Skólavarðan - 01.05.2003, Side 21

Skólavarðan - 01.05.2003, Side 21
Eitt af fyrstu skrefum Flensborgarskólans við sjálfs- mat var að setja saman eins- konar stýrihóp kennara sem sýndu sjálfsmati áhuga. Auk þess var ýtt undir að þessi hópur endurspeglaði að eins miklu leyti og mögulegt væri skipulag skól- ans hvað varðar framboð á námi. Í sjálfs- matshópnum eru skólameistari, aðstoðar- skólameistari, námsráðgjafi og sjö kennarar (í ensku, viðskiptagreinum, fjölmiðlun og lífsleikni, sálfræði, raungreinum og stærð- fræði). Verkefni þessa hóps var að ákveða hvað ætti að meta, taka saman spurninga- lista, stjórna könnunum, afla gagna, greina gögn og skrifa matsskýrslu. Notað við ákvarðanatöku Sjálfsmatshópurinn hefur hingað til valið að kanna viðhorf og væntingar kennara til nemenda sinna og hversu vel kennsluaðferðir falla að þörfum nemenda. Auk þess hafa kenn- arar skrifað svokallaðar skýrslur deilda þar sem gerð er stutt grein fyrir þróunar- og ný- breytnistarfi, samstarfi innan deilda og út á við, kennsluáætl- unum, brottfalli, útkomu prófa, aðferðum við námsmat og öðru því sem kennarar hafa verið að vinna að og vilja sjá breytingar á. Þess utan hafa verið gerðar athuganir á þjónustu bókasafns skólans og þjónustu námsráð- gjafa. Þá hefur nýting próftíma nemenda með sérþarfir verið mæld sérstaklega og svo hefur farið fram þarfagreining varð- andi tölvubúnað og tölvunotk- un kennara skólans. Að lokum hafa nemendur tekið eina kennslustund á hverri vorönn í að fjalla um skólann sinn í verk- efni sem við höfum kallað Hlýtt á nemendur. Það er upprunnið hjá nemendum sjálfum og var tekið inn sem þáttur í sjálfsmati skólans. Útkoman úr sjálfsmati við Flensborgarskólann í Hafnar- firði hefur verið notuð við á- kvarðanatöku stjórnenda hvað varðar tækjabúnað, mætingareglur skólans, lengd próftíma nemenda með sérþarfir, forgangsröðun verkefna og síðast en ekki síst hefur hún verið notuð sem rök fyrir mörgum af þeim verkefnum sem skólinn hefur ráðist í eða látið ráðast í. Í sjálfsmat- inu koma fram óskir kennara og nemenda um betra skólastarf, breytingarnar gerast hratt og þær eru sjáanlegar í starfsemi skól- ans. Eftir því sem á líður virðist sem sjálfs- matið geti orðið virkur þáttur í starfi kenn- ara. Vinsældakosning? Þó að margt hafi verið unnið í sjálfsmati við Flensborgarskólann í Hafnarfirði þá á enn eftir að færa ýmislegt í betra horf. Má þar fyrst nefna að sjálfsmat er ekki ennþá virkur þáttur í starfi allra kennara. En það ber að benda á að nokkrir kennarar gera sjálfsmat í sínum hópum hvort sem þeir hópar eru til skoðunar í sjálfsmati skólans eða ekki. Augljóst er að slíkt sjálfsmat veitir viðkomandi kennara upplýsingar sem hann eða hún getur brugðist skjótar við en ef um er að ræða upplýsingar sem þurfa að fara í gegnum ná- kvæma gagnrýni og skoðun sjálfsmatshóps. Í þeim tilfellum þar sem kennarar meta sjálfir kennslu sína geta þeir brugðist við óskum nemenda fyrr en ella, viðkomandi nemendum í hag. Rétt er að benda á að ekki hefur tekist nægilega vel að draga fram kosti sjálfsmats í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Í sumum tilfellum er litið svo á að nemendur hafi ekki forsendur til þess að leggja mat á þá þjónustu sem þeim er veitt. Í öðrum til- fellum er litið svo á að sjálfsmat gangi of nálægt persónu starfsmanna og því sé það brot á lögum um persónuvernd. Enn aðrir líta á sjálfsmat sem vinsældakosningu sem hafi lítið að gera með gæði þeirrar þjónustu sem veitt er. Í heild má segja að ekkert eitt fyrirkomu- lag sjálfsmats sé fullkomið. Það mun ætíð vekja umræðu meðal kennara, stjórnenda og nemenda. Sjálfsmat er gert fyrst og fremst í þeim tilgangi að leggja grunn að sívirku umbótastarfi í viðkomandi skólum. Auk þess er sjálfsmatið tæki til að auðvelda stjórnendum ákvarðanatöku, forgangsröð- un verkefna og rökfærslu til aðgerða í þeim tilgangi að koma til móts við óskir nem- enda, kennara og samfélagsins í heild um betra skólastarf. Unnar Örn Þorsteinsson Höfundur er kennari í Flensborgar- skólanum í Hafnarfirði. Sjá lfsmat 22 Samkvæmt lögum um framhalds- skóla frá árinu 1996 eiga þeir allir að innleiða aðferðir til sjálfsmats sem á að ná til allra þátta skólastarfsins. Til- gangur matsins er að leggja grunn að sívirku umbótastarfi í hverjum skóla sem á að bæta námsumhverfi, líðan og árangur nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans. Hér verður fjallað um það sem gert hefur verið í sjálfsmati við Flensborgarskól- ann í Hafnarfirði, hvað hefur gengið vel og hvað við gætum gert betur. Sjálfsmat í Flensborg Eitt af fyrstu skrefum Flensborgarskólans við sjálfsmat var að setja saman einskonar stýrihóp kennara sem sýndu sjálfsmati áhuga. Auk þess var ýtt undir að þessi hópur endurspeglaði að eins miklu leyti og mögulegt væri skipulag skólans hvað varðar framboð á námi. „Eftir því sem á líður virðist sem sjálfsmatið geti orðið virkur þáttur í starfi kennara,“ segir Unnar Örn Þorsteinsson meðal annars í grein sinni.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.