Félagsbréf - 01.12.1963, Blaðsíða 59

Félagsbréf - 01.12.1963, Blaðsíða 59
enginn glæpur sé drýgður. Við af- neitum þeirri staðhæfingu, og köllum hana villimannlega, „að stórglæpur brjóti í bága við náttúruna, þannig að jörðin hrópi á hefnd; að hið illa komi eðlilegu jafnvægi úr skorðum og aðeins endurgjald geti bætt skað- ann“. (Yosal Rogat). Og engu að síður tel ég vafalítið, að það byggist einmitt á þessum löngu gleymdu staðhæfingum, að Eichmann var leiddur fyrir rétt, og þær hafi í raun réttri verið höfuðréttlætingin á dauðarefsingu hans. Vegna þess að hann hafði verið viðbendlaður og sjálfur tekið þátt í aðgerðum, sem stefndu opinskátt að því að má út að eilífu tiltekinn „kynstofn“ af jarð- kringlunni, þurfti einnig að útmá hann. Og ef það er satt, að „réttlætið verði ekki aðeins að ná fram að ganga, heldur verði það að sjást ná fram að ganga,“ hefðu allir séð réttlæti þess, sem gert var í Jerúsalem, ef dómar- arnir hefðu vogað sér að ávarpa sak- borninginn eitthvað á þessa leið: „Þér viðurkennduð, að glæpurinn gegn Gyðingum í stríðinu væri mesti glæpur sem um getur í sögunni, og þér viðurkennduð hlut yðar að þess- um glæp. En þér sögðuzt aldrei hafa látið stjórnast af auðvirðilegum hvöt- um, þér hefðuð aldrei haft löngun til að drepa nokkurn mann, og aldrei hatað Gyðinga; en engu að síður hefð- uð þér ekki getað hegðað yður öðru- vísi, og þér hefðuð ekki fundið til sektarvitundar. Okkur finnst erfitt, en þó ekki ógerlegt, að trúa þessu. Þér sögðuð ennfremur, að hlutverk yðar í hinni „Endanlegu Lausn hafi yður hlotnazt af tilviljun, og næstum hver sem er hefði getað orðið staðgengill yðar, svo að því leyti séu næstum allir Þjóðverjar jafnsekir. Þér ætluðuð að segja, að þar sem allir eða nær all- ir eru sekir, sé enginn sekur. Þetta er vissulega nokkuð algeng ályktun, en á hana viljum við þó ekki fallast. Og ef þér skiljið ekki mótbárur okkar, viljum við benda yður á söguna af Sódómu og Gómorru í biblíunni, ná- grannaborgunum tveimur, sem eyddust í eldi af himnum, vegna þess að allir þeir sem þar bjuggu voru orðnir jafnsekir. Að lögum eru sekt og sak- leysi hlutlægs eðlis, og jafnvel þótt 80 milljón Þjóðverjar hefðu gerzt sekir um sama verknað og þér, gæti það ekki afsakað yður. Þótt tilviljun ein hafi knúið yður áfram glæpabrautina, er hyldýpi milli þess sem þér í raun sannri gerðuð og hins sem aðrir hefðu getað gert. Hér er aðeins um verknað yðar að ræða, en ekki hugsanlegt, óglæphneigt eðli yðar, hvatir yðar eða hugsanlega glæpi meðbræðra yðar. Með sögu yðar gáfuð þér í skyn, að lánið hefði leikið yður grátt, og þar sem við erum hnútum kunnugir, viljum við að vissu marki viðurkenna, að við hagstæðari aðstæður er mjög ósenni- legt, að þér hefðuð nokkurn tíma staðið frammi fyrir okkur eða nokkr- um sakamálarétti öðrum. Hjá því verður samt ekki sneitt, að þér hafið þjónað og því stutt í verki fjölda- morðastefnu. Stjórnmálavafstur á ekkert skylt við dagheimilisvist; í stjórnmálum er undirgefni og stuðningur eitt og hið FÉLAGSBRÉF 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.