Skólavarðan - 01.05.2003, Síða 16

Skólavarðan - 01.05.2003, Síða 16
Fyrir nokkrum árum fékk ég sem stoltur afi að fylgja dóttursyni mínu í grunnskólann sinn. Afa þótti pilturinn glúrinn og læs á umhverfi sitt og hugðist því sjá merki um dugnað hans og námsgetu í skólastofunni. Viti menn - nokkrar ágætar teikningar afa- drengsins sá hann á veggjum en á stóru spjaldi sem hékk á áberandi stað kom fram að pilturinn var einna aftastur bekkjar- félaganna í að safna silfurlituðum stjörnum fyrir frammistöðu við að leysa verkefni í íslensku. Áhyggjuhrukkurnar á enni afa vöfðust ekkert fyrir snáðanum þegar hann var spurður hverju sætti. Hann brosti og yppti öxlum: „Þetta er allt í lagi afi - ég vann síðast! Var efstur.“ Ánægjan með „sigurinn“ leyndi sér ekki. Hann hafði náð markinu og kærði sig kollóttan um náms- markmið seinni „keppninnar“. Afi lét þetta svar duga en varð hugsað til eins af uppáhalds höfundum sínum banda- rískum, Alfie Kohn. Kohn hefur einmitt skrifað um stjörnugjafir og misskilda veitingu á umbun í skólastarfi. Rís þar hæst bókin Punished by rewards (The trouble with Gold stars, praise ... and other bribes!) Dæmi mitt um afadrenginn gæti allt eins verið tekið í þessari bók. Kennari hans hefur í góðri trú talið að silfruðu stjörnurn- ar efldu áhuga nemenda á að læra betur íslensku, en í raun gera þær það ekki. Stjörnurnar geta allt eins virkað þveröfugt. Guttinn minn sá greinilega ekki ástæðu til að stunda íslenskunám eftir að hafa náð umbuninni að verða efstur í keppn- inni um silfurstjörnurnar. Alfie Kohn gengur svo langt að segja að aðferðir sem þessar taki frá nemend- um þá innri umbun sem þeir fá við að ná framförum og við að njóta vinnunnar - námsins. Stjörnurnar og „gulræturnar“ draga úr áhuga á því að standa sig í námi. Nemendur eru sviptir ánægjunni af að glíma við verðugasta keppinautinn, þá sjálfa. Kohn gagnrýnir ekki eingöngu stjörnu- gjafir og hlutlæga umbun í skólastarfi, hann setur fram áleitnar spurningar um ýmislegt sem viðgengst í skólum. Hann gerir harða hríð að atferlismótun sem ár- angursríkri uppeldisaðferð, hann tætir í sig samræmd próf og færir rök fyrir því hvern- ig þau geta afvegaleitt skólastarf. Hann set- ur stór spurningamerki við innleiðingu og aðlögun starfsaðferða nútímafyrirtækja að skólastarfi, svo sem TQM eða alhliða gæðastjórnunar og hugmyndinni um nem- andann eða foreldra hans sem „viðskipta- vini.“ Í bók sinni The School our Children Deserve (Moving beyond Traditional Classrooms and „Tougher Standards“) varar hann við óraunhæfum draumsýnum og fortíðarhyggju „Back to basics“ hreyfingarinnar og hugmyndum margra stjórnmálamanna um að vandi nú- tímaskóla verði leystur með skólastarfi for- tíðar. Vandinn kveikir að vísu þá spurningu hvort skólar hafi nokkurn tíma horfið frá vinnubrögðum fortíðar!? Alfie Kohn starfaði sem kennari áður en hann hóf ritferil sinn og athuganir. Hann er vinsæll fyrirlesari og hefur víða komið fram. Bækur hans eru skrifaðar á auðlesnu máli og ríkulega kryddaðar dæmum úr skóla- starfi. Í ritgerða- og greinasafninu What to look for in a Classroom (... and Other Essays) kemur Kohn víða við og hlífir fáu. Það góða við bækur hans er að auðvelt er að grípa niður í þær hvar sem er, lesa kafla eða kaflabrot. Hugvekjur Kohns fanga mann og það er skemmtilegt að lesa vangaveltur hans og tillögur um bætt skólastarf. Í bókinni Beyond discipline - from Compliance to Community er fjallað um aga- og bekkjarstjórnun. Kohn veltir því fyrir sér hvers vegna áhersla kennara og skóla á að stjórna því sem börnin gera er svo ríkjandi. Hann leitar svara við spurningunni hvernig hægt sé að virkja nemendur betur og fá þá til sjálfsstjórnunar. Kohn spyr hvernig hægt sé að breyta kennslustofum frá því að vera vettvangur ítroðslu til þess að verða uppbyggjandi og skap- andi samfélag. Þar séu viðteknar stjórnunaraðferðir í skólum, matsað- ferðir, samræmd próf og einkunna- dýrkun helstu hindranir á vegi til framfara. Ég hefði gjarnan vilja minna á margar góðar íslenskar bækur um skólamál sem hafa komið út að und- anförnu, en stóðst ekki mátið að nota tækifærið og benda lesendum Skólavörðunnar á Alfie Kohn. Hann hrífur mann hvort sem maður er sammála eða efins um skoðanir hans. Ég hef nálgast þessar bækur á Net- inu, annað hvort í Amazon eða Barnes & Noble, en auðvelt er að fletta upp bókum, fyrirlestrum og greinum Kohns á heimasíðu hans www.alfiekohn.org Ragnar Gíslason Höfundur er skólastjóri Garðaskóla í Garðabæ. Ále itnar hugvekjur Alf ie Kohns: Skynsemishyggja - gulrætur og gull 17 Bókaáskorun Ragnar skorar á frænku sína Steinunni Ármannsdóttur, skóla- stjóra Álftamýrarskóla í Reykja- vík, að segja frá áhugaverðum ritum sem hún hefur rekist á í námi sínu í Háskólanum í Bath á England.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.