Skólavarðan - 01.05.2003, Síða 22

Skólavarðan - 01.05.2003, Síða 22
Strax var ljóst að tilkoma tónversins opnaði margvíslega möguleika fyrir ungt og efnilegt tónlistarfólk sem finnur ekki samleið með hinu staðlaða klassíska tón- listarnámi og telur sig þar af leiðandi ekki eiga erindi inn í íslenska tónlistarskólakerf- ið. Það virðist hafa gleymst að hjá unga fólkinu er blómlegt raftónlistarsamfélag sem hefur meira og minna gengið út á sjálfsnám því engir aðrir kostir hafa verið í boði. Þetta kom strax í ljós því til okkar í tónverið hafa komið margir nemendur sem hafa áður verið að vinna við tónlist og öðlast tals- verða reynslu þrátt fyrir að vera ólæsir á nótur. Önnur óvænt þróun var sú að til okkar komu nem- endur sem voru langt komnir í klassísku tónlistarnámi, jafnvel á háskólastigi, sem vildu vera í tónlist en fundu sig ekki í tón- listarskólakerfinu eins og það var upp- byggt. Námið Lögð hefur verið áhersla á að takmarka námið ekki við kennslu á ákveðin tæki eða tölvuforrit því í raftónlistarheiminum koma tæki á markað, komast í tísku en hverfa jafnharðan. Því miðast kennslan við það að kenna nemendum hvað er að gerast inni í tækjunum; hvers vegna heyrist þetta hljóð úr þessu tæki, hvaða eiginleikar liggja að baki ákveðinna hljóða og þar fram eftir götunum. Í stuttu máli: Nemendum eru kennd fræðin á bak við tækin. Þetta gerir þá mun sveigjanlegri, þeir fá meira út úr tækjunum, jafnvel þó að þau eldist, og eru fljótari að tileinka sér nýja tækni jafnóðum og hún kemur fram, því allt byggist þetta á sömu fræðunum þó að útlitið á yfirborðinu sé mismunandi. Ennfremur leggjum við áherslu á að veita alhliða tónlistarþjálfun þar sem boðið er upp á nám í tónfræði, tónheyrn og tón- listarsögu fyrir utan hið „hefðbundna“ tölvutónlistarnám. Þar hafa nemendur tón- versins gengið inn í kerfi tónlistarskólans eins og allir aðrir nemendur. Það hefur verið reynsla okkar að þeir nemendur sem ná taki á almennri tónfræði eiga mun auð- veldara með að tjá sig í tónlistinni og eiga samskipti við aðra tónlistarmenn, að ekki sé talað um hvað það gerir þá færari um að setja sig inn í nýja strauma og stefnur. Þar með verða þeir færari um að „eldast“ betur í faginu og sleppa við þau algengu örlög að eiga tónlistarferil sem hefst - og lýkur - með einhverri tískustefnunni. Frá upphafi var það skýr stefna tónvers- ins að gera ekki upp á milli tónlistarstíla eða -stefna. Því hafa verið saman að tjá sig nemendur sem hafa allan áhuga á nýrri gerðum danstónlistar, þungarokki, jassistar og hámenntaðir klassískir tónlistarmenn. Auðvitað gerum við nemendum fljótt grein fyrir því að við sem sjáum um námið séum ekki sérfræðingar um allar mögulegar gerðir tónlistar en reynslan hefur kennt okkur að alltaf má finna einhvern eða ein- hverja í hópnum sem geta fyllt upp í þekk- ingargötin. Þannig hafa nemendur ekki síður lært mikið hver af öðrum heldur en kennurunum og gerir það námið náttúr- lega fjölbreytilegra og líflegra en ella. Sterk áhersla er lögð á sköpunarþáttinn, að hagnýtu atriðin og fræðin séu áfangar á leiðinni til þess að búa til tónlist. Því eru ekki haldin eiginleg próf í faginu heldur er nemendum gert að ljúka einu vel gerðu verki á önn. Ef