á líðandi hausti. Menn deildu mjög hart um ýmsa þætti þeirra og að hluta varð mál- ið umræðuefni á kosningafundum í ársbyrjun. Í þessum pistli er ekki ástæða til að rökræða sögu máls- ins né fara yfir rök þess. Í raun eru helstu málsaðilar í sjálfu sér ekki mótfallnir þessum prófum. Menn greinir á um aðferð og tilgang. Á síðu menntamálaráðuneytisins má finna síðu með svörum við algengum spurningum og á vef KÍ er greinargerð sem Hjördís Þor- geirsdóttir tók saman um samræmd próf.2 Í ljósi þessa er miklum mun mikilvægara að átta sig á því hvar umræðan er stödd og um hvað þessi próf eiga að snúast. Fáir spyrja t.d. hvernig samræmdu prófin munu láta reyna á 2. gr. framhaldsskóla- laganna frá 1996 en þar segir m.a.: "Hlut- verk framhaldsskóla er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda svo að þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýð- ræðisþjóðfélagi... Framhaldsskólinn skal leitast við að efla ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust og umburðarlyndi nemenda, þjálfa þá í öguðum og sjálf- stæðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun, kenna þeim að njóta menningar- legra verðmæta og hvetja til stöðugrar þekkingarleitar."3 Hver ætti tilgangur þeirra að vera? Þegar menn spyrja um tilgang sam- ræmdra prófa almennt og nú síðast í fram- haldsskólum er algengast að segja að þau séu til þess að veita næsta skólastigi vitnis- burð, bera saman skóla og kanna hvort þeir uppfylli kröfur námskrár. Þar með er beint eða óbeint verið að meta kennarana. Loks eru það rök að veita nemendum upplýsing- ar um stöðu þeirra.4 Allt hefur þetta sína kosti. Það myndi til dæmis bæta stöðu nem- enda ef kröfur við inntöku í háskóla væru almennt skýrari en nú er. Þá væri það kost- ur að skoða útkomu skóla og sjá hverjir þeirra gera vel og hverjir ekki. Að auki væri gott fyrir nemendur að fá upplýsingar um námsstöðu sína. Á hinn bóginn verður að segjast að það er ólíklegt að háskólarnir geri sér mat úr þessum prófum nema þeir verði beinlínis þvingaðir til þess. Raungreinadeildir gera meiri kröfur um stærðfræði en 15 eining- arnar sem miðað er við í prófunum. Það sama myndi gilda um íslensku og ensku en engin háskóladeild gerir nákvæmar kröfur um þær greinar að því er ég fæ séð þegar þetta er ritað. Þá verður samanburður skólanna óraun- hæfur meðan það að þreyta prófin er ekki skylda, meðan nemendur sem þreyta þau gera það alls ekki á sömu forsendum og ekki er tekið tillit til þess hvernig nemandi stóð þegar hann kom í skólann. Þannig er ljóst að skóli sem tekur fyrst og fremst nemendur með háar einkunnir á grunnskólaprófi ætti sjálfkrafa að koma betur út en sá skóli sem tekur alla breiddina eða einungis miðjuhóp og neðar. Þetta gæti leitt til þess að viss hópur nemenda fengi ekki að taka stúdents- próf eða kæmist ekki inn í skólana.5 Eins má telja víst að nemandi sem þreyt- ir próf á grundvelli sérsviðs síns (er t.d. bú- inn með 30 einingar í greininni) komi von- andi betur út en sá sem lauk einungis 15 eininga kjarnanum. Samræmd stúdentspróf 13 1

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.