Félagsbréf - 01.12.1963, Blaðsíða 30

Félagsbréf - 01.12.1963, Blaðsíða 30
hérna á ferð þrátt fyrir allt, og mig væri alls ekki að dreyma, heldur lifði ég og hrærðist í raun og veru og væri nóttin nótt og tunglið tungl: óskaði ég þess þá, að mega byrja lífið á nýjan leik? Gat ég hugsað mér að vera hér á gangi sem dreng- ur, aðeins sem drengur? Hafa villzt í ein- um af mínum mörgu, sundurleitu bernsku- draumum? Hvað var þá um Ólöfu, konuna mína, Ólöfu yngri? Átti hún þá líka að vera draumur? Gat ég fengið mig til þess að gera þau kaup upp við Guð, að allt þetta um Bjarna og Steinunni og þessi tvö dánu — æ, öll þessi dánu — væri bara leikórar í ímyndun minni? Og gjalda það þessu verði?.... Nei, til þess gæti ég ekki feng- ið mig. Þá var allt annað betra! Ég nam staðar og varpaði mæðinni. Sjór- inn fyrir neðan var svartur, með gullnum gneistum. Sjálfur stóð ég f snarbrattri, glitrandi hlíð, svimahátt uppi, og þó slúttu klettar fram yfir mig. Allt í einu vaknaði í mér fögnuður, heitur, myrkur fögnuður. Guð hafði valið mér erfitt hlutverk. Ég skyldi ekki svíkja hann. Ölvaður af grjóti, frostlofti og húmsvörtu hafi hélt ég áfram leiðar minnar. En nú með Guð við hlið mér. Svo nærri manni getur hann gengið á náttarþeli, hann, sem enginn sér, en alls staðar er. 1 þessari frásögn er Eyjólfur stað- hæfður til fullnuslu í eigin skynjun: hugsun hans á göngunni, endursögð í fáum einföldum orðum, samsvarar og hlýtur andsvar í lýsingu umhverfis- ins í fáorðum raunhæfum skynmynd- um. Mynd mannsins í auðninni tjáir alla stöðu hans: ísilagt landið, freðin næturbirtan, brakið undir fótum í „uggvænni“ kyrrðinni, og síðan svim- andi útsýn til hafs undir dagrenning- una, hinn heiti fögnuður lifandi manns 26 FÉLAGSBRÉF í frosti og tunglskini. Sá guð sem nefndur er til sögunnar, eins og vel hæfir presti, er gerður úr þessum efni- við; hann er ekki utanaðkomandi máttarvald, sjálfráður atvikastýrir, en býr innra með manninum sjálfum, í trúnaði hans við ásköpuð örlög sín, þann eld sem leynist í öllum hlutum: vilja hans að bregðast ekki hlutverki sínu. Eyjólfur getur ekki kosið að snúa aftur af markaðri braut, þó svo hann ætti þess kost að kjósa; „hlut- verk“ sitt eygir hann ekki nema í skammri svipsýn, og á næsta leiti við hinn „heita, myrka fögnuð“ þeirrar skynjunar er óróinn, kvíðinn, angistin í skammdegismyrkri mannlegs lífs þar sem sér til engra átta. Aðferðin kann að virðast fullkomlega raunhæf, ekk- ert í frásögninni stangast á við veru- leikaskyn okkar, svona gætum við hugsað og skynjað sjálf ef svo stæði á; en raunar er hún mjög stílfærð: ekki er hirt um aðra þætti myndar- innar en þá sem varða hinn innri veru- leika sem verið er að lýsa, og þeim brugðið upp í fáum einföldum drátt- um: draumkynjuð, annarleg auðnar- lýsingin í fyrstu setningunum umlvkur huga Eyjólfs sem hlýtur að taka lík- ingu af henni, en veruleiki sjálfs hans er óbreytilegur ekki síður en frost- stirðnað landið umhverfis hann: hann hlýtur að halda áfram. Og síðan sýn- in til hafs, til guðs, sprottin af stöðu mannsins í auðninni, ytra og innra, óhjákvæmileg þar, og tjáð á nákvæm- lega skilgreindu andartaki: þar sem Eyjólfur lítur um öxl í áfanga. „Mér var vísuð leiðin, ég valdi hana ekki sjálfur,“ segir í upphafi Vikivaka:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.