Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1881, Blaðsíða 73
61
1881
aðsprófasti landsins verði í þess stað og sem endurgjald skrifstofukostnaðar veitt 200 03
kr. árleg þóknun úr landssjóði. 30. ma(.
Fyrir því lætur ráðgjafinn eigi á frest skotið þjónustusamlega að tjá yður, herra
landshöfðingi, til þóknanlegrar leiðbeiningar, að ráðgjafanum þykir ísjárvert að koraa á
framfœri frumvarpi um hið ofanumgetnafyrirkomulag, því að með því að veita próföslunum
þóknun eðalaun úr landssjóði fyrir embættisstörf þeirra, virðist ný launaregla lögleidd án nœgi-
legrar ástœðu, og þar að auki þykist ráðgjafinn geta gengið að því vísu, að þingið muni
með öllu ótilloiðanlegt til að fallast á slíkt frumvarp, er myndi baka landssjóði eigi all-
lítinn kostnað. En að því leyti sem frumvarp það, er að ofan rœðir um, gjörir þá vara-
tillögu, að reynt vorði að útvega próföstunum árlegt endurgjald úr landssjóði fyrir skrif-
stofukoslnað, að upphæð 100 kr., þykir lolcs hlýða, að geta þess, að ritstörf prófastanna
virðast eigi umfangsmeiri en svo, að þeir með hœgðarleik geti leyst þau af hendi sjálfir.
— Brjef ráiigjafans fyrir íslarnl ti/ hnids/iilfðhu/jn um tíund til prests og 64
kirkju. — Með þóknanlegu brjefi frá 30. f. m. hafið þjer, herra landshöfðingi, sent hing- 30. maí.
að frumvarp til laga um tíundargreiðslu til prests og kirkju, og hafið þjer um leið getið
þess, að stiptsyfirvöldin fyrir hönd nofndar, er hin síðasta prestastefna hafði skipað til
jiess að taka til íhugunar, hvernig ákveða skyldi vald og starfsvæði prestastefnunnar, hafi
sent yður frumvarp þetta með tilmælum uin, að það yrði lagt fyrir ráðgjafann. þjer liafiö
og látið í ljósi, að þjer ekki getið ráðið til, að gjörð sje gangskör að því, að leggja frum-
varpið fyrir alþingi þetta ár, því að gegn aðalákvörðunum frumvarpsins, sem miði til
þess að afnema án endurgjalds undanþágu þá, er einstöku jarðir hafa haft með greiðsln
á tíund til prests og kirkju, sjeu fœrðar fullnœgjandi mótbárur í frumvarpi því til laga
nm skipun prestakalla, sem lagt liafi verið fyrir alþingi 1879, en breytingu þá á inn-
heimtu tíundarinnar, sem frumvarpið fer t'ram á, að verði lögð á herðar sýslumönnunum,
muni eigi heldur ráðlegt að framkværaa án þoss, að sýshimenn fengu hœfilega þóknun
fyrir hana, en af því leiddi aptur, ef til vildi, tilfinnanlega tekjurýrnun fyrir suma presta.
Út af þessu lætur ráðgjafinn eigi á frest, skotið þjónustusamlega að tjá yður,
herra landshöfðingi, til þóknanlegrar leiðbeiningar, að ráðgjafinn af ástœðum þeim, et þjer
hafið tokið fram, álítur frumvarp þetta eigi lagað til að leggjast fyrir alþingi.
— Brjef ráðgjafaus fyrir íslaud tll Inndx/iöfdiiit/ja uiu horguu handa fulltrúa 05
stjórnariuuar á alþingi 1883. — Sarnkvæmt allraþegnlegustu tillöguin ráðgjafans hefir 30. maí.
hans hátign konunginum 25. þ. m allramildilegast þóknazt aö fallast á, að borgunin
handa fulltrúa stjórnarinnar á alþingi því, sem á að koma saman á árinu 1883, skuli
vera 2000 kr., og er upphæð þessi dregin frá tillaginu úr ríkissjóði nefnt ár; en það er
tilfœrt í 6. gr. frumvarps þess til fjárlaga fyrir árin 1882 og 1883, sem sent hefir verið
yður, herra landshöfðingi, með brjefi frá ídag.
fetta lætur ráðgjatinn eigi undan falla lijer með þjónustusamlega að tjá yður,
*leMa landshöfðingi, til þóknanlegrar leiðbeiningar og birtingar.
— Brjef ráðgjafans fyrir íslaud til lavdxliöfðini/ja um silfurbergsuáinuua í ilelgu- 00
staðaljalli. — Eptir að ráðgjalinn hafði meðtekið þóknanlegt hrjof yðar, herra landshöfð- 30. maí.