Gerðir kirkjuþings - 2010, Page 9

Gerðir kirkjuþings - 2010, Page 9
 9 þjóðkirkja á Íslandi. Það hefur ríkisvaldið einkum gert í seinni tíð með rammalöggjöf um þjóðkirkjuna, sem kirkjan með kirkjuþing í broddi fylkingar hefur svo unnið úr og mótað kirkjulegt starf og sjálfstæði á þeim grunni, sem þar er lagður. Þjóðkirkjan á Íslandi er sprottin úr sögulegum jarðvegi langt aftur í aldir fyrir samspil trúar og menningar. Af sjálfu leiðir að til kirkjunnar söfnuðust á þessu aldaskeiði veraldlegar eignir í ríkum mæli. Um kirkjueignir og aðkomu ríkisvaldsins að þeim vegna sögulegra og lögskipaðra tengsla ríkis og kirkju og stuðning ríkisins við þjóðkirkjuna vegna stjórnarskrárákvæðisins hefur mikið verið ritað og rætt og deilt árum og áratugum saman. Óhætt er að segja að með nýlegum samningum þjóðkirkjunnar og ríkisins hafi þessi deilumál verið leidd til bærilegra lykta og þeir hafi markað eignarréttarstöðu kirkjunnar og tilkall hennar til launagreiðslna úr ríkissjóði í framtíðinni. Fyrst var kirkjujarðasamkomulagið gert 10. janúar 1997 og laut það að afhendingu kirkjujarða og meðfylgjandi kirkjueigna til ríkisins, að frátöldum prestssetrum og því sem þeim fylgir. Á móti þessum gífurlegu verðmætum frá þjóðkirkjunni skuldbatt ríkið sig til að greiða tilteknum fjölda starfsmanna kirkjunnar laun um ókomna tíð, prestum, próföstum, biskupum og starfsmönnum biskupsstofu. Skýrlega var tekið fram að þetta samkomulag fæli í sér fullnaðaruppgjör vegna þeirra verðmæta, sem ríkissjóður tók við 90 árum áður eða árið 1907. Í kjölfar þessa samkomulags var svo gerður samningur 1998 um rekstrarkostnað vegna prestsembætta og prófasta, rekstrarkostnað biskupsstofu, framlag til kristnisjóðs og sérframlög til þjóðkirkjunnar. Lokahnykkurinn náðist svo 20. október 2006 í samningi um fjárhagsuppgjör milli þjóðkirkjunnar og íslenska ríkisins. Með honum voru prestssetur, þ.e.a.s. prestsetursjarðir og prestsbústaðir, lýst eign þjóðkirkjunnar auk þess sem ríkissjóður hækkaði árlegt framlag sitt til kirkjumálasjóðs. Þessir samningar hafa verið staðfestir af Alþingi með sérstökum ákvæðum í núgildandi þjóðkirkjulögum. Viðaukasamningurinn um tímabundinn niðurskurð á síðasta ári var einmitt reistur á þessum réttargrundvelli, sem bæði núverandi ríkisstjórn og Alþingi hafa skýrlega viðurkennt með þeirri samningsgerð og samsvarandi breytingu á þjóðkirkjulögunum. Það er þjóðkirkjunni mikils virði að hafa þannig fengið endurnýjaða staðfestingu á því að við fjárhagslegum grundvelli hennar verði ekki hróflað af hálfu ríkisvaldsins nema með gagnkvæmum samningum, sem kirkjuþing og Alþingi verði að fallast á. Það er ekki í anda slíkra gagnkvæmra samninga tveggja jafnsettra samningsaðila að annar þeirra, í þessu tilviki ríkisvaldið, gefi hinum fyrirmæli og hviki í engu frá þeim. Það er rétt að í samningnum á síðasta hausti gerði þjóðkirkjan sitt ítrasta og kom að fullu til móts við tilmæli ríkisins um niðurskurð á árinu 2010. Hitt er svo annað mál að þanþol kirkjunnar er ekki ótakmarkað og hún má ekki láta innviði kærleiks- og velferðarþjónustu bresta, allra síst í því árferði sem nú ríkir í samfélaginu. Þess vegna og vegna forgangsröðunar í þjóðfélaginu um þessar mundir hlýtur að vera svigrúm til samninga um fram komna niðurskurðarkröfu ríkisins og áframhaldandi lækkun sóknargjalda. Ýmsir virðast telja, í gálausu tali um aðskilnað ríkis og kirkju, að verði 62. gr. stjórnarskrárinnar um þjóðkirkjuna og stuðning ríkisvaldsins við hana felld brott muni kirkjan sjálfkrafa hætta að njóta þeirra framlaga úr ríkissjóði, sem samið hefur verið um á grundvelli eignaskila ríkis og kirkju – ríkinu sparist við fullan aðskilnað stórfé, milljarða verðmæti. Þetta er þó hrein bábylja og kemur vitaskuld ekki til greina vegna þess fyrst og fremst að fjárstuðningur ríkisins við þjóðkirkjuna byggist ekki nema að hluta á sjónarmiðum um sérstöðu kirkjunnar sem þjóðkirkju heldur skýrum rökum um sögulegt eignarréttartilkall hennar til þeirra kirkjujarða og kirkjueigna, sem ríkinu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.