Félagsbréf - 01.12.1963, Side 66
BJARNI VILHJÁLMSSON
Eddufrœði
Tvö ár eru liðin frá því, að Háskóli
Islands hélt hátíðlegt liálfrar aldar
afmæli sitt. Vel fór á því, að ekki
skyldi líða nema ár frá þeim tímamót-
um, þangað til hafin var útgáfa mik-
ils rits um íslenzkar bókmenntir í
fornöld, því að fátt er það í vísinda-
störfum á vegum Háskólans, sem vak-
ið hefur jafnmikla athygli, innan
lands og utan, sem rannsóknir á sviði
íslenzkra fornbókmennta, enda hafa
setið á kennarastóli í íslenzkri bók-
menntasögu allt frá upphafi atkvæða-
miklir og glæsilegir lærdómsmenn.
Auk kennslustarfsins og annarra em-
bættisstarfa hafa þeir borið hitann og
þungann af margvíslegri fræðastarf-
semi, svo sem útgáfu íslenzkra forn-
rita síðustu þrjátíu árin, og annazt
margháttuð ritstörf á sviði vísinda-
greinar sinnar og mikilsverðar undir-
stöðurannsóknir, sem eru óhjákvæmi-
legur undanfari meiri háttar yfirlits-
rita. Má því með sanni segja, að stór
bókmenntasaga, gefin út á íslandi og
Einar Ól. Sveinsson:
íslenzkar bókmenntir í fornöld I.
VIII + 534 bls. + 17 bl. ótölusett
með myndum.
Almenna bókafélagið. Bók mánaðar-
ins. Nóvember 1962. Reykjavik 1962.
íslenzku, komi nú í fyllingu tímans.
Slíkt er mikill viðburður í íslenzkum
fræðum, er má vera öllum Islending-
um fagnaðarefni, og boðar vonandi
l’leira af svipuðu tagi. Yfirlitsrit á
sviði íslenzkra fræða, jafnvel þótt
skrifuð séu í strangvdsindalegum anda,
hafa m.a. það sér til gildis, að þau ná
langt út fyrir hóp sérfræðinga, eru
nokkurs konar úttekt á hlutaðeigandi
sviði fræðanna, gerð fyrir augutn al-
þjóðar, og eru þvi vænleg til að auka
skilning leikmanna á starfi vísinda-
manna.
Fornar bókmenntir eru dýrasti at'f-
ur þjóðarinnar, og varla getur svo
umkomulítinn íslending, að hann hafi
ckki af þeim eitthvert veður. Margt
ber til þess, að þær hafa einnig fvrir
löngu dregið að sér athygli erlendra
manna, er sumir hverjir hafa lagt
drjúgan skerf til rannsókna þeirra. I
fyrstu kom þar einkum til, að þær
varða oft sögu og menntir annarra
þjóða um norðanverða Evrópu og
raunar einnig Ameríku, svo að er-
lendir menn leituðu íslenzkra heimilda
til að varpa Ijósi og þá lielzt ljóma
hver yfir fortíð sinnar þjóðar. Á
síðari tímum er það þó miklu fremur
verðleikar bókmenntanna sjálfra, menn-
ingarsögulegt gildi þeirra, glæsibragur
62 FÉLAGSBRÉF