Skólavarðan - 01.05.2003, Qupperneq 20

Skólavarðan - 01.05.2003, Qupperneq 20
sumrin og gat ákveðið hvað og hvenær hann (oft í samráði við skólastjórnendur) endurmenntaði sig. Flestir kennarar fóru á 1-2 námskeið á sumri, 15-50 stundir, sum- ir ekkert einhver sumur. Auðvitað þurfa kennarar að endurmennta sig eins og aðrir en þeim hlýtur að vera treystandi til að vita og finna hvenær og í hverju þeir þurfa að endurmennta sig. Með nýju samingunum er verið að binda endurmenntunina niður og færa ákvarðanir um hana frá kennurum (minni sveigjanleiki). Þeir, sem hafa kynnst framkvæmd endurmenntunar eins og hún birtist, finna glögglega það viðbót- arálag sem henni fylgir. Kjaraumræður - Skipta þær máli? Nauðsynlegt er að kennarar verði virkari í kjaraumræðunni og að stéttarfélag okkar skapi vettvang fyrir hana. Það er von okkar að þessi grein verði umræðugrundvöllur fyrir kennara og að þeir fáist til að tjá sig um hvað þeir vilja og hvað ekki. Kjarabar- átta kennara er of miðstýrð og of fáir koma að henni; þetta helgast kannski af áhuga- leysi kennara á þessum málum. Við hvetj- um því kennara til að lesa vel allt það sem birtist um kjaramál og láta í sér heyra. Kennarasambandið ætti að vera með reglulega fundi um kjaramál þar sem kenn- arar eiga kost á að mæta og viðra skoðanir sínar. Hér eru nokkrir umræðupunktar og áhersluatriði, er varða komandi kjarasamn- inga, sem við leggjum fram til umhugsunar fyrir félagsmenn. 1. Enginn verkstjórnarþáttur skólastjóra, sbr. niðurfelling á „vuss“ hjá framhaldsskólakennurum (vuss = verkstjórnarþáttur undir stjórn skólastjórnenda). 2. Endurmenntun á að vera í höndum kennara sjálfra og þeir ráði í hverju og hvenær þeir endurmennta sig. 3. Lækkun kennsluskyldu í 20 stundir, meira fyrir eldri kennara. 4. Hækkun grunnlauna án þess að gefa eða selja kjör og réttindi 5. Aukinn undirbúningur í 40 mín. (möguleiki á að semja við skólastjóra um meiri undirbúning ef þörf er á). 6. Endurmenntunarflokkar komi inn 25 ára, 30 ára og 35 ára (í stað 35, 40 og 45 ára eins og nú er) eða verði starfsaldurstengdir. 7. Nemendaferðir verði borgaðar allan sólarhringinn (bakvakt kennara). 8. Leiðbeinendur fá ekki að kenna, 3-5 ára aðlögunartími. Það ætti að vera nægilegur tími fyrir leiðbeinend- ur að fara í fjarnám. Með því að samþykkja að leiðbeinendur vinni starf okkar erum við að segja að allir geti gert það, að ekki þurfi fagþekkingu til þess. Eftirspurn eftir kennurum myndi aukast og launin þá hækka. Engin stétt leyfir það að ófag- lærðir gangi í þeirra störf, þetta snýst um sjálfsvirðingu, sjálfs- mynd og kennara sem fagstétt. 9. Farið verði eftir nemenda gildum (mikið fatlaðir = 2 nemendagildi) í bekk, ákveðið hámark. Agnar H. Kristinsson og Jón Pétur Zimsen Höfundar eru grunnskóla- kennarar. Kjarasamningur grunnskóla 21 Samanburður - tafla I 2001 2004 munur 1. Grunnlaun 30 ára kennara ca. 111.000 kr. 160.000 kr. 49.000 kr. 2. Grunnlaun 40 ára kennara ca. 115.000 kr. 179.000 kr. 64.000 kr. Samanburður - tafla II 2001 2004 munur 3. Binding verkstjórnarþáttar yngri en 55 ára á viku 3 tímar 9,14 tímar 6,14 tímar 4. Dagar í aukna bindingu á ári vegna verkstj. skólastj. 13,9 dagar 42,3 dagar 28,4 dagar 5. Binding verkstjórnarþáttar 55 ára - 60 ára á viku 3 tímar 11,14 tímar 8,14 tímar 6. Dagar í aukna bindingu á ári vegna verkstj. skólastj. 13,9 dagar 51,5 dagar 37,6 dagar 7. Binding verkstjórnarþáttar 60 ára og eldri á viku 3 tímar 14,14 tímar 11,14 tímar 8. Dagar í aukna bindingu á ári vegna verkstj. skólastj. 13,9 dagar 65,4 dagar 51,5 dagar Samanburður - tafla III 2001 2004 munur 9. Undirbúningur fyrir hverja kennslustund 28 mín. 20 mín. -8 mín. 10. Undirbúningur fyrir kennslustund á ári 29008 mín. 20720 mín. -17,3 dagar 11. Skipulagsdagar kennara á ári 11 dagar 13 dagar 2 dagar 12. Skóladagar nemenda á ári 170 dagar 180 dagar 10 dagar 13. Aukinn tími í verkstjórnarþátt skólastj. á ári 8 klst. 9,14 klst. 5,3 dagar 14. Vinnuauki samtals á ári 17,3 dagar Samanburður - tafla IV 2001 2004 munur Sýnir þá þætti sem fóru inn í grunnlaunin og eru reiknaðir sem hækkun a. ,,Ingibjargargull“, áunnar greiðslur v. uppsagna kennara í Rvk. og launaflokkahækkanir í öðrum sveitarfélögum ca. á mán. 13.000 kr. 0 kr. -13.000 kr. b. Heimavinnuyfirvinna ca. á mán. 7.000 kr. 0 kr. -7.000 kr. Samtals á mánuði -20.000 kr. c. Umsjónaryfirvinna ca. á mán. 5.000 kr. 0 kr. -5.000 kr. d. Fagstjórn ca. á mán. 12.000 kr. 0 kr. -12.000 kr. e. Árganga/stigsstjórn ca. á mán. 6.000 kr. 0 kr. -6.000 kr. f. Umsjón með stofu ca. á mán. 10.000 kr. 0 kr. -10.000 kr. Samtals á mánuði -33.000 kr. g. Kennsluafsláttur eftir 15 ára kennslu á viku 1 tími 0 tímar -1 tími h. Samtals tap á ári ca. -90.000 kr.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.