Skólavarðan - 01.05.2003, Síða 13

Skólavarðan - 01.05.2003, Síða 13
Þá tel ég hæpið, m.a. út frá framantöldu, að nemendur hafi þörf fyrir meiri upplýs- ingar um stöðu sína en þegar eru veittar. Það myndi í sumum tilvikum vera eins og að hvetja nemanda, sem hefur til dæmis lokið stærðfræði 703, til að taka aftur stærð- fræði 503 svona til að vera alveg viss. Eitt af því sem mér finnst hvað erfiðast í þessu máli er að finna rök til að fá nemend- ur til að þreyta prófin þegar þau verða haldin - valkvæð eða valfrjáls - á árinu 2004. Þau veita þeim tæpast upplýsingar, þau eru ekki inntökuskilyrði og nemendur geta útskrifast án þeirra. Ég er á hinn bóg- inn alveg sannfærður um að prófin muni sýna mér sem stjórnanda og kennara ein- hverja veikleika í kerfinu en líka mjög marga styrkleikaþætti. Hliðarverkanir? Meðal þess umdeildasta varðandi þessi próf var tímasetningin. Nú er búið að setja þau tvisvar á ári, sem gæti líklega hentað flestum áfangakerfisskólum. Það virðist ekki nægja sem röksemd þó að þeir séu reyndar afgerandi meirihluti skóla á fram- haldsskólastigi. Hins vegar hafa bekkjar- kerfisskólar maldað í móinn, enda munu þeir augljóslega þurfa að hliðra til í yfirferð þar sem flestir nemenda þeirra myndu taka prófin um jól. Í áfangaskólum gætu nem- endur tekið prófin í lok annarinnar næst á undan lokaönn. Þannig myndu þeir hag- ræða námsvali með hliðsjón af því. Slík hliðrun er augljós í sveigjanleika áfanga- kerfisins. Próf með þessu formi geta haft ýmis áhrif á námslok að því er menn telja. Það verður að sannreyna og skoða hvort það eru endilega slæm áhrif. Stjórnendur og kennarar horfa ekki endilega á sömu þætti og nemendur. En ég tel til dæmis slæmt ef þessi próf hafa þau áhrif að áfangaskólarnir geti boðið færri nemendum að ljúka námi á þremur árum. Aðrir möguleikar en samræmd próf Hins vegar teldi ég miklum mun betra að hafa prófafyrirkomulagið þannig að Námsmatsstofnun útbyggi prófaseríu sem skólarnir gætu keypt þannig að nemendur gætu þreytt próf miðað við það áfangastig sem þeir eru á. Þannig væri auðveldara að bera saman alla nemendur sem ljúka áfanga 5xx í hverju fagi, eða 6xx og svo framvegis. Og þá jafnframt að fleiri greinar kæmu til slíkra prófa. Þau gætu jafnvel orðið loka- próf ef skólarnir kysu það. Ef slíkt er ekki hægt, m.a. vegna kostn- aðar, þá hlýtur það að verða alger krafa að allir sem ljúka stúdentsprófum, eða fá inn- tökurétt í háskóla, ljúki samræmdum próf- um og að þeim fylgi gögn um frammistöðu í samræmdum prófum úr 4., 7. og 10. bekk. Slíkur samanburður er nauðsynlegur og mun sýna að framhaldsskólar sem taka inn breiðan getuhóp skila jafnvel betra verki en þeir sem taka einungis inn þá bestu. Um slíkan samanburð má sjá grein Robert Bermans o.fl. í Tímariti KHÍ.6 Eitt af því sem menn hafa velt fyrir sér er hvað prófin eiga að mæla í raun. Í opinber- um gögnum má sjá að þau eiga að mæla hversu vel skólunum gengur að uppfylla kröfur og viðmið sem sett eru í aðal- námskrá. En hvernig? Í mörgum greinum og áföngum er gert ráð fyrir því að kennar- ar geti haft í hendi sér nokkurt val um það hvernig þeir nálgast efni áfangans. Það versta er, og slíkt gerðist með samræmdum prófum í grunnskóla, að metnaðarfullir stjórnendur og kennarar munu, með mark- vissum hætti, undirbúa nemendur sína undir prófformið og spurningaformin. Þá eru framhaldsskólamenn á nálum vegna hóps sem þeir hafa verið að sinna æ betur og er þá átt við nemendur með ýmis- konar námsörðugleika. Hvernig verða þessi próf sem eiga að mæla svona marga og fjöl- breytta þætti? Ekki síst í ljósi þess hvernig samræmd próf grunnskóla hafa þróast yfir í próf sem reyna á mikinn lestur og rökhugs- un. Skilningur og utanbókarlærdómur fara ekki endilega saman. Vera má að sjónarmið tungumála og stærðfræði fari ekki saman í þessu efni. Við höfum séð stór alþjóðleg próf sem ná utan um þess mál á sannfær- andi hátt7, en þau samræmast ekki íslenskri námskrárhugsun eða þeim veruleika sem hér viðgengst. Um hvað snýst þetta mál? Ég fagna samræmdum prófum í fram- haldsskólum almennt séð. Þau geta fest viðmiðin sem skólinn starfar eftir í sessi og gert þau skýrari en nú er. Meðan þau eru ekki komin í ljós og við ekki búin að laga okkur að þeim eru kenn- arar í óvissu um form þeirra og tilgang. En enginn má gleyma því - menntamála- ráðuneytið, Námsmatsstofnun, skólastjórn- endur og kennarar - að skólinn snýst um nemendur og þjónustu við þá. Ég fæ því miður ekki séð að það form og sá tilgangur sem nú er uppi breyti neinu eða bæti á nokkurn hátt stöðu nemenda. Og ekki skólanna heldur, því er nú verr. Magnús Þorkelsson Höfundur er aðstoðarskólameistari Flensborgarskóla. TILVITNANIR: 1.http://menntamalaraduneyti.is/mrn/mrn.nsf/ pages/spurtogsvarad-frhsk0002 sótt m.a. 13. maí 2003. 2. http://www.ki.is/main/view.jsp?branch=413452 sótt m.a. 13. maí 2003 3. Lög um framhaldsskóla, 1996 nr. 80 11. júní. Að vísu hafa verið gerðar breytingar á lögunum en þessi grein hefur staðið óhögguð og í raun efnis- lega frá eldri gerðum laganna s.s. nr. 57, 1988. 4. Að vísu eru ráðuneytismenn ekkert mjög rök- fastir í þessu máli. Þann 9. janúar 2003 var viðtal við Ingibjörgu Guðmundsdóttur skólameistara Kvennaskólans og Maríu Þ. Gunnlaugsdóttur hjá menntamálaráðuneytinu um málið og sagði María þar að ein rökin væru að talað væri um samræmd próf í skýrslu 18 manna nefndarinnar frá 1996 en önnur að þetta væri í lögum sem Alþingi hefði sett. 5. Í ljósi þess að það sama gilti um landspróf og er í framkvæmd gert í a.m.k. sumum grunnskólum landsins, m.a. með sérstökum undirbúnings- tímum, þá er þetta ekki eins fáránleg yfirlýsing og ég hélt fyrst. 6. Robert Berman, Einar Guðmundsson og Ragnar F. Ólafsson: Námsárangur í ensku eftir framhaldsskólum og bakgrunni nemenda. Uppeldi og menntun. Tímarit Kennaraháskóla Íslands. 10. árg. 2001, bls. 107-126. 7. Hér er átt við TIMSS, Youth and History o.fl. Samræmd stúdentspróf 14 „Samanburður skólanna verður óraunhæfur meðan það að þreyta prófin er ekki skylda,“ segir Magnús Þorkelsson, „meðan nemendur sem þreyta þau gera það alls ekki á sömu forsendum og ekki er tekið tillit til þess hvernig nemandi stóð þegar hann kom í skólann.“

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.