Gerðir kirkjuþings - 2010, Side 34

Gerðir kirkjuþings - 2010, Side 34
 34 stjórnleysið, sem var í þessu þinglagi og vestri Skaptafellssýslu, var meira en nokkru hófi gegndi, ásamt blygðunarlausu framferði manna. Hér lifðu menn í mesta sællífi. Sumir voru svo matvandir, nær því einkanlega þjónustufólk, húsgangslýður og letingjar, að varla vildu sjá nema kryddfæðu; drykkjusvall, tóbaksbrúkun og allt óhóf var svo mikið, að á einu ári gekk hér á Síðunni upp í heimboð og drykkjur um 400 fiskar. Prestar gátu varla fram flutt guðsþjónustu nema með brennivínsstyrk og þó margir vissu varla sitt fénaðartal var sú argasta tíund til allra stétta, og tjáði eigi að finna. Það var eitt ólukkuefnið í landinu, að allir þjófar voru frómir kallaðir, og almenningur gekk lögum á móti með svoddan flokkadrætti, að engu varð til leiðar komið ... Þessi undur gengu hér á áður en eldurinn kom upp, en sá alvaldi lægði allt þetta og sýndi hvað hann vildi vera láta. Vera má að einhverjir kannist við þessa lýsingu eldklerksins og geti heimfært hana upp á góðærið sem á undan gekk hruninu. Víst er um það að öll él styttir upp um síðir og séra Jón var ekki í vafa um að sá alvaldi hefði lægt ósköpin og lagað að sínum vilja. Margir hafa haft á orði að sú blessun myndi þó hljótast af þessum stórmælum í samfélaginu undangengin ár að menn lærðu að þekkja og meta að nýju hin raunverulegu verðmæti sem felast í virðingu fyrir manngildi og kærleika, fyrir náunganum og því öfgalausa samneyti lands og þjóðar sem eitt getur fært varanlega velsæld. Til þess að svo megi verða þarf þó að kveða niður draug sem hefur magnast við ósköpin og fitnað eins og púkinn á fjósbitanum – en það er sundurlyndið. Ekkert er nú jafnáberandi í samfélaginu og linnulaust sundurlyndi, hvers konar deilur og atyrði og ósæmilegur munnsöfnuður, oft í skjóli nafnleyndar og hugleysis. Hér verður kirkjan að ganga einörð fram og veita skýlausa forystu í þeirri siðvæðingu samtímans sem er forsenda þess að íslenskt þjóðfélag nái áttum og geti endurheimt sjálfsvirðingu sína. Við ætlum þessu efni nokkurt rúm á þinginu, bæði hér á setningarfundinum og einnig í almennri umræðu síðar á þingtímanum. Um leið og við gerum þetta verðum við að kosta kapps um að kirkjan styrki innra starf sitt og stjórnarhætti og leiti allra leiða til að efla samheldni og einingu. Sá sem er veikur fyrir getur enga forystu veitt. Í mínum huga er ekki vafi á því að skortur á samstöðu og skilningi, á hollustu, drengskap og umburðarlyndi innan kirkjunnar á drjúga sök á því að traust á þjóðkirkjunni virðist fara þverrandi. „Verið þolinmóð, langlynd, umberið og elskið hvert annað. Kappkostið að varðveita einingu andans í bandi friðarins,“ sagði Páll postuli í bréfi til Efesusmanna. Á þetta hefur skort í kirkjunni að undanförnu. Þess vegna bíður okkar nú það erfiða verkefni sem þolir enga bið: Að sjá bjálkann í eigin auga og draga hann út, verða við áskorun séra Matthíasar Jochumssonar og senda „út á sextugt djúp sundurlyndisfjandann!“ Góðir kirkjuþingsmenn. Við göngum nú til góðra og brýnna verka á kirkjuþingi. Það verðum við að gera með samtakamætti og samstöðu um leið og við minnumst þess að okkur er hér trúað fyrir æðsta valdi þjóðkirkjunnar. Á kirkjuþingi er ekki vettvangur til að skipa sér í fylkingar á grunni einhverra guðfræðilegra hugmynda, hvort heldur þær eru kenndar við íhaldssemi eða frjálslyndi. Hér á kirkjuþingi mega menn ekki víkja sér undan þeirri ábyrgð að sjá heill og hag kirkjunnar í rökréttu samhengi við andlega farsæld þjóðarinnar. Til íslensku þjóðarinnar sækir kirkjan allan sinn styrk og hún verður um leið að veita henni siðferðilega forystu ef hún vill lifa af sem raunveruleg þjóðkirkja.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.