Víkurfréttir - 18.12.1980, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 18.12.1980, Blaðsíða 7
Klippiö út og geymiö VÍKUR-fréttir JÓLABLAÐ Fimmtudagur 18. desember 1980 Stundin nálgast, verumviðbúin nýkrónunni í tíma! ENDURLESTU BÆKLINGINN Fyrir áramótin er ráðlegt að lesa ai'tur bæklinginn sem sendur var út í haust. Ef eitthvað er óljóst getur þú leitað upplýsinga í næsta banka eða sparisjóði. Vertu klár á gjaldmiðilsbreytingunni um áramótin. f a Viðskiptamenn banka og sparisjóða eru hvattir til sérstakrar varúðar við dagsetningu og útgáfu tékka um sjálf áramótin. Til að fyrirbyggja hugsanleg mistök og til að létta störf gjáldkera er ráðlegt að leggja tékkheftin til hliðar á gamlársdag og nýársnótt. TEKKAR: Gknfyriráramót- Nýkr. eftir áramót Það er áriðandi að tékkar útgefnir í des- ember séu undantekningarlaust í gömlum krónum. Eftir áramótin eiga allir tékkar að vera í nýjum krónum. Skrifaðu skýra dagsetningu, haíðu mán- uðinn í bókstöfum til öryggis. Einmg gemr þú skrifað Gkr. fyrir framan fjárhæð á tékka i áramót og Nýkr. fyrst eftir áramót. AT.T.mVtXTAR IGÖMLUM KRDNUM, ÞQTT ÞEIRGREIÐIST Á WÆSTA ÁRÍ Losið ykkur við gömlu myntina fyriráramót Það er mjög til hagræðis að mynt í spari- baukum svo og mynt sem dagað hefur uppi hjá fólki,berist bönkum og sparisjóðum fyrir áramót. NÝKRÓNAN RÍKIR STRAX EFTIR ÁRAMÓT Verðlag verður mælt í nýjum krónum frá áramótum. Gamlar krónur (seðlar og mynt) gilda þó áfram og má nota í viðskiptum að 1/100 skráðs verðs fram til júnOoka 1981. Þó að gamlar krónur (seðlar og mynt) gildi til júníloka 1981, er best að skipta strax eftir áramótin því að markmiðið er að nýkrónan verði sem fyrst ráðandi gjaldmiðill. Fólk er hvatt til þess að nota eingöngu gamlar krónur í öllum viðskiptaskjölum út þetta ár. Víxlar sem samþykktir eru fyrir áramót en eiga að greiðast á árinu 1981 skulu vera í gömlum krónum og það tekið skýrt f ram. Muniðað þaðer óráðlegt að samþykkja ódagsetta vixla. Oífcinnmis mfmitmr LETTUM A AFGREIÐSLU- FOLKI Það mæðir mikið á verslunum í sambandi við gjaldmiðilsbreytinguna. Sýnum því tillitssemi og léttum afgreiðslufólkinu störfm með því að skipta yfir í nýkrónur í banka eða sparisjóði áður en farið er í verslun eftir áramótin, ef á annað borð er greitt með peningum en ekki tékka. Það munar okkur lidu en það rniklu. Bankar og sparisjóðir sjá um um- skráningu innlánsreikninga og verðbréfa í þeirra vörslu úr gömlum krónum í nýjar. Eigendur sparisjóðsbóka geta sem fyrr komið hvenær sem er eftir áramótin til þess að sjá vaxta- færslu og innistæðu þeirra í nýkrónum. Reikningsyfirlit verða send í pósti eins og hingað dl. Þú þarft ekki að hlaupa til, bankinn sér um breytinguna óbeðinn. Bíðlund og hjálpsemi kostar ekkikrónu Meðan á gjaldmiðilsbreytingunni stendur maóir mikið á starfsfólki í bönkum, sparisjóðum og verslunum. Því er áríðandi að allir sýni tillits- semi og liðki nl fyrir næsta manni. Afgreiðslufólk jafnt sem viðskiptavinir þurfa að snúa bökum saman, svo að breytingin gangi snurðulaust. Það er öllum fyrtr bestu. minni upphæóir-meira verógildri .O 1 D) O 'O .O .1 2 AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR 52.12

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.