Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1881, Side 91
79
1881
tjeðu brjefi, en hvað sem því líður, get jeg samkvæmt 20. gr. tekjuskattslaganna frá 14. JQ2
desbr. 1877 ekki fellt úr gildi úrskurð yfirskattanefndarinnar um þetta, og verður því 14. sopt.
að sinni við svo búið að standa; en vitaskuld er, að hlutaðeiganda er frjálst að leita
rjettar síns fyrir dómstólunum.
— Brjef landshöfoingja ti! AtiptSijfirvaldanna um gagnfrmðaskólann á Möðru- 103
völluni. — I þóknanlegu brjefi frá 31. f. m. meðtók jeg álit stiptsyfirvaldanna um 14. sept.
uppástungu þá, er hingað var send, og þar sem forstöðumaður skólans á Möðruvöllum
fer fram á það, að lærisveinum skólans, sein frá byrjun náesta skólaárs verði 50 að tölu,
verði skipt. niður í 3 bekki, og að 3. kennarinn verði sottur við skólann, sem kenni
reikning, söng og leikfimi, og ef á þarf að halda landafrœði eða dönsku. Eptir að al-
þingi nú í sumar hefir fallizt á frumvarp iil laga um tjeðan skóla, er ákveður, að þriðji
kennari í gagnfrœðum skuli kotna í staðinn fyrir búfrœðing þann, sem eptir 3. grein
laga 7. nóvbr. 187!) átti að kenna uppdráttarlist sem og verklega og bóklega búfrœði,
hefi jeg, að áskildu sámþykki ráðgjafans, og til þess að undirbúa breytinguna til liins
fyrirhugaða nýja fyrirkomulags á skólanum, sett lœkniskandidat IJórð Thoroddsen til
þess frá 1. október þ. á. að vera kennari við Möðruvallaskólann gegn því, að fá um
tíma þann, er hann kennir við skólann, 800 kr. árslaun þau, er ákveðin eru handa bú-
frœðinguum með 3. gr. laga 7. nóvbr. 1879 og eptirgjaldið eptir jörðina Möðruvelli pro
rata temporis, eða ef hið fyrgreinda lagafrumvarp, er alþingi fjellst á, verður staðfost, að
hann þá fái laun þau, sem í 2. grein |tess eru ætluð 3. kennara, 1000 lcr. árlega, frá
þeim tíma, er tjeð lög nái gildi.
Að því er snertir uppástungu forstöðumannsins, sem hann hefir sent hingað,
um endurskoðun á skólareglugjörðinni, er jeg á sama máli og stiptsyfirvöldin, aö rjett-
ast sjt' að fresta að gera nokkra ákvörðun um þotta þangað til það kemur í Ijós, hvort
tjoð lagaboð verður staðfest.
IJetta er hjer með tjáð stiptsylirvöldunum til leiðbeiningar og birtingar fyrir
hlutaðeiganda.
- Brjef landshöfóiugja til xU/>tstj/irva/danaa um lán Iianda prestakalli. — Eptir
að fjárlagam'fndin í neðri deild alþingis hafði með meðmælum sínum vísað til min bœn- jq 8ept
arskrá frá prófastinum í Norður-Pingeyjarsýslu um, að veitast mætti Sauðanosspresta-
kalli lán af viðlagasjóðnum til að fullgera steinhús það, sem þar er verið að byggja til
íbúðar handa prestinum, og eptir að stiptsyfirvöldin með brjefi dagsettu í gær liafa látið
1 ljósi álit sitt ura erindi það, er 4 alþingismenn sendu mjer með fyrgreindri bœnarskrá,
vil jeg hjer með skýra stiptsyfiryöldunum frá því, er hjer greinir, til þóknanlegrar leið-
beiningar og birtingar fyrir hlutaðeiganda.
Stiptsyfirvöldin eru enn sem fyrri á þeirri skoðun, að það muni verða allt of
þung byrði fyrir prestakallið, að greiða af tekjum |iess vexti og afborgun af 8000 kr.
láni eða 480 kr. árl. í 28 ár, auk 500 kr. optirgjalds þess, er samkvæmt lögum um skip-
1111 prestakalla frá 27. febr. f. á. á að borgast fyrirfram af tekjum prestakallsins, frá
næstu prestaskiptum, og álíta þau það því ekki tiltœkilegt að samþykkja að svo stórt
lán verði tekið lianda prestakallinu, en að aptur kynni að vera ástœða til að veita
Pi’estakallinu minna lán, t. d. 4000 kr., með því skilyrði, að því sje variö til að ljúka