Gerðir kirkjuþings - 2010, Page 74
74
hafin verði vinna við að endurskoða reglurnar. Þá hefur m.a. verið rætt hvort fækka
eigi kjördæmum og hafa kjördeildir vígðra og leikra aðskildar. Einnig fyrirkomulag
kosninga, s.s. það hvort kjósa eigi til kirkjuþings á héraðsfundum eða samhliða
sveitarstjórnarkosningum og hvort fjölga skuli atkvæðisbærum mönnum og auka
þannig lýðræðið í kirkjunni.
13. mál. Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um leikmanna-
stefnu nr. 874/2004
Við sameiningar prófastsdæma fækkar fulltrúum á Leikmannastefnu. Leikmanna-
stefnan hefur óskað eftir því að þrátt fyrir fækkun prófastsdæma verði fulltrúafjöldi á
Leikmannastefnu óbreyttur. Ástæða þess er að talið er að fækkun fulltrúa muni veikja
samtakamátt og tengingu leikmanna, sem síst megi gera á þessum erfiðu tímum.
Kirkjuráð taldi eðlilegt að verða við beiðni Leikmannaráðs og leggja til að kirkjuþing
2010 fjallaði um breytingar á starfsreglum um Leikmannastefnu með hliðsjón af
ofangreindu.
14. mál. Tillaga til þingsályktunar um námskrá fræðslu þjóðkirkjunnar
Námskrá þessi er ætluð fræðslustarfi þjóðkirkjunnar og á hún að skapa umgjörð utan
um fræðslustarfið í heild sinni. Hún er stefnumarkandi og er henni ætlað að hafa áhrif
á mótun fræðslustarfs þjóðkirkjunnar um land allt.
15. mál. Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um sóknarnefndir
nr. 732/1998 og starfsreglum um presta nr. 735/1998
Í framhaldi af samþykkt siðareglnanna á kirkjuþingi 2009 hefur verið ákveðið að hefja
svokallaða skimun á umsækjendum um störf hjá þjóðkirkjunni. Útbúið hefur verið
eyðublað þar sem viðkomandi umsækjandi getur veitt samþykki sitt fyrir því að kallað
verði eftir aðgangi að sakaskrá viðkomandi. Lagðar eru til breytingar á ofangreindum
starfsreglum til að skerpa á framkvæmd við þetta verkefni.
16. mál. Tillaga að starfsreglum um breytingu á ýmsum starfsreglum
(bandormur)
Starfsreglur þessar fela í sér ýmsar tæknilegar breytingar á starfsreglum kirkjuþings
sem nauðsyn er að breyta til samræmis við breytt lög, starfsreglur eða aðstæður.
Nokkrar breytingar eru lagðar til á starfsreglum um sóknarnefndir, m.a. að lagt er til
að sóknargjöld þeirra sókna sem skila ekki ársreikningun innan tilskilins frests verði
lögð inn á biðreikning Jöfnunarsjóðs sókna þar til ársreikningum er skilað.
17. mál. Tillaga til þingsályktunar um breytingu á jafnréttisstefnu
þjóðkirkjunnar
Samkvæmt lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er
markmið laganna m.a. að vinna gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni. Þar sem
Starfshópur gegn ofbeldi hefur verið lagður af á þessi málaflokkur í raun hvergi vísan
stað innan kirkjunnar lengur. Þess vegna þykir rétt að um þetta efni sé fjallað í
jafnréttisstefnunni þó kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni og kynbundið ofbeldi
falli sjálfkrafa undir jafnréttisnefnd kirkjunnar vegna jafnréttislaga nr. 10/2008.
18. mál. Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um meðferð
kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar nr. 955/2009
Breytingartillögur þessar fela í sér að talsmenn, útnefndir af biskupi, leggist af og
hlutverk þeirra færist til fagráðs og að málsmeðferðin verði þannig skilvirkari við
þessa tilhögun. Þó er lagt til að fagráði sé heimilt í tilteknum málum að leita til
utanaðkomandi aðila til að taka að sér hlutverk talsmanns þolenda og að hann starfi í
umboði og á ábyrgð fagráðs. Við þetta munu þolendur fá beinan aðgang að fagráði í
upphafi máls en nú er þeim vísað til talsmanns áður en fagráð tekur málið til
umfjöllunar.