þeir ljúka því sómasamlega er það talið á við bestu próf. Nemendur tónversins Nemendur hafa komið með eins ólíkan bakgrunn í tónlist og hugsast getur. Sumir hafa verið starfandi tónlistarmenn sem vilja víkka sjóndeildarhringinn og auka mögu- leika sína, einnig hafa komið nemendur af öðrum sviðum tónlistarnáms sem eru ann- aðhvort að víkka sjóndeildarhringinn eða beinlínis skipta um námsbraut. Þá hefur komið fólk utan úr bæ sem hefur enga menntun að baki, hefur verið að dunda við tónlist sjálft en finnst það komið í blind- götu eða á eitthvert stig stöðnunar sem það vill brjótast út úr. Að loknu námi í tónverinu hafa nemend- ur farið í ýmsar áttir. Kennarar sem komu til þess að víkka þekkingu sína hafa farið aftur í kennslu, bæði tónmenntakennslu og almenna kennslu, væntanlega ýmiss vísari. Aðrir nemendur hafa farið í framhaldsnám hérlendis og erlendis og spannað þar nokk- uð vítt svið, til dæmis klassískt tónsmíða- nám, músíkþerapíu, framhaldsnám í raf- tónlist, hátalara- og hljóðnemahönnun, hljóðskotið myndlistarnám, og einn nem- andi komst að því að baslið við að skipu- leggja abstrakt tónlist leiddi hann beina leið til náms í arkitektúr. Stór hópur nemenda er nú starfandi í íslensku tónlistar- lífi og spannar þar vítt svið stíla. Þar í hópi eru klassísk tónskáld, höfundar keppn- islaga í Evróvision, framúr- stefnudjassarar, upptöku- stjóri harðkjarnahljómsveita og hljóðfæraleikarar og tón- skáld í sveitum sem spanna sviðið frá hallærispoppi yfir í rafskotna til- raunatónlist. Með tilkomu tónlistardeildar í Listahá- skóla Íslands hefur nemendum tónversins opnast ný leið til framhaldsnáms. Sérstak- lega má nefna nýmiðlabraut tónlistardeild- arinnar, en meginuppistaðan í henni er einmitt fyrrverandi nemendur tónversins. Það er því tilfinning okkar að þetta nám nýtist vel þeim sem vilja halda áfram að vinna við tónlist, hvort heldur þeir halda áfram í frekara tónlistarnám, gerast at- vinnutónlistarmenn eða stunda tónlist sem áhugamál. Húsnæði og aðstaða Fyrstu árin var tónverið til húsa „í neðra“, það er að segja gluggalausu kjall- arahúsnæði sem tónlistarskólinn átti; að mörgu leyti ágætis húsnæði sem hentaði starfseminni vel. Það var rúmgott og með sérinngangi sem gerði kleift að hafa tón- Tölvutónl ist 24 Tónver Tónlistarskóla Kópavogs tók til starfa haustið 1995 og hafa for- stöðumenn þess frá upphafi verið tónskáldin Hilmar Þórðarson og Rík- harður H. Friðriksson. Strax í upphafi var ákveðið að gera tilraun til þess að bjóða upp á nám þar sem tölvutón- listin væri aðalfag, eða eins og segir í upphaflegri námslýsingu: „Ætlunin er að úr þessu verði til ný tegund ísl- enskra tónlistarmanna, tölvutónlistar- menn, með tölvu sem aðal „hljóð- færi“...“ Þetta var algjör nýjung við tónlistarkennslu hér á landi og fljót- lega kom í ljós að bráð nauðsyn var á, slíkar urðu viðtökurnar. Tónver Tónlistarskóla Kópavogs Það hefur verið reynsla okkar að þeir nemendur sem ná taki á almennri tónfræði eiga mun auðveldara með að tjá sig í tónlistinni og eiga samskipti við aðra tónlist- armenn, að ekki sé talað um hvað það gerir þá færari um að setja sig inn í nýja strauma og stefnur.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.