Víkurfréttir - 18.12.1980, Blaðsíða 29
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
Fimmtudagur 18. desember 1980
Olíuhöfn í
Mikið hefur verið rætt nú
síðustu daga og vikur um hvort
leyfa eigi Bandaríska varnar-
liðinu á Keflavikurflugvelli, að
reisa nýja olíugeyma og olíu-
löndunaraðstöðu I og við
Helguvík.
Megin ástæður þess að málið
er svo mikið til umræðu nu, sem
raun ber vitni um eru : Ifyrsta lagi
kom fram nú i sumar skýrsla
nefndar, sem hafði veriö faliö að
skoða máliö og gera tillögur um
lausn þess, en nefnd þessi var
skipuö fulltrúum utanrikisráðu-
neytisins og varnarliðsins, (ööru
lagi hefur á Alþingi verið lögð
fram þingsályktunartillaga, þar
sem utanríkisráðherra er falið,
að hraða svo sem kosturerfram-
kvæmdum við Helguvík.
Þingsályktunartillaga þessi er
fyrst og fremst lögð fram vegna
þeirra umræöna, sem fram höfðu
farið um skýrslu fyrrnefndrar
nefndar og ef til vill ekki síður
vegna viðbragða flestra Alþýðu-
bandalagsmanna við málinu.
Það skal tekið fram strax til
upplýsinga, að undirritaður var
staddur erlendis þegar þings-
ályktunartillaga þessi var lögð
fram svo ég hafði ekki kost á því,
að gerast meðflutningsmaöur
hennar. En taka vil ég fram, að
engum treysti ég betur, en
núverandi utanríkisráöherra,
Ólafi Jóhannessyni, að koma
þessu hagsmunamáli í höfn.
En lítum nú aðeins á
staðreyndir málsins. Varnarlið-
ið mun nú hafa 19 tanka undir
eldsneyti, sem sumir eru niður-
grafnir en aðrir ofanjarðar. Allir
munu þessir tankar byggöir á
síðustu árum síðari heimstyrj-
aldar ogfram undir 1950/1951 og
þá til bráöabirgöa. Tankarnir eru
allir staðsettir yfir vatnsbólum
Njarövíkur, sem trúlega er sam-
tengt vatnsbólum Keflavíkur.
En eins og kunnugt er eru vatns-
holur þessara byggðarlaga
innan við 40-50 m. djúpar, svo
mengunar-hætta þeirra er mikil,
ef olía í litlu eða miklu magni færi
út i jarðveginn. Og slysið gæti
skeð, því dæmi eru til þess, að
Helguvík?
olía skili sér í gegnum jarðlög
eftir allmörg ár jafnvel 20-30
árum eftir að olían helllist niður.
Um ástand geymanna fer ég ekki
mörgum oröum, þeir gætu þess
vegna gefiö sig eftir stuttan tíma
og ekki er varlegt að treysta þeim
nema allra næstu ár. Ástand
geyma varnarliðsins i Hvalfirði
mun jafnvel enn verra, að
minnsta kosti eldri geymanna,
utan þess, að þeir eru ekki stað-
settir við þétta byggö. Ég læt
þetta duga um tankana, en minni
jafnframt á, að þeir eru svo nærri
byggðinni, að það mun vera
innan við 200m. að næsta íbúö-
arhúsi, svo frá öryggissjónar-
miði þarf aö flytja þá hið fyrsta.
Nokkur orð um uppskipunar-
aöstöðuna við Keflavíkurhöfn og
lagnarinnar þaöan og aðtönkun-
um.
Olíuuppskipunaraöstaöa í eða
við fiskihöfn er fráleit. Það hafa
þegar oröiö 2 óhöpp við höfnina,
bæöi hefðu getað orðiö stórslys,
en urðu sem betur fer ekki.
Lagnirnar frá höfninni eru eins
og tankarnir orðnar gamlar og
skera byggöina, svo að til
vandræða er.
Aöalókostir núverandi
fyrirkomulags er:
ajMengunarhætta vatnsbóla.
b) öryggisatriði v/ nálægðar
byggða.
c) Skipulags-óhagræöi.
d) Uppskipun í fiskihöfn.
e) Ástand og aldur tanka og
lagna.
Auk fyrrnefndra atriða vil ég
nefna eitt til viðbótar við lýsingu
á núverandi ástandi og það er
akstur eldsneytis frá Reykjavík
og Hafnarfirði til Keflavíkurflug-
vallar vegna íslenska flugflotans
og alls flugs utan herflugs. Þetta
munu vera um 65.000 tonn á ári
að meðaltali. Eins og allir vita
hafa orðið óhöpp og slys vegna
þessa aksturs, fyrir utan verulegt
slit á veginum. Það er mál, að
þessum akstri linni.
Það eru orðin allmörg ár síðan
sveitastjórnirnar í Keflavík og
Njarðvík í samráði við stjórn
Landshafnarinnar hófu umræð-
ur um þetta vandamál og fóru að
móta kröfugerð á hendurvarnar-
liðinu um úrbætur.
Eitt af því fyrsta, sem
samkomulag var um hjá þessum
aðilum var, að nauðsynlegt væri,
aö samkomulag næðist um
nýjan stað fyrir tankana, sem
siðan væri hægt að krefjast fram-
kvæmda á.
Hafin var frumkönnun á stað-
arvali og eftir allítarlega könnun
urðu allir á eitt sáttir um, að
heppilegasti staðurinn væri
Helguvík. Ástæður þess vals
voru margar, en þessar helstar:
a) Staðurinn í útjaðri væntan-
legrar byggðar.
b) Grunnvatnsrennsli til sjávar
og því takmörkuö hætta á
mengun vatnsbóla.
c) Dýpi það mikið að löndun
er framkvæmanleg.
d) Lagnir færu neöanjarðar í
útjaðri byggöar til væntanlegrar
flugstöðvarbyggingar og
síðan ofan byggöar til varnar-
liðsins.
Að sjálfsögðu yrðu allar fram-
kvæmdir gerðar með tilliti til
ítrustu krafna og nútíma
þekkingar til að draga úr
mengunar- og slysahættum.
Bæta má við, að verði við þetta,
að skerða byggingamöguleika á
þessu svæði, þá bætast þeir að
fullu og vel það á þvi svæði, sem
losnar þegar núverandi tankar
og lagnir hverfa.
Nefnd sú, sem fyrrverandi
utanríkisráðherra, Benedikt
Gröndal skipaði í september
1979 og lauk störfum siðastliöið
sumar komst aö sömu niöur-
stöðu og heimamenn, þ.e. að af
þeim stöðum sem til greina
kæmu, væri Helguvík heppileg-
ust ásamt þvi, að staðfesting
fékkst á, aö Bandaríska varnar-
liðið og NATO myndu greiöa
allan kostnaö vegna þessara
framkvæmda.
Með tilliti til þess, sem ég hef
nú rakið, þ.e. aö staðsetningin er
talin heppileg af þeim, sem til
þekkja og fjármagn er tryggt til
framkvæmdanna, þá legg ég
áherslu á, að hafist verði handa
sem allra fyrst, en minni
jafnframt á, að samhliða verður
aö leysa þann vanda, sem er
vegna þess mikla aksturs með
brennsluefni um Reykjanes-
braut.
Jóhann Einvarðsson.
TILKYNNING UM
Áramótabrennur
Þeim sem hafa ætlað sér að hafa áramótabrennu,
ber að sækja um leyfi til Slökkviliðs Brunavarna
Suðurnesja í Keflavík.
Skilyrði fyrir leyfisveitingu er, að ábyrgðarmaður
sé fyrir brennunni.
Brennur sem verða hlaðnar upp og ekki hefur
verið veitt leyfi fyrir, verða fjarlægöar.
Umsóknir berist fyrir 20. desember 1980.
Lögreglan i Keflavík, Grindavík, Njarövik
og Gullbringusýslu
Brunavarnir Suöurnesja
Teppahreinsun
Húseigendur. Nú er rétti tíminn til að láta hreinsa
teppin fyrir jól.
Góðfúslega gerið pantanir tímanlega.
Ath. Tekið á móti pöntunum á Ökuleiðum, sími
2211, og heimasíma 7271.
JÓN SIGURBJÖRNSSON