Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1881, Page 136
1
1881 124
133 Við slík tœkifœri verður farið á sama hátt með íiutningsgóz. Skip-
stjórarnir ráða, hvort [jeir afferma pað á næztu höfn, sem komizt verður inn
á, eða hafa það með sjer lengra og skila því á sinn samastað á apturleiðinni.
Hið sameinaða gufuskipafjelag.
Kaupmannahöfn í nóvemher 1881.
C. P. A. Kocli,
forstjóri.
134 A u g 1 ý s i n g
um póstmál.
Báðgjalinn fyrir ísland hefir samþykkt þessar breytingar á póstgöngunum:
1, að aðalpósturinn milli Akureyrar og Kej'kjavíkur leggi leið sína um verzl-
unarstaðinn Blönduós í Húnavatnssýslu, bæði á suður- og norðurforðum sínum, og að
þess vegna
a, brjefhirðingastaður verði stofnaður á Blönduós, en að brjefliirðingastaður sá,
er verið hefur á Reykjum, verði lagður niður, og
b, að aukapósturinn út á Hólanes (Skagastrandarpósturinn, sbr. 8. gr. f. aug-
lýsingar 3. maí 1872) eptirleiðis heQi göngu sína ekki frá Sveinsstöðum en frá Blöndu-
ós í hvert sinn, er pósturinn kemur þangað að sunnan.
2, að Pingeyjarsýslupósturinn, sem er aukapóstur aðalpóstsins frá Akureyri til
SeyðisQarðar og fer frá Grenjaðarstað norður á Sauðanes (sbr. 8. gr. h. auglýsingar 3.
maí 1872) haldi áfram leið sinni frá Sauðanesi að verzlunarstaðnum Vopnafirði, og að
stofnaður verði nýr aukapóstur frá Höfða í Vallnahreppi á VopnaQörð, er fari á stað
undir eins og aðalpósturinn er kominn að Höfða frá Prestsbakka; en aptur á móti
að aukapósturinn frá Grímsstöðum á aðalpóstleiðinni frá Akureyri til Seyðisfjarðar verði
lagður niður.
3, að stofnuð verði brjefhirðing á Möðruvöllum í Hörgárdal.
4, að stofnaður verði aukapóstur frá St’ykkishólmi til Flateyjar, og að stofnuð
verði brjefhirðing á síðarnefndum stað.
Breytingar þessar ná gildi 1. janúar 1882.
Um leið og þetta er birt almenningi skal ákveðið, að aukapósturinn til Flateyjar
skuli árið 1882 fara frá Stykkishólmi eptir komu sunnanpóstsins þangað, tvær fyrstu
vorfcrðirnar og tvær síðustu haustferðirnar.
Landshöfðinginn yfir íslandi, Eeykjavík 5. desbr. 1881.
Hilmar Finsen.
Jón Jónsson